Mynd: Heiða Helgadóttir

Útgjöld hægristjórnar og útgjöld miðjustjórnar: Svona er breytingin frá frumvarpi Benedikts

Fjár­fram­lög til nær allra mál­efna­sviða verða hærri sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar heldur en gert var ráð fyrir í frum­varpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar.

Heild­ar­gjöld rík­is­sjóðs árið 2018 verða um 16 millj­örðum meiri sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar heldur en gert var ráð fyrir í frum­varpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Tekju­af­gangur rík­is­sjóðs nemur 35 millj­örðum í stað 44 millj­arða eins og áður var stefnt að. 

Mesta aukn­ing útgjalda er til heil­brigð­is­mála, en þar af verða fram­lög til sjúkra­hús­þjón­ustu um 3 millj­örðum hærri en áður stóð til. Fjár­fram­lög vegna mál­efna öryrkja og aldr­aðra verða sam­tals um 3 millj­örðum hærri og fram­lög vegna sam­göngu- og fjar­skipta­mála um 1,7 millj­örðum hærri. 

Ekki er að finna yfir­lit yfir mun­inn á frum­varpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar og frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar í grein­ar­gerð frum­varps­ins. Þar er einkum gerður sam­an­burður við fjár­lög árs­ins 2017.

Hér að neðan má hins vegar sjá töflu sem unnin er upp úr frum­vörp­unum og sýnir mun­inn á útgjöldum ólíkra mál­efna­sviða hins opin­bera. 

Gert er ráð fyrir aukn­ingu til flestra mála­flokka, en á meðal mála­flokka þar sem útgjalda­á­form fyrri rík­is­stjórnar standa óbreytt eru hús­næð­is­stuðn­ingur, vinnu­mark­aðs­mál og mál­efni dóm­stóla.

Sjá einnig:

Tekjur af grænum sköttum 4,5 millj­örðum lægri en fyrri rík­is­stjórn stefndi að

Bóka­skattur ekki afnum­inn strax þrátt fyrir „þverpóli­tíska sátt“

Varað við glanna­skap í rík­is­fjár­málum

Veikja tekju­stofna á þenslu­tímum: Boða hátt í 30 millj­arða skatta­lækk­anir

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið undanfarið ár