Vildu tafarlaust afnám bókaskatts fyrir kosningar en greiddu atkvæði gegn því í gærkvöldi

Afnám bóka­skatts­ins myndi kosta rík­is­sjóð álíka mikið og stjórn­mála­flokk­arnir ætla að taka sér í formi hærri rík­is­styrkja.

Vildu tafarlaust afnám bókaskatts fyrir kosningar en greiddu atkvæði gegn því í gærkvöldi

Þingmenn stjórn­ar­meiri­hlut­ans felldu breyt­ing­ar­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar í gær­kvöldi um að gert yrði ráð fyrir afnámi virð­is­auka­skatts af bókum í fjár­lögum árs­ins 2018.

Þingmenn allra flokka á Alþingi lögðu fram sam­eig­in­legt frum­varp um afnám skatts­ins þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, en fyrsti flutn­ings­maður þess var Lilja Alfreðs­dóttir, sem nú gegnir emb­ætti mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Samkvæmt stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar verður bóka­skatt­ur­inn afnum­inn á kjör­tíma­bil­inu, en sú ráð­stöfun kemur ekki til fram­kvæmda á kom­andi fjár­laga­ári. Miðað við tekjur af virð­is­auka­skatti af bókum und­an­farin ár má ætla að afnám hans kosti rík­is­sjóð um 350 millj­ónir króna á árs­grund­velli. Þetta er álíka há fjár­hæð og meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill að útgjöld hins opin­bera vegna styrkja til stjórn­mála­flokka verði hækkuð um strax á næsta ári í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins greiddu atkvæði gegn til­lögu Ágústar Ólafs Ágústs­sonar, full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar í fjár­laga­nefnd, um afnám virð­is­auka­skatts af bókum í gær­kvöldi.

Lilja Alfreðs­dóttir, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir og Þórunn Egils­dóttir voru, fyrir fáeinum vikum, á meðal flutn­ings­manna frum­varps um að bóka­skatt­ur­inn yrði afnum­inn strax um ára­mótin, en greiddu öll atkvæði gegn afnámi bóka­skatts­ins í gær­kvöldi.

Þá greiddi einn Pírati, Jón Þór Ólafsson, einnig atkvæði gegn til­lög­unni en aðrir þing­menn Pírata og þing­menn Flokks fólks­ins, Mið­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar greiddu atkvæði með henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár