Óli Björn vill umbylta skattkerfinu og taka upp flatan tekjuskatt

Formaður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis vill að íslenska tekju­skatts­kerfið verði áþekk­ara því fyr­ir­komu­lagi sem tíðkast í ríkjum Austur-Evrópu.

Óli Björn vill umbylta skattkerfinu og taka upp flatan tekjuskatt
Óli Björn Kárason Vill ekki skatt­þrep, þar sem ein­stak­lingar borga mis­mik­inn tekju­skatt, heldur hugs­an­lega mis­mik­inn per­sónu­af­slátt eftir tekjum. Mynd: xd.is

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, vill að gerðar verði grund­vall­ar­breyt­ingar á skatt­kerf­inu.

Tekinn verði upp flatur tekju­skattur eins og tíðk­að­ist á árunum fyrir hrun en ein­ungis per­sónu­af­slátt­ur­inn verði nýttur til tekju­jöfn­unar, þ.e. með því að fara stig­lækk­andi eftir tekjum. Þetta kom fram í við­tali við Óla Björn í sjón­varps­fréttum RÚV í gær­kvöldi. 

„Ég hef lengi talað fyrir því að við eigum að inn­leiða hér og taka upp eitt þrep tekju­skatts og síðan getum við verið með per­sónu­af­slátt sem fari þá hugs­an­lega stig­lækk­andi eftir tekjum,“ sagði hann.

Hug­myndir Óla Björns um stig­lækk­andi per­sónu­af­slátt eru í anda sjón­ar­miða sem Flokkur fólks­ins hefur sett fram. „Í kosn­inga­bar­átt­unni, ef ég má leyfa mér að vísa til hennar, lagði Flokkur fólks­ins fram hug­myndir um að hægt væri að fram­kvæma aðgerðir til umbóta í þessu efni með því að taka upp stig­lækk­andi per­sónu­af­slátt þannig að hann félli niður við tekjur kannski kringum 1,5 millj­ónir króna, eitt­hvað slíkt,“ sagði Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, í umræðum um fyrsta fjár­laga­frum­varp sitj­andi rík­is­stjórnar. 

Flatur tekju­skattur heyrir til und­an­tekn­inga meðal þró­aðra ríkja en hefur tíðkast í Austur-Evr­ópu­ríkjum. Slíkt fyr­ir­komu­lag var við lýði á Íslandi fyrir hrun og kynti undir þróun þar sem bilið milli ríkra og fátækra breikk­aði miklu meira en í öðrum Evr­ópu­ríkjum.

„Skatt­kerfið sem við Íslend­ingar höfum búið við und­an­farin ár hefur verið það hægri­s­inn­að­asta af skatt­kerfum allra efn­aðra ríkja innan OECD,“ skrif­aði Jón Steins­son, lektor í hag­fræði við Columbia-háskóla í Banda­ríkj­unum, þegar hann fjall­aði um íslenska tekju­skatts­kerfið í pistli árið 2010.

Þetta breyt­ist þegar þrepa­skipt skatt­kerfi, stig­hækk­andi þrí­skiptur tekju­skattur, var tek­inn upp í tíð vinstri­st­jórn­ar­innar. Síðan hefur verið dregið tals­vert úr stíg­andi í skatt­lagn­ingu, meðal ann­ars með fækkun skatt­þrepa, raun­rýrnun per­sónu­af­sláttar og veik­ingu tekju­til­færslu­kerfa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár