Uppfært: Stjórnmálaflokkarnir greiddu sjálfir fyrir myndskreytingarnar

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hélt utan um mynd­skreyt­ingar á stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar hjá aug­lýs­inga­stof­unni Hvíta hús­inu.

Uppfært: Stjórnmálaflokkarnir greiddu sjálfir fyrir myndskreytingarnar
Nýmæli að sátt­málar séu mynd­skreyttir Sig­tryggur Magnason, sem hélt utan um verk­efnið, sagð­ist ekki vita til þess að stjórn­ar­sátt­málar á Íslandi hefðu áður verið mynd­skreyttir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn greiddu sjálf fyrir mynd­skreyt­ingar á stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Sig­tryggur Magnason hélt utan um verk­efnið fyrir hönd Hvíta húss­ins, en hann var aðstoð­ar­maður Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þegar hún gegndi emb­ætti mennta­mála­ráð­herra. Í dag starfar hann sem hug­mynda­smiður hjá Hvíta hús­inu. 

Stundin greindi frá því í morgun aug­lýs­inga­stofan Hvíta húsið hefði fengið rúmar 1,3 millj­ónir króna frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vefnum www.opnirreikningar.is greiddi for­sæt­is­ráðu­neytið Hvíta hús­inu alls 1.353.910 krónur þann 29. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Gísli S. Brynj­ólfs­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Hvíta hús­inu, stað­festi í sam­tali við Stundina í gær að mynd­skreyt­ing sátt­mál­ans sé eina verk­efnið sem stofan hefur unnið fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið. Gísli hafði hins vegar aftur sam­band við Stundina í dag og full­yrti að stjórn­mála­flokk­arnir þrír hafi fengið reikn­ing fyrir mynd­skreyt­ing­unni, en ekki for­sæt­is­ráðu­neytið. Reikn­ing­ur­inn á vefnum Opn­ir­reikn­ingar.is sé hins vegar vegna verk­efnis í tengslum við Heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fréttin hefur því verið upp­færð.

Hlut­að­eig­endur eru beðnir vel­virð­ingar á því að rangar upp­lýs­ingar birt­ust í fyrstu útgáfu frétt­ar­innar.

Í sam­tali við RÚV á dög­unum sagð­ist Sig­tryggur ekki vita til þess að stjórn­ar­sátt­málar á Íslandi hefðu áður verið mynd­skreyttir. Um er að ræða alls átta myndir sem fanga inni­hald sátt­mál­ans. Teymið sem sá um fram­setn­ing­una sagði nútíma­legt að mynd­skreyta stjórn­ar­sátt­mála og að fram­setn­ingin væri til marks um að við lifðum í sífellt sjón­rænni heimi og vildum bæta létt­leika inn á svið sem eru of þurr og tyrfin fyrir. Mynd­skreyttur sátt­máli væri þannig til marks um nýja tíma. 

Fram kom að aug­lýs­inga­stofan hefði fengið knappan tíma til þess að leysa verk­efnið. Það hefði komið inn á borð hennar eftir hádegi á mánu­dagi og teymið þurft að skila af sér verk­efn­inu um miðjan dag á mið­viku­degi. Stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks var kynntur fimmtu­dag­inn 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár