Sultuslakt reggí, fyndnir Skotar og fróðleiksfúsir forsætisráðherrar

Úrval tón­leika, sýn­inga og við­burða 9.–22. febr­úar.

Sultuslakt reggí, fyndnir Skotar og fróðleiksfúsir forsætisráðherrar

Hjálmar

Hvar? Græni Hatt­ur­inn, Akureyri
Hvenær? 9. & 10. febr­úar kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Það eru komin 14 ár síðan Hjálmar stigu fyrst á svið og buðu fram ein­staka sam­blöndu sína af hljóð­heimi Jamaíku og Íslands, sem hefur verið áhrifa­valdur fyrir sveitir eins og Ojba Rasta og Ama­badama. Hjálmar hafa ekki gefið út nýja plötu í sjö ár, þannig að gestir ættu ekki að gera ráð fyrir því að heyra eitt­hvað nýtt, aðeins ljúfa og sultu­slaka tóna.

Hatari x Kraftgalli

Hvar? Stúd­enta­kjall­ar­inn
Hvenær? 9. febr­úar kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Magnaða gjörn­ingapönks-hljóm­sveitin Hatari – sem tæklar gjarnan tóm­lausa neyslu­hyggju, rísandi fas­isma og sið­ferð­is­lega afstæð­is­hyggju með krítíska tóm­hyggju að vopni – býður fólki á ókeypis tón­leika í boði Lands­bank­ans og Félags­stofnun Stúdenta. Með þeim í för verður Kraft­galli,  nýjasta raf­tón­list­ar­verk­efni Arnljóts Sig­urðs­sonar.

Scotch on Ice

Hvar? Gamla bíó og Harpa
Hvenær? 9. & 10. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr. og 7.990 kr.

Á þess­ari hátíð sam­eina uppi­stand­arar frá Íslandi, Bret­landseyjum, og víðar krafta sína til að berj­ast gegn myrkr­inu með hlátri að vopni. Auk Íslend­inga eins og Bylgju Babýlóns og Ara Eldjárn koma fram Jojo Suther­land, Liam Withnail, Tom Stade, og fleiri. Einnig er hægt að styrkja vald­efl­ing­ar­fé­lagið Hugarafl með miða­kaup­unum.

Stereo Hypnosis, Christopher Chaplin, & Snorri Ásmundsson

Hvar? Mengi
Hvenær? 10. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Íslenska tvíeykið Stereo Hypnosis og breska tón­skáldið Christopher Chaplin spil­uðu saman á Extreme Chill tón­list­ar­há­tíð­inni í fyrra, en þre­menn­ing­arnir ætla á ný að spinna saman til­rauna­kennda raf­tón­list á þessum tón­leikum. Þeim til liðs­aukar verður gjörn­ing­ar­lista­mað­ur­inn Snorri Ásmunds­son.

Ástarsögur í Hannesarholti

Hvar? Hann­es­ar­holt
Hvenær? 15. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Katrín Jak­obs­dóttir ber marga hatta og kemur gjarnan fram í fjöl­miðlum sem þing­maður, for­maður VG, og nú sem for­sæt­is­ráð­herra, en á þessu kvöldi mun hún bera annan og eldri hatt, sem bók­mennta­fræð­ingur. Hún mun rýna í íslenskar ást­ar­sögur, þar á meðal „Pilt og stúlku“ og „Mann og konu“ eftir Jón Thorodd­sen.

Valdimar

Hvar? Húrra
Hvenær? 15. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Við­kunn­an­lega kefl­víska hljóm­sveitin, Valdimar, ratar á möl­ina þar sem hún mun flytja bæði þekkt­ari slag­ara og svo nýtt efni. Til­finn­inga­ríka hljóm­sveitin er að eigin sögn að vinna að þriðju breið­skífu sinni og búast má við því að heyra óheyrð lög.

Í svörtum fötum

Hvar? Hard Rock
Hvenær? 15. febr­úar kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 2.990 kr.

Það eru komin 18 ár síðan að Í svörtum fötum fang­aði tíð­ar­anda byrj­unar 21. ald­ar­innar með sam­kennd­ar­lag­inu „Nakinn“. Hljóm­sveitin gaf út fjórar breið­skífur áður en að alt-rock stefnan leið undir lok og með­limir sveit­ar­innar fóru að sinna öðrum erindum, en á nokk­urra ára fresti koma þeir saman til að fagna þessu hverf­ula tíma­bili.

Dr. Spock útgáfutónleikar

Hvar? Húrra
Hvenær? 16. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Háværa rokksveitin Dr. Spock hefur spilað á ógrynni af tón­leikum, en tók sér pásu í nokkur ár á meðan annar söngv­ar­inn hætti sér á svið stjórn­mála. Nú þegar hann er laus aftur hefur hljóm­sveitin unnið hörðum höndum við að ljúka nýj­ustu plötu sinni, „Leður“, sem mun án efa vekja áhuga eldri rokk­urum lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár