Vinsælasta ríkisstjórn frá stjórn Geirs Haarde

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er studd af 78 pró­sentum lands­manna og er sú vin­sælasta síð­asta ára­tug­inn.

Vinsælasta ríkisstjórn frá stjórn Geirs Haarde
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur Mynd: Heiða Helgadóttir

Engin rík­is­stjórn hefur notið meiri stuðn­ings síð­asta ára­tug­inn en nýmynduð stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur í sam­starfi Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks.

Samkvæmt könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis styðja 78 pró­sent lands­manna rík­is­stjórn­ina en 22 pró­sent styðja hana ekki. Leita þarf aftur til rík­is­stjórnar Geirs H. Haarde, með sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar, til þess að finna við­líka stuðn­ing við rík­is­stjórn, en 83 pró­sent lands­manns studdu hana eftir að hún var mynduð í júní 2007. Árið eftir var stuðn­ing­ur­inn kom­inn niður í 52 pró­sent og við efna­hags­hrunið féll stuðn­ing­ur­inn enn meira, eða niður í 26 pró­sent áður en yfir lauk.

Báðar rík­is­stjórnir voru kynntar sem tíma­móta­stjórnir þar sem vinstri og hægri flokkur náðu saman við myndun sátta­stjórnar.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórnirRík­is­stjórn undir for­sæti Geirs H. Haarde og Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur var sú vin­sælasta á öld­inni. Núver­andi rík­is­stjórn er sú næst­vin­sælasta.

Rík­is­stjórn Katrínar hefur sett á odd­inn að „skapa sem breið­asta sam­stöðu um ýmis mál sem hafa verið deilu­mál í íslensku sam­fé­lagi,“ eins og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra orð­aði það við und­ir­ritun stjórn­ar­sátt­mál­ans.

Af stjórn­ar­sátt­mál­anum má ráða að mikið ójafn­vægi er milli útgjalda- og tekju­ráð­staf­ana í stefnu nýrrar stjórnar, þar sem boð­aðar eru skatta­lækk­anir og svo frá­hvarf frá skatta­hækk­unum á sama tíma og marg­vís­leg, veru­leg útgjalda­aukn­ing er í burð­ar­lið­unum.

VG hafði sætt gagn­rýni inn­an­flokks sem utan fyrir að hefja sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en fyrir kosn­ingar höfðu ýmsir for­sprakkar flokks­ins hvatt til upp­gjörs við flokk­inn. Í sam­tali við Frétta­blaðið undrað­ist hún stuðn­ing­inn. „Ég er auð­vitað bæði undr­andi og glöð með þennan stuðn­ing og þakk­lát fyrir þann með­byr sem við fáum í upp­hafi.“ Hún sagði þetta kalla á „enn rík­ari kröfur um að standa undir þeim vænt­ingum sem fólk hefur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár