Vilja „bjarga heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og samgöngum frá langvinnri vanrækslu“

Katrín Jak­obs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir lögðu áherslu á upp­bygg­ingu inn­viða og efl­ingu sam­neysl­unnar í ræðum sínum í kvöld.

Vilja „bjarga heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og samgöngum frá langvinnri vanrækslu“

„Við teljum svo mik­il­vægt að laga heil­brigð­is­kerfið, sam­göng­urnar og mennta­kerfið að við tók­umst það á hendur, við Vinstri græn undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur, að efna til sam­starfs við þá flokka sem við höfum gagn­rýnt hvað mest og aldrei unnið með áður,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar, í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í kvöld. 

„Það er stundum talað um að við séum ekki að stuðla að kerf­is­breyt­ingum í þess­ari rík­is­stjórn. Það er rangt. Við erum að bjarga heil­brigð­is­kerf­inu, mennta­kerf­inu og sam­göngum frá lang­vinnri van­rækslu og ásælni pen­inga­afl­anna. Það er búið að rétta við efna­hags­lífið eftir hrunið. Eftir standa inn­við­irnir, margir hverjir van­ræktir til langs tíma. Við­fangs­efnin eru alls staðar. Þess vegna erum við hér.“ Svandís sagði nýja rík­is­stjórn leggja áherslu á að gera við sam­fé­lags­inn­við­ina en um leið að „virða sam­fé­lags­sátt­mál­ann, hefja aftur á loft þá sýn okkar flestra að eng­inn verði skil­inn eftir og vinna sam­kvæmt því“. 

Hún sagði að leggja þyrfti grunn að rót­tækri stefnu í lofts­lags­málum og umhverf­is­málum. „Við erum að efla opin­bera heil­brigð­is­kerfið, hlut aldr­aðra og öryrkja, skól­ana, tungu­tækn­ina og nátt­úru­vernd­ina. Við ætlum okkar að styrkja stöðu barna­fólks, kvenna­stétta og brota­þola kyn­ferð­is­brota. Þetta eru mik­il­vægar sam­fé­lags­um­bætur.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði einnig áherslu á upp­bygg­ingu inn­viða, heil­brigð­is­kerf­is­ins og mennta­kerf­is­ins, í stefnu­ræðu sinni. „Það er eðli­leg krafa að íslenska heil­brigð­is­kerfið stand­ist sam­an­burð við það besta sem ger­ist í heim­inum. Allir lands­menn eiga að fá notið góðrar þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu og mun rík­is­stjórnin leggja áhersla á að draga úr kostn­aði sjúk­linga, bæta geð­heil­brigð­is­þjón­ustu sér­stak­lega og for­varnir og byggja upp hjúkr­un­ar­rými,“ sagði hún. „Í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í dag er lögð sér­stök áhersla á heil­brigð­is­mál en nán­ari upp­bygg­ing hennar mun svo koma fram í þeirri fjár­mála­á­ætlun sem verður lögð fyrir þingið í lok mars á næsta ári.“

Þá sagði hún að í mennta­málum yrði ráð­ist í stór­sókn. „Fjár­fram­lög til háskóla munu ná með­al­tali OECD-ríkj­anna árið 2020 og stefnt verður að því að þau nái með­al­tali Norð­ur­land­anna fyrir árið 2025. Iðn-, verk- og starfs­nám verður eflt og rekstur fram­halds­skól­anna styrktur í takt við það sem þeim var lofað í fjár­mála­á­ætlun þar­síð­ustu rík­is­stjórnar. Aðgerða­á­ætlun um mál­tækni verður fjár­mögnuð sem er alveg gríð­ar­lega mik­il­vægt mál til að íslenskan geti orðið gjald­geng í staf­rænum heimi. Þar erum við bein­línis í kapp­hlaupi við tím­ann enda hafa tækni­fram­farir verið hraðar.“ 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár