Vantar enn 645 milljónir til að Landspítalinn haldi sjó

Án frek­ari fjár­veit­inga eru hag­ræð­ing­ar­að­gerðir á Land­spít­al­anum óum­flýj­an­legar „sem ekki geta falist í öðru en sam­drætti í mönnun og þar með þjón­ustu“.

Vantar enn 645 milljónir til að Landspítalinn haldi sjó

Enn vantar 645 millj­ónir króna til rekstrar Land­spít­al­ans á árinu 2018 til að starf­semin geti hald­ist óbreytt og hægt sé að sinna nauð­syn­legri þjón­ustu við sjúk­linga, meðal ann­ars lág­marks­styrk­ingu á mönnun í hjúkrun. 

Þetta kemur fram í umsögn Land­spít­al­ans um fjár­laga­frum­varp nýrrar rík­is­stjórnar sem barst fjár­laga­nefnd Alþingis í dag.

Eins og Stundin greindi frá á dög­unum er nú gert ráð fyrir 3 millj­örðum hærri fjár­fram­lögum til sjúkra­húss­þjón­ustu á næsta ári en til stóð sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi fyrri stjórnar.

Engu að síður telja stjórn­endur Land­spít­al­ans að fjár­heim­ild­irnar sam­kvæmt nýja frum­varp­inu dugi skammt. 

„Nýtt fjár­laga­frum­varp gefur til­efni til nokk­urrar bjart­sýni hvað varðar fjár­veit­ingar til lög­boð­innar heil­brigð­is­þjón­ustu. Engu að síður er staðan sú að ef þetta frum­varp verður að lögum munu fjár­heim­ildir Land­spít­ala til rekstrar á árinu 2018 verða 1,8 millj­örðum lægri á föstu verð­lagi en árið 2008, þrátt fyrir veru­lega fjölgun og öldrun lands­manna svo og til­færslu fjöl­margra verk­efna til sjúkra­húss­ins. Slík nið­ur­staða kallar á hag­ræð­ing­ar­að­gerðir sem ekki geta falist í öðru en sam­drætti í mönnun og þar með þjón­ustu,“ segir í umsögn­inni. 

Fram kemur að matið á fjár­vöntun bygg­ist meðal ann­ars á því að fram­hald verði á biðlista­átaki, 600 millj­óna pottur vegna fram­leiðslu­tengdrar fjár­mögn­unar nýt­ist Land­spít­al­anum að fullu og að sjúkra­hótel verði fjár­magnað sér­stak­lega, en rekstr­ar­kostn­aður þess á árs­grunni sé metið á 800 millj­ónir króna.

Auk þeirra 645 millj­óna sem vantar til rekstr­ar­ins telur Land­spít­al­inn 1700 millj­ónir vanta til fjár­fest­ingar og rekst­urs fast­eigna og 405 millj­ónir til tækja­kaupa.

Bent er á að óvæntar en óum­flýj­an­legar fram­kvæmdir við end­ur­bygg­ingu hús­næðis BUGL kalli á fjár­fest­ing­ar­heim­ild upp á nálega 950 millj­ónir árið 2018. Þá vanti enn 500 millj­ónir til fyrsta áfanga breyt­inga á hús­næði geð­deilda við Hring­braut til að tryggja öryggi sjúk­linga, 1200 millj­ónir í aðrar brýnar hús­næð­is­fram­kvæmdir og 400 millj­ónir til tækja­kaupa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár