Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundar um lögbrot dómsmálaráðherra

„Skylda nefnd­ar­innar að fjalla um hennar stöðu,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, for­maður þing­nefnd­ar­innar. „Ekki okkar að ákveða ráð­herra­val ann­arra flokka,“ segir þing­flokks­for­maður Vinstri grænna.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundar um lögbrot dómsmálaráðherra
Mál Sigríðar rætt í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Á fund­inn koma umboðs­maður Alþingis, yfir­lög­fræð­ingur Alþingis og jafn­framt sér­fræð­ingar í stjórn­skip­unar- og stjórn­sýslu­rétti. Mynd: ©Bragi Þór Jósefsson / Alþingi
Helga Vala Helga­dóttirfor­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fundar um stöðu Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra og lög­brot hennar við skipun dóm­ara við Lands­rétt á fimmtu­dag­inn. 

„Við­fangs­efni fund­ar­ins er máls­með­ferð Sigríðar Andersen við skipun dóm­ara og staða hennar sem ráð­herra,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, í sam­tali við Stundina.

„Hún gegnir auð­vitað ráð­herra­emb­ætti meðan hún er varin af meiri­hluta þings, en það er skylda nefnd­ar­innar að fjalla um hennar stöðu, og jafn­framt stöðu þings­ins og aðkomu þess að skipun dóm­ara almennt. Næstu skref mið­ast svo kannski dálítið við hvað kemur fram á þessum fundi.“

Á fund­inn koma umboðs­maður Alþingis, yfir­lög­fræð­ingur Alþingis og jafn­framt sér­fræð­ingar í stjórn­skip­unar- og stjórn­sýslu­rétti. 

Píratar hafa talað fyrir því að Sigríður Andersen segi af sér ráð­herra­emb­ætti og gefið til kynna að ellegar verði lögð fram van­traust­s­til­laga gegn henni.

Jón Þór Ólafsson, full­trúi flokks­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, telur mik­il­vægt að allir þing­menn geti tekið upp­lýsta ákvörðun um hvort þeir treysti ráð­herra til áfram­hald­andi starfa.

Jón Þór Ólafssonþing­maður Pírata

„Til að svo megi vera í þessu máli, þá þurfa upp­lýs­ingar um ákvarð­anir og verk­lag ráð­herra að liggja fyrir. Þess vegna hefur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd kallað eftir til­tækum upp­lýs­ingum frá ráðu­neyt­inu,“ segir hann.

Jón bendir á að þegar lögð er fram van­traust­s­til­laga hafi þingið í raun aðeins þrjá daga þar til málið er tekið fyrir. „Þess vegna þarf und­ir­bún­ings­vinnan að fara fram með meiri fyr­ir­vara.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur gefið út að hún líti ekki á Lands­rétt­ar­málið sem afsagn­ar­sök fyrir Sigríði Andersen. „Hún situr bara áfram í rík­is­stjórn,“ sagði Katrín í sjón­varps­fréttum RÚV þann 19. des­em­ber og tók Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, í sama streng. „Hún er nátt­úr­lega ráð­herra í þess­ari rík­is­stjórn áfram,“ sagði hann. Eftir því sem Stundin kemst næst hefur ekki komið til sér­staks ágrein­ings um stöðu Sigríðar Andersen meðal þing­manna og for­ystu­fólks Vinstri grænna. 

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttirfor­maður þing­flokks Vinstri grænna

Stundin spurði Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur, for­mann þing­flokks­ins, hvort hún væri sam­stíga Katrínu Jak­obs­dóttur hvað varðar stöðu Sigríðar Andersen. „Já, ég er það og það hefur ekk­ert breyst í sjálfu sér. Við vissum þegar við gengum inn í þetta sam­starf að þetta gæti orðið nið­ur­staðan,“ sagði hún og bætti við: „Það er auð­vitað ekki okkar að ákveða ráð­herra­val ann­arra flokka.“

Blaða­maður benti þá á að Sigríður gæti ekki setið á ráð­herra­stóli nema með stuðn­ingi meiri­hluta þings­ins, meðal ann­ars þing­manna Vinstri grænna. „Vissu­lega, það er rétt,“ sagði Bjarkey.

Aðspurð hvort ein­ing sé um málið innan þing­flokks­ins svarar hún: „Þetta hefur ekki verið tekið sér­stak­lega fyrir innan þing­flokks­ins, en þar eru eflaust skiptar skoð­anir um málið. Okkur fannst við­eig­andi að það yrði tekið fyrir á vett­vangi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar en að öðru leyti hefur þetta ekki verið rætt neitt sér­stak­lega.“ 

Þessi grein er brot úr ítar­legri umfjöllun um ráð­herra­feril og emb­ætt­is­færslur Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár