Ólafur Helgi: „Ekkert sem bendir til að gögnum hafi verið eytt“

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum þver­tekur fyrir það að gögnum hafi verið eytt í máli Roberts Downey hjá emb­ætt­inu.

Ólafur Helgi: „Ekkert sem bendir til að gögnum hafi verið eytt“
Ólafur Helgi Kjart­ans­son lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum.

„Það er ekk­ert sem gefur vís­bend­ingu um að gögnum varð­andi þetta mál hafi verið eytt hérna við emb­ættið,“ segir Ólafur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, varð­andi eyð­ingu gagna í máli Roberts Downey, áður Róberts Árna Hreið­ars­sonar. 

Líkt og Stundin greindi frá í morgun var Önnu Katrínu Snorra­dóttur, sem kærði Robert fyrir kyn­ferð­is­brot í sumar, til­kynnt í gær að öllum gögnum í mál­inu hafi verið eytt hjá emb­ætti lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum. Málið sé bók­fært hjá lög­regl­unni 24. febr­úar 2015, en Ólafur Helgi tók við sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum í byrjun árs 2015. Ólafur Helgi þver­tekur fyrir það í sam­tali við Stundina að gögn­unum hafi verið eytt. Engum gögnum hafi verið eytt frá því hann tók við emb­ætti. Hann segir að öll gögn í mál­inu hafi verið send til Reykja­víkur á sínum tíma og að nær væri að spyrja Reyk­vík­inga hvað þeir hefðu gert við gögnin. 

Anna Katrín seg­ist í sam­tali við Stundina afar undr­andi á þessum við­brögðum lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum, enda hafi henni verið gefin þessi nákvæma dag­setn­ing, 24. febr­úar 2015 þar sem fært var til bókar að gögn­unum hafi verið eytt. „Eitt sem ég hef verið mjög hugsi yfir frá því ég fékk þessar fréttir í gær, hvers vegna var mér sagt í skýrslu­töku hjá lög­reglu að mögu­lega væru gögnin týnd eða skemmd? Hvernig vissi hann það?“ 

Steinunn Guð­bjarts­dóttir, lög­maður Önnu Katrínar, fékk einnig þær fréttir í gær, frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að gögn­unum hafi verið eytt hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum. Henni vit­andi eru engin laga­á­kvæði um að gögnum skuli eytt eftir til­tek­inn tíma. „Ég mun óska eftir skýr­ingum á því hvers vegna þessum gögnum var eytt og hvaða heim­ild liggi þar að baki,“ segir Steinunn í sam­tali við Stundina í gær. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár