Stóra mótsögnin: Aukin útgjöld og skattalækkanir en samt stöðugleiki og vaxtalækkun

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar boðar stór­aukin rík­is­út­gjöld án veru­legrar tekju­öfl­unar í nýjum stjórn­ar­sátt­mála.

Stóra mótsögnin: Aukin útgjöld og skattalækkanir en samt stöðugleiki og vaxtalækkun
Fjármála- og for­sæt­is­ráð­herrar Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kallar á aðila vinnu­mark­að­ar­ins að gæta hófs. Mynd: Pressphotos

Mikið ójafn­vægi er á milli útgjalda­ráð­staf­ana og tekju­ráð­staf­ana í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar. Ástæðan er sú að um er að ræða mála­miðlun milli þriggja ólíkra efna­hags­stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna.

Útkoman er mál­efna­samn­ingur þar sem ekki er aðeins lögð áhersla á gríð­ar­lega útgjalda­aukn­ingu heldur einnig skatta­lækk­anir upp á tugi millj­arða sem vega upp á móti þeim hóf­legu skatta­hækk­unum sem boð­aðar eru. 

Þannig virð­ist sem útgjalda­frekar aðgerðir verði að miklu leyti fjár­magn­aðar með ein­skipt­is­greiðslum og með því að draga úr tekju­af­gangi hins opin­bera og hægja á nið­ur­greiðslu rík­is­skulda. 

Þrátt fyrir þessa slökun á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mál­anna áréttar rík­is­stjórnin mik­il­vægi þess að „hag­stjórn stuðli að áfram­hald­andi lækkun vaxta“.  Eins og kemur þó skýrt fram í fund­ar­gerð frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans um vaxta­á­kvörðun er ljóst að ljóst að Seðla­bank­inn ætlar að herða á pen­inga­legu aðhaldi, lík­lega með hækkun vaxta, ef slakað verður á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mál­anna á næstu árum. 

Skattalækkanir á móti skattahækkunum

Af yfir­lýs­ingum og upp­taln­ingum mál­efna­samn­ings nýrrar rík­is­stjórnar má ráða að auka eigi frum­gjöld hins opin­bera um tugi millj­arða árlega á kjör­tíma­bil­inu. Á meðal fyr­ir­hug­aðra aðgerða er inn­viða­upp­bygg­ing, sam­göngu­verk­efni og mann­virkja­gerð um allt land, efl­ing heil­brigð­is­kerf­is­ins og minnkun greiðslu­þátt­töku sjúk­linga, aukið fjár­magn til háskóla­stigs­ins og lög­gæslu og kjara­bætur fyrir aldr­aða og öryrkja. 

Helstu tekju­öfl­un­ar­ráð­staf­anir stjórn­ar­sátt­mál­ans duga tæp­ast til að dekka alla útgjalda­aukn­ing­una. Þær aðgerðir sem boð­aðar eru á tekju­hlið­inni eru hækkun fjár­magnstekju­skatts úr 20 pró­sentum í 22 pró­sent, hugs­an­leg upp­taka komu­gjalda til og frá land­inu, hækkun kolefn­is­gjalds og efl­ing skatt­rann­sókna. 

Á móti kemur hins vegar að rík­is­stjórnin ætlar að lækka aðra skatta, meðal ann­ars trygg­inga­gjald og neðra þrep tekju­skatts. Þetta eru á meðal stærstu tekju­stofna hins opin­bera sem er mjög kostn­að­ar­samt að hreyfa við. Þá verður hætt við hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu sem hefði ann­ars skilað um 16 millj­arða tekjum í rík­is­sjóð. 

Samkvæmt útreikn­ingum sem gerðir hafa verið í fjár­mála­ráðu­neyt­inu myndi t.d. 1 pró­senta lækkun neðra þreps tekju­skatts kosta rík­is­sjóð um 14 millj­arða á ári. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lof­aði að lækka skatt­hlut­fallið niður í 35 pró­sent, en ætla má að slíkt kosti hátt í 30 millj­arða á ári. Ef lækkun trygg­inga­gjalds­ins á að hafa raun­veru­leg áhrif á rekstur fyr­ir­tækja hleypur kostn­að­ur­inn af slíkri lækkun einnig á millj­örðum á ári.

Slakað á aðhaldsstigi ríkisfjármálanna 

Fram kemur í stjórn­ar­sátt­mál­anum að hætt verði við hað færa ferða­þjón­ustu­tengda starf­semi upp í efra þrep virð­is­auka­skatts, en þar verður rík­is­sjóður af 16 millj­arða tekjum. Komu­gjöldin sem boðuð eru þess í stað skila varla meira en 4 millj­örðum í rík­is­sjóð á ári. 

Efna­hags­stefna vinstri- og hægri­flokka er ill­sam­rým­an­leg, en vinstri­flokkar boða gjarnan aukna skatt­heimtu og sam­neyslu meðan hægri­flokkar vilja draga úr umsvifum hins opin­bera og hlífa fyr­ir­tækjum, fjár­magns­eig­endum og laun­þegum við sköttum. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum eru farnar báðar leiðir, en engu er efna­hags­legur stöð­ug­leiki nefndur sem sér­stakt mark­mið. 

Áréttað er mik­il­vægi þess að „hag­stjórn stuðli að áfram­hald­andi lækkun vaxta“. Um leið virð­ist hins vegar standa til að draga veru­lega úr tekju­af­gangi hins opin­bera og slaka á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mála. Eins og bent er á í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar vegna síð­ustu vaxta­á­kvörð­unar Seðla­bank­ans er slökun á aðhalds­stigi hins opin­bera ávísun á að herða þurfi á aðhaldi pen­inga­stefn­unnar.

Skattalækkanir samliða útgjaldaaukningu

Frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra, Benedikt Jóhann­es­son, hafði lagt áherslu á jafn­vægi milli útgjalda og tekna í hag­stjórn­inni. Þannig áform­aði hann að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu í efra þrep virð­is­auka­skatts, 24 pró­sent, en sú hækkun átti að skila 16 millj­arða króna tekjum í rík­is­sjóð. Ný rík­is­stjórn fellur frá þeim áformum, en boðar að skoðað verði að leggja á komu- eða brott­far­ar­gjöld á ferða­fólk ásamt því að gistin­átta­gjald legg­ist á sem renni til sveit­ar­fé­lag­anna.

„Umfram allt er á kjör­tíma­bil­inu lögð áhersla á að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika“

„Umfram allt er á kjör­tíma­bil­inu lögð áhersla á að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika og að aðgerðir tengdar vinnu­mark­aði skili sér í raun­veru­legum kjara­bótum,“ segir í stjórn­ar­sátt­mál­anum, en ekki kemur fram hvernig efna­hags­legum stöð­ug­leika verður við­haldið þegar útgjöld aukast svona mikið en tekjur ekki.

Sátt um hóflegar kjarabætur lykillinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn boð­uðu fyrir kosn­ingar að ráð­ist yrði í aukna inn­viða­upp­bygg­ingu sem yrði fjár­mögnuð með 100 millj­arða eigna­tekjum sem mætti taka út úr banka­kerf­inu vegna lækk­unar eigin fjár við­skipta­bank­anna.

Að öðru leyti lagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ábyrgð­ina yfir á aðila vinnu­mark­að­ar­ins, sem hann taldi að þyrftu að taka virkan þátt í að ná sátt og tryggja stöð­ug­leika. Hins vegar varð upp­nám á vinnu­mark­aði í fyrra, þegar full­trúar kjara­ráðs, sem skip­aðir eru af Alþingi og Bjarna sem fjár­mála­ráð­herra, hækk­uðu laun þing­manna um 44 pró­sent í einni hend­ingu með ákvörðun á kjör­dag. Þannig hækk­uðu laun ráð­herra um hálfa milljón. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gagn­rýnir til dæmis í dag að þeir sem heyra undir kjara­ráð - sem er undir beinum áhrifum frá stjórn­mála­vald­inu, en ekki laun á frjálsum mark­aði - fái 95 þús­und krónum hærri des­em­ber­upp­bót en laun­þegar á almennum vinnu­mark­aði.

Af gagn­rýni for­manna stétt­ar­fé­laga er ljóst að þeim þykir að vantað hafi upp á að full­trúar stjórn­mál­anna sýndu gott for­dæmi í tak­mörkun launa­hækk­ana og útgjalda; þvert á móti leiði þeir hækk­anir á sama tíma og farið sé fram á hóf­stillta launa­þróun almennra laun­þega. 

Lesa má um fjöl­mörg og fjöl­breyti­leg áform nýrrar rík­is­stjórnar í stjórn­ar­sátt­mál­anum sem hér fer á eftir. 

Stjórnarsáttmáli 


Málefnasamningur ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, 30. nóvember 2017

Í nýrri rík­is­stjórn munu flokkar sem spanna hið póli­tíska lit­róf allt frá vinstri til hægri freista þess að slá nýjan tón, ein­henda sér í þau lyk­il­verk­efni sem koma Íslandi í fremstu röð og búa þannig um hnút­ana að hér verði gott að lifa og starfa fyrir unga sem aldna.

Á Íslandi er staðan í þjóð­fé­lags­málum um margt óvenju­leg. Tekist hefur að ná jafn­vægi í rík­is­fjár­málum en þegar horft er til inn­viða sam­fé­lags­ins og nýrra við­fangs­efna blasa við brýn og umfangs­mikil verk­efni. Efna­hagur á lands­vísu hefur vænkast hratt und­an­farin ár en gæta þarf að jafn­vægi með þjóð­inni og tæki­færum allra sem landið byggja.

Stefna þarf að stöð­ug­leika til lengri tíma og auka gagn­sæi í athafna­lífi og allri stjórn­sýslu til að efla traust almenn­ings á rekstri fyr­ir­tækja, fjár­mála­lífi, stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins. Frá efna­hags­hrun­inu hefur náðst marg­vís­legur árangur en enn skortir á þá félags­legu sátt sem þjóðin hefur lengi kallað eftir.

Að henni þarf að vinna. Um leið þarf að bregð­ast við örum þjóð­fé­lags­breyt­ingum og breyttri sýn á sam­fé­lagið á ótal sviðum en líka ójöfn­uði og umróti á heims­vísu.

Ísland getur verið sterk rödd á alþjóða­vett­vangi með því að vera fyr­ir­mynd um jafn­rétt­is­mál þar sem hægt er að gera enn betur, setja sér metn­að­ar­full lofts­lags­mark­mið, vernda ósnortin víð­erni og hlúa að nátt­úru og líf­inu í land­inu. 

Sjálfbær þróun verður í fyr­ir­rúmi við ákvarð­anir í sam­ræmi við alþjóða­skuld­bind­ingar og -mark­mið.Allar áætl­anir sem eiga að halda til lengri fram­tíðar þarf að gera í auknu sam­ráði og með bættum sam­skiptum.

Efla þarf sam­starf milli flokka á Alþingi, styrkja sjálf­stæði þings­ins, umbúnað þess, fag­legan stuðn­ing og stöðu.

Þá verður að auka sam­ráð við vinnu­mark­að­inn um sterkara  sam­fé­lag á sem flestum sviðum. Loks þarf að treysta enn sam­ráð og stuðn­ing við sveit­ar­fé­lög að því er varðar upp­bygg­ingu inn­viða, byggða­þróun og fjár­mála­leg sam­skipti. 

Óvenju­legar aðstæður kalla á breytt vinnu­brögð, opn­ari stjórn­sýslu, gagn­sæi og virð­ingu gagn­vart verk­efnum. Það er vilji flokk­anna sem nú taka þátt í sam­starfi um rík­is­stjórn og efl­ingu Alþingis að nálg­ast verk­efnin með nýjum hætti í þágu alls almenn­ings í land­inu, ekki síst með því að styrkja Alþingi með mark­vissum hætti og auka áhrif þess. 

EFLING ALÞINGIS

Lög­gjafar-, fjár­stjórnar- og eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis verður styrkt á kjör­tíma­bil­inu með auknum stuðn­ingi við nefnda­starf og þing­flokka. Auk þess vilja rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir ýta all­nokkrum verk­efnum úr vör með þverpóli­tískri nálgun og tryggja þar betur en venja er að sú fjöl­þætta þekk­ing og reynsla sem þingið býr yfir nýt­ist í þágu lands og þjóðar óháð því hvaða flokkar skipa stjórn og stjórn­ar­and­stöðu á hverjum tíma. Á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins verða settir á fót þverpóli­tískir hópar í sam­ráði við við­kom­andi fagráð­herra, m.a. um stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs, nýsköp­un­ar­stefnu, þróun mæli­kvarða um hag­sæld og lífs­gæði, orku­stefnu, stjórn­ar­skrá, fram­kvæmd og end­ur­skoðun útlend­inga­laga og fram­tíð­ar­nefnd um áskor­anir og tæki­færi vegna tækni­breyt­inga. 

Sátt þarf að ríkja um fyr­ir­komu­lag fjár­mála­kerf­is­ins til fram­tíðar. Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi verður lögð fyrir Alþingi til umfjöll­unar áður en stefnu­mark­andi ákvarð­anir verða teknar um fjár­mála­kerfið.

Meg­in­á­herslum rík­is­stjórn­ar­innar má skipta í eft­ir­far­andi flokka sem styðja hverjir aðra:

Sterkt samfélag

• Þrótt­mikið efna­hags­líf

• Umhverfi og lofts­lag

• Nýsköpun og rann­sóknir

• Jöfn tæki­færi

• Lýðræði og gagn­sæi

• Alþjóða­mál

 

STERKT SAMFÉLAG

Heilbrigðismál

Íslenska heil­brigð­is­kerfið á að stand­ast sam­an­burð við það sem best ger­ist í heim­inum. Allir lands­menn eiga að fá notið góðrar þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu. 

Rík­is­stjórnin mun full­vinna heil­brigð­is­stefnu fyrir Ísland með hlið­sjón af þörfum allra lands­manna og skil­greina betur hlut­verk ein­stakra þátta innan heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og sam­spil þeirra. Mótuð verða mark­mið og leiðir í heil­brigð­is­málum í sam­vinnu við fag­stéttir og emb­ætti land­læknis í þeim til­gangi að stuðla að góðu heil­brigði þjóð­ar­innar og skapa eft­ir­sókn­ar­verðan starfs­vett­vang fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk. Heilsu­gæslan verður efld sem fyrsti við­komu­staður not­enda. Fram­kvæmdir við nýjan með ferð­ar­kjarna Land­spít­ala munu hefj­ast næsta sumar.

Efla á nýsköpun í heil­brigð­is­málum þannig að Ísland verði í fremstu röð og nýti sér nýj­ustu tækni á þessu sviði, þ.m.t. Fjar­lækn­ingar. 

Rík­is­stjórnin ætlar að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga í heil­brigð­is­kerf­inu og gera það gagn­særra og skil­virkara. Þar þarf að meta árangur núver­andi kerfis með hlið­sjón af veikasta fólk­inu og skoða þá þætti sem eru ekki hluti af því, t.d. ferða- og uppi­halds­kostnað, tann­lækn­ingar og sál­fræði­þjón­ustu. 

Geð­heil­brigð­is­á­ætlun til 2020 verður hrint í fram­kvæmd og hún fjár­mögnuð. Geð­heil­brigð­is­þjón­usta á heilsu­gæslu­stöðvum og sjúkra- húsum úti um land verður efld og bráða- og barna- og ung­linga­geð­deildum Land­spít­al­ans verður tryggt fjár­magn til að standa undir rekstri þeirra. Heil­brigð­is­þjón­usta í fram­halds­skólum verður efld með áherslu á geð­heil­brigði. 

Ný heilbrigðisstefna

Dregið verður úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga

Geð­heil­brigð­is­á­ætlun til 2020 verður hrint í fram­kvæmd 

Rík­is­stjórnin mun leggja sér­staka áherslu á for­varnir og lýð­heilsu, meðal ann­ars í mennta­kerf­inu og heil­brigð­is­kerf­inu og með stuðn­ingi við íþróttir, æsku­lýðs­starf og öldr­un­ar­starf. Skoðuð verður beit­ing efna­hags­legra hvata til efl­ingar lýð­heilsu.

Skortur á hjúkr­un­ar­rýmum veldur auknu álagi á sjúkra­húsin og skerðir lífs­gæði aldr­aðra. Fyrir liggur að þörf fyrir upp­bygg­ingu er veru­leg á næstu fimm árum.

Ráðist verður í stór­sókn í upp­bygg­ingu og mun hún birt­ast í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Hluti fyr­ir­hug­aðs Þjóð­ar­sjóðs gæti nýst í þetta verk­efni.

Einnig verður hugað að því að styrkja rekstr­ar­grund­völl hjúkr­un­ar­heim­ila en áhersla verður einnig lögð á aðra þjón­ustu­þætti, svo sem heima­hjúkrun, dag­þjálfun og end­ur­hæf­ingu.

Menntun og vísindi

Öflugt mennta­kerfi er for­senda fram­fara og boðar rík­is­stjórnin stór­sókn í mennta­málum. Skapandi og gagn­rýnin hugsun, læsi og þátt­taka í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi verður áfram und­ir­staða íslenska skóla­kerf­is­ins. Lögð verður rík áhersla á að efla menntun í land­inu með hags­muni nem­enda og þjóð­ar­innar allrar að leið­ar­ljósi. Nýsköpun og þróun verður að efla á öllum skóla­stigum enda er menntun kjarn­inn í nýsköpun til fram­tíðar.

Mik­il­vægt er að stuðla að við­ur­kenn­ingu á störfum kenn­ara, efla fag­legt sjálf­stæði þeirra og leggja áherslu á skóla­þróun á öllum skóla­stigum. Bregðast þarf við kenn­ara­skorti í sam­starfi ríkis, sveit­ar­fé­laga og stétt­ar­fé­laga. Rík­is­stjórnin vill tryggja fram­halds­skólum frelsi og fjár­magn til eigin stefnu­mót­unar innan ramma fram­halds­skóla­laga og kanna kosti sveigj­an­legra skóla­skila.

Ráðist verður í stór­sókn í upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma  

Rík­is­stjórnin ætlar að leggja sér­stakra áherslu á list­nám og aukna tækni­þekk­ingu sem gera mun íslenskt sam­fé­lag sam­keppn­is­hæf­ara á alþjóða­vísu. Iðnnám og verk- og starfs­nám verður einnig eflt í þágu fjöl­breytni og öfl­ugra sam­fé­lags.

Jafnt aðgengi að námi óháð búsetu og öðrum aðstæð um verður meg­in­mark­mið. End­ur­skoða þarf lög­gjöf um fram­halds­fræðslu og setja skýran ramma um starf­semi mennta­stofn­ana og sam­starf við atvinnu­lífið.

Ísland nái með­al­tali OECD-ríkj­anna er varðar fjár­mögnun háskóla­stigs­ins fyrir árið 2020 og Norð­ur­landa árið 2025 í sam­ræmi við áætl­anir Vísinda- og tækni­ráðs sem mun skipta sköpum fyrir bæði kennslu og rann­sóknir í íslenskum háskólum.

Unnið verður að lausn á hús­næð­is­málum Lista­há­skóla Íslands á kjör­tíma­bil­inu.

Ráðist verður í end­ur­skoðun náms­lána­kerf­is­ins í sam­starfi við náms­manna­hreyf­ing­arnar þar sem lögð verður áhersla á jafn­rétti til náms, skil­virkni og náms­styrkja­kerfi að nor­rænni fyr­ir­mynd. 

Húsnæðismál

Öruggt hús­næði, óháð efna­hag og búsetu, er ein af grund­vall­ar­for­sendum öfl­ugs sam­fé­lags. Í því sam­hengi skiptir hvað mestu að hag­stjórn stuðli að áfram­hald­andi lækkun vaxta. Rík­is­stjórnin ætlar að beita sér fyrir umbótum í hús­næð­is­málum sem stuðla að efl­ingu og auknu jafn­vægi hús­næð­is­mark­aðar. Litið verður til ólíkra áskor­ana eftir land­svæðum í þessu sam­hengi og vanda sem stafar frá fyrri tíð.

Tryggja þarf að á hverjum tíma séu aðgengi­legar grein­ingar og töl­fræði um hús­næð­is­fram­boð og -þörf út frá lýð­fræði­legri þróun og skipu­lags­for­sendum.

Skamm­tíma­leiga íbúð­ar­hús­næðis til ferða­manna hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum og hefur sú þróun haft afger­andi áhrif á hús­næð­is­markað víða um land.  

Setja þarf skýr­ari reglur um slíka starf­semi, í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lögin og ferða­þjón­ust­una, ásamt því að efla eft­ir­lit með leyf­is­lausri starf­semi. Kanna þarf for­sendur þess að sveit­ar­fé­lög hafi rík­ari heim­ildir til að stýra leigu­mark­aði.

Stuðla þarf að bættu aðgengi lands­manna að öruggu hús­næði með efl­ingu stuðn­ings­kerfa og sam­ræmdri stefnu­mörkun í upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis, auknu gagn­sæi á leigu­mark­aði og auk­inni upp­lýs­inga­gjöf um hús­næð­is­mál.

Rík­is­stjórnin mun fara í aðgerðir sem lækka þrösk­uld ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­mark­að­inn.

Í því augna­miði verða stuðn­ings­kerfi hins opin­bera end­ur­skoðuð þannig að stuðn­ing­ur­inn nýt­ist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal ann­ars verða skoð­aðir mögu­leikar á því að hægt verði að nýta líf­eyr­is­sparnað til þessa. 

Í sam­skiptum ríkis og sveit­ar­fé­laga um tekju­stofna og fjár­hags­mál verður aukið lóða­fram­boð og gjald­taka vegna nýbygg­inga á dag­skrá ásamt því að yfir­fara stjórn­sýslu vegna bygg­inga­fram­kvæmda. Styðja þarf áfram við leigu­fé­lög sem eru rekin á félags­legum for­sendum án hagn­að­ar­sjón­ar­miða með stofn­styrkjum rík­is­ins.

Rík­is­stjórnin mun taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum en sam­hliða þeim verður ráð­ist í mót­væg­is­að­gerðir til að standa vörð um mögu­leika ungs fólks og tekju­lágra til að eign­ast hús­næði.

Sérstök áhersla verður lögð á að gæta efna­hags­legs stöð­ug­leika. Rík­is­stjórnin vill enn fremur skapa hvata og stuðn­ing til þess að heim­ili sem það kjósa geti breytt verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð.

Fast­eigna­verð er liður í neyslu­vísi­tölu hér á landi og mikil hækkun þess á und­an­förnum árum hefur af þeim sökum leitt til þess að höf­uð­stóll verð­tryggðra lána hefur hækkað meira en ella. Rík­is­stjórnin mun hefja skoðun á því hvernig megi fjar­lægja fast­eigna­verð úr mæl­ingu neyslu­vísi­töl­unnar. 

Byggðamál

Mikil verð­mæti fel­ast í því að landið allt sé í blóm­legri byggð. Lands­menn eiga að hafa jafnan aðgang að þjón­ustu, atvinnu­tæki­færum og lífs­kjörum um land allt. Rík­is­stjórnin mun auka sam­ráð við sveit­ar­fé­lögin um verk­efni þeirra og fjár­hags­leg sam­skipti. Skil­greina þarf hlut­verk lands­hluta­sam­taka og styrk sveit­ar­fé­laga til að rísa undir nauð­syn­legri þjón­ustu.

Sókn­ar­á­ætl­anir lands­hlut­anna eru mik­il­vægt tæki til að reka byggða­stefnu á for­sendum heima­manna. Þær verða styrktar á kjör­tíma­bil­inu. Horft verður til byggða­að­gerða sem tíðkast í nágranna­lönd­unum en um leið verður svæð­is­bundin þekk­ing nýtt sem best. Skoðaðir verða kostir þess að nýta náms­lána­kerfið og önnur kerfi sem hvata fyrir fólk til að setj­ast að í dreifðum byggðum. Ráðu­neytum og stofn­unum verður falið að skil­greina störf og aug­lýsa þau án stað­setn­ingar eins og kostur er.

Rík­is­stjórnin mun hefja sam­starf við sveit­ar­fé­lögin um gerð þjón­ustu­korts sem sýnir aðgengi lands­manna að allri almennri þjón­ustu hins opin­bera og einka­að­ila til að bæta yfir­sýn og þar með skapa grund­völl fyrir aðgerðir til að tryggja íbúum þjón­ustu og jafna kostnað.

Flutn­ings- og dreifi­kerfi raf­orku verður að mæta betur þörfum atvinnu­lífs og almenn­ings alls staðar á land­inu. 

Upp­bygg­ing kerf­is­ins getur stutt við áætl­anir um orku­skipti sem miða að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, t.d. með því að hraða þrí­fösun raf­magns, með varma­dælu­væð­ingu á köldum svæðum, innviðum fyrir raf­bíla og raf­væð­ingu hafna.

Kannaðar verða leiðir til að setja skil­yrði við kaup á landi sem taka mið af stefnu stjórn­valda um þróun byggðar, land­nýt­ingu og umgengni um auð­lindir. 

Samgöngur og fjarskipti

Brýn verk­efni blasa við í inn­viða­upp­bygg­ingu um land allt. Þar má nefna verk­efni í sam­göngum, fjar­skiptum, veitu­kerfum og annarri mann­virkja­gerð. Svigrúm er á næstu árum til að nýta eigna­tekjur rík­is­ins í slík verk­efni og tryggja þannig þá traustu inn­viði sem eru for­sendan fyrir fjöl­breyttu og kröft­ugu atvinnu­lífi um land allt.

Rík­is­stjórnin vill hraða upp­bygg­ingu í vega­málum og öðrum sam­göngu­innviðum bæði með nýfram­kvæmdum og við­haldi. Við for­gangs­röðun í vega­málum verður sér­stak­lega litið til ólíkrar stöðu svæða, ferða­þjón­ustu og örygg­is­sjón­ar­miða.

Unnið verður að því að gera inn­an­lands­flug að hag­kvæm­ari kosti fyrir íbúa lands­byggð­anna. Áfram þarf að byggja upp almenn­ings­sam­göngur um land allt og stutt verður við borg­ar­línu í sam­starfi við Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Auka þarf mögu­leika gang­andi og hjólandi veg­far­enda í þétt­býli. Huga þarf að mögu­leikum til að opna fleiri hlið inn til lands­ins og fjölga þannig þeim svæðum sem geta notið góðs af ferða­þjón­ustu.

Ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins verður lokið árið 2020 sem eykur lífs­gæði og fjölgar tæki­færum lands­manna til að skapa atvinnu. Rík­is­stjórnin vill að Ísland verði áfram í fremstu röð þegar kemur að fjar­skipta- og upp­lýs­inga­tækni og leggur áherslu á aukið sam­starf fjar­skipta­að­ila um upp­bygg­ingu grunn­inn­viða.

Löggæsla

Öflug lög­gæsla er ein af for­sendum þess að öryggi borg­ar­anna sé tryggt. Drög að nýrri lög­gæslu­á­ætlun fyrir Ísland liggja fyrir þar sem tekið er á örygg­is­stigi, þjón­ustu­stigi, mann­afla­þörf og fjár­veit­ingum.

Ljúka þarf gerð þess­arar áætl­unar og vinna í sam­ræmi við hana. Fleiri ferða­menn kalla á aukið fjár­magn og styrkja þarf mið­há­lend­is­lög­gæslu yfir háanna­tíma. Tryggja þarf Land­helg­is­gæsl­unni nægi­legt fjár­magn til að rækja starf sitt.

Snúa þarf af braut harðra refs­inga fyrir neyslu fíkni­efna en styrkja aðgerðir gegn fíkni­efna­sölum, inn­flutn­ingi og fram­leiðslu fíkni­efna. Tryggja þarf fíklum við­un­andi með­ferð­ar­úr­ræði með sam­vinnu dóms-, félags- og heil­brigð­is­kerfis.

Menning, skapandi greinar og íþróttir 

Aðgengi að menn­ingu er mik­il­vægur þáttur þess að lifa í frjálsu sam­fé­lagi. Þess vegna skiptir máli að allir lands­menn geti notið lista og menn­ingar og tekið þátt í slíku starfi. Hlutverk stjórn­valda er að skapa skil­yrði fyrir fjöl­breytni, sköpun og frum­kvæði á sviði lista og menn­ing­ar­arfs.

Unnin verður aðgerða­á­ætlun á grund­velli sam­þykktrar menn­ing­ar­stefnu.

Á kjör­tíma­bil­inu verður sér­stak­lega hugað að því að styrkja starf­semi höf­uð­safn­anna þriggja. Þar á meðal verður Nátt­úru­minja­safn Íslands styrkt til að opna eigin sýn­ingu og gert ráð fyrir fram­tíð­ar­hönnun fyrir nýtt safn í fjár­mála­á­ætlun til fimm ára. 

Hugað verður að breyt­ingum á skatt­lagn­ingu á tón­list, íslenskt rit­mál og fjöl­miðla. Fyrsta skref verður að afnema virð­is­auka­skatt á bókum. Ráðist verður í gerð hag­vísa fyrir menn­ingu, listir og skap­andi greinar. Áfram verður unnið að því að efla skap­andi greinar sem vax­andi atvinnu­veg á

Íslandi. Höf­unda­greiðslur sem við­ur­kennd rétt­hafa­sam­tök inn­heimta verða skatt­lagðar sem eigna­tekjur.

Áfram verður unnið að því að styrkja fag­lega starfs­launa og verk­efna­sjóði lista­manna. Íþróttir og æsku­lýðs­starf gegna veiga­miklu hlut­verki í far­sælu og heil­brigðu sam­fé­lagi. Áfram verður unnið með félaga­sam­tökum á þessu sviði að upp­bygg­ingu gras­rótar og afreks­starfs. Unnið verður með Reykja­vík­ur­borg og íþrótta­hreyf­ing­unni að upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs í Laug­ar­dal. 

ÞRÓTTMIKIÐ EFNAHAGSLÍF

Efna­hags­legur styrkur er und­ir­staða þess að treysta megi til fram­tíðar sam­fé­lags­legan stöð­ug­leika, vel­sæld og lífs­gæði. Rík­is­stjórnin mun leggja áherslu á traustar und­ir­stöður í rík­is­fjár­málum sem gefa tæki­færi til að byggja upp og búa í hag­inn fyrir kom­andi kyn­slóðir. Nefnd um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar mun ljúka störfum og í kjöl­farið verða gerðar nauð­syn­legar breyt­ingar á ramma stefn­unnar.

Rík­is­stjórnin leggur áherslu á fjöl­breytt atvinnu­líf og að Ísland búi sig undir að mæta þeim áskor­unum og nýta þau tæki­færi sem fel­ast í sífellt örari tækni­breyt­ingum.

Þeim munu fylgja nýjar kröfur um menntun og hæfni starfs­fólks og að til staðar sé umhverfi sem hvetur til nýsköp­unar á öllum sviðum, þ.m.t. hjá hinu opin­bera og í rót­grónum greinum.

Þjóð­ar­sjóður verður stofn­aður utan um arð af auð­lindum lands­ins og byrjað á orku­auð­lind­inni. Hlutverk sjóðs­ins verður að byggja upp við­nám til að mæta fjár­hags­legum áföllum. Afmark­aður hluti ráð­stöf­un­ar­fjár sjóðs­ins verður not­aður til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprota­fyr­ir­tækja. Með því verður fræjum sáð til efl­ingar nýrra vel laun­aðra starfa í fram­tíð­inni. Einnig verður hluti nýttur til átaks í upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma fyrir elstu kyn­slóð­ina. 

Vinnumarkaður

Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir sam­stilltu átaki með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins til að tryggja að kjara­samn­ingar skili launa­fólki og sam­fé­lag­inu raun­veru­legum ávinn­ingi. Sátt á vinnu­mark­aði er nauð­syn­leg for­senda þess að stuðla að stöð­ugu verð­lagi og jafn­vægi og skapa þannig efna­hags­leg skil­yrði til lægra vaxta­stigs og bættra lífs­kjara.

Rík­is­stjórnin vill vinna með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að ábyrgum vinnu­mark­aði. Innleiða þarf ákvæði um keðju­á­byrgð í ólíkum atvinnu­greinum, vinna gegn kyn­bundnum launa­mun, félags­legum und­ir­boðum, man­sali og kenni­tölu­flakki og efla vinnu­eft­ir­lit. 

Skattar

Launa­hækk­anir und­an­far­inna ára ásamt hækk­uðu líf­eyr­is­fram­lagi atvinnu­rek­enda og sterkara gengi gjald­mið­ils­ins hafa dregið úr sam­keppn­is­hæfni atvinnu­lífs­ins, einkum útflutn­ings­greina. Mik­il­vægt er að stjórn­völd og vinnu­mark­að­ur­inn leiti leiða til að styrkja sam­keppn­is­stöðu íslensks atvinnu­lífs sam­hliða því að halda áfram að bæta kjör almenn­ings í þeirri kjara­samn­inga­gerð sem stendur fyrir dyrum. Til að styðja við far­sæla nið­ur­stöðu hyggst rík­is­stjórnin leggja áherslu á lækkun tekju­skatts í neðra skatt­þrepi. Þá er það einnig for­gangs­mál á kjör­tíma­bil­inu að lækka trygg­inga­gjald. 

Umfram allt er á kjör­tíma­bil­inu lögð áhersla á að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika og að aðgerðir tengdar vinnu­mark­aði skili sér í raun­veru­legum kjara­bótum.

Af þeim sökum mun það ráð­ast af heild­ar­nið­ur­stöðu kjara­við­ræðna á kom­andi miss­erum hvernig hægt verður að tíma­setja og hrinda í fram­kvæmd fram­an­greindum mark­miðum.

 Fjár­magnstekju­skattur verður hækk­aður í 22% í upp­hafi kjör­tíma­bils í því mark­miði að gera skatt­kerfið rétt­lát­ara óháð upp­runa tekna. Samhliða verður skatt­stofn fjár­magnstekju­skatts tek­inn til end­ur­skoð­unar. 

Til að bæta alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni Íslands mun rík­is­stjórnin end­ur­meta fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­ur­greiðslum. 

Áform um hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu verða lögð til hliðar en aðrar leiðir til gjald­töku kann­aðar í sam­ráði við grein­ina, m.a. mögu­leikar á álagn­ingu komu eða brott­far­ar­gjalds. Gistin­átta­gjald fær­ist yfir til sveit­ar­fé­laga á kjör­tíma­bil­inu í tengslum við við­ræður ríkis og sveit­ar­fé­laga um end­ur­skoðun tekju­stofna. 

Gjaldinu verður breytt þannig að það verði hlut­falls­legt. Hugað verður að breyt­ingum á skatt­lagn­ingu á tón­list, íslenskt rit­mál og fjöl­miðla. Fyrsta skref verður að afnema virð­is­auka­skatt á bókum. Höf­unda­greiðslur sem við­ur­kennd rétt­hafa­sam­tök inn­heimta verða skatt­lagðar sem eigna­tekjur.

Tímabært er að huga að heild­ar­end­ur­skoðun gjald­töku í sam­göngum, svoköll­uðum grænum sköttum og skattaí­viln­unum, þannig að skatt­heimtan þjóni lofts­lags­mark­miðum. 

Kolefn­is­gjald verður hækkað um 50% strax í upp­hafi kjör­tíma­bils og verður svo áfram hækkað á næstu árum í takt við vænt­an­lega aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum.

Und­an­þágum frá kolefn­is­gjaldi verður fækkað.

Skatt­rann­sóknir verða efldar sam­hliða því að vinna með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að ábyrg­ari vinnu­mark­aði. Áfram­hald­andi áhersla þarf að vera á alþjóð­legt sam­starf gegn skatt­und­anskotum og skattsvikum þannig að Ísland skipi sér í fremstu röð ríkja sem berj­ast gegn skatta­skjólum. 

Landbúnaður

Ísland á að vera leið­andi í fram­leiðslu á heil­næmum land­bún­að­ar­af­urðum.

Lögð verður áhersla á nýsköpun og vöru­þróun til að stuðla að byggða­festu, auka verð­mæta­sköpun og nýta tæki­færi sem byggj­ast á áhuga á mat­ar­menn­ingu með sjálf­bærni og gæði að leið­ar­ljósi. 

Meg­in­mark­miðið er að land­bún­aður á Íslandi sé sjálf­bær og vernd búfjár­stofna sé tryggð. Eitt af fyrstu verk­efnum rík­is­stjórn­ar­innar verður að bregð­ast við vanda sauð­fjár­bænda til skemmri og lengri tíma. Samhliða nýrri kyn­slóð land­bún­að­ar­samn­inga verða inn­leiddir sér­stakir aðlög­un­ar­samn­ingar um nýja starf­semi til sveita.

Með þeim verður rudd braut fyrir bændur til að byggja upp nýjar búgreinar eða hasla sér völl á öðrum sviðum.

Slíkir aðlög­un­ar­samn­ingar til búhátta­breyt­inga verða tíma­bundnir og háðir skil­yrðum um byggða­festu, verð­mæta­sköpun og búsetu við­kom­andi jarðar og geta stuðlað að nýsköpun, nátt­úru­vernd og nýjum áherslum í rann­sóknum og menntun.

Forsenda þess að land­bún­aður geti nýtt tæki­færi fram­tíð­ar­innar er jafn­vægi í fram­leiðslu, skil­virkt eft­ir­lit og nýsköpun. Rík­is­stjórnin ætlar að tryggja betur rétt neyt­enda til upp­lýs­inga um upp­runa, fram­leiðslu­hætti, lyfja­notkun og umhverf­is­á­hrif. 

Rík­is­stjórnin mun ráð­ast í aðgerðir til að þróa líf­hag­kerfið enn frekar, grænar lausnir og aðferðir til að draga úr umhverf­is­á­hrifum mat­væla­fram­leiðslu með hvötum og stuðn­ingi sem miði meðal ann­ars að kolefn­is­jöfnun grein­ar­innar.

Efla þarf sér­stak­lega líf­rænan land­búnað. 

Sjávarútvegur

Íslenskur sjáv­ar­út­vegur stendur mjög fram­ar­lega á alþjóða­vísu vegna þeirrar áherslu sem lögð er á sjálf­bæra auð­linda­nýt­ingu, rann­sóknir og þróun.

Tryggja þarf sam­keppn­is­hæfni sjáv­ar­út­vegs á alþjóð­legum mörk­uðum og að hann geti áfram staðið að nýsköpun og vöru­þróun til að auka virði afurð­anna. Einnig þarf að stuðla að kolefn­is­jöfnun grein­ar­innar, til dæmis með auknum rann­sóknum á end­ur­nýj­an­legri orku fyrir flot­ann. Haf­rann­sóknir gegna lyk­il­hlut­verki fyrir sjálf­bæra auð­linda­nýt­ingu og þær þarf að efla. Við end­ur­skoðun laga um veiði­gjöld þarf að hafa það meg­in­mark­mið að tryggja þjóð­inni rétt­látan hlut af arð­semi auð­lind­ar­innar og að þau taki til­lit til afkomu. Auð­linda­gjöld eiga ann­ars vegar að vera greiðsla fyrir aðgang að tak­mark­aðri auð­lind og hins vegar arð­greiðslur af nýt­ingu hennar. 

Mik­il­vægt er að efla hinar dreifðu sjáv­ar­byggðir og við­halda fjöl­breytni í vaxt­ar­mögu­leikum til að tryggja afkomu­ör­yggi þeirra. Vega þarf og meta fyr­ir­komu­lag þeirra afla­heim­ilda sem ríkið fer með for­ræði yfir, þ.m.t. Strand­veiða, með það að mark­miði að tryggja betur byggða­festu og nýliðun.

Fiskeldi er vax­andi atvinnu­grein sem felur í sér tæki­færi til atvinnu­upp­bygg­ingar en þarf að byggja upp með ýtr­ustu varúð í sam­ræmi við ráð­gjöf vís­inda­manna þannig að líf­fræði­legri fjöl­breytni verði ekki ógnað. Samhliða vexti grein­ar­innar þarf að tryggja nauð­syn­legar rann­sóknir og eðli­lega vöktun áhrifa á líf­ríkið. Eftir því sem fisk­eld­inu vex fiskur um hrygg þarf að ræða fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag gjald­töku vegna leyf­is­veit­inga.

Ferðaþjónusta

Mörkuð verður lang­tíma­stefna um ferða­þjón­ustu í sam­vinnu við hags­muna­að­ila með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi.

Aukin dreif­ing ferða­manna um landið er mik­il­væg með hlið­sjón af nátt­úru­vernd og byggða­sjón­ar­miðum. Styðja þarf við mark­aðs­stofur lands­hlut­anna. Lögð verður áhersla á grein­ingu þol­marka frá sjón­ar­hóli nátt­úr­unnar, sam­fé­lags­ins og efna­hags­lífs­ins. Metin verður þörf fyrir aðgangs­stýr­ingu á ferða­manna­stöðum í opin­berri eigu eða umsjón auk þess sem mögu­legt er að beita frið­lýs­ingum sem stjórn­tæki á við­kvæmum svæðum. Ljúka þarf vinnu sem hafin er við að leysa úr árekstrum almanna­réttar og ferða­þjón­ustu.

Stutt verður mynd­ar­lega við rann­sóknir í grein­inni sem og upp­bygg­ingu inn­viða og land­vörslu. Gæta þarf að því að upp­bygg­ing bitni ekki á aðdrátt­ar­afli svæða og tryggja að áfram verði til fáfarin svæði, bæði til verndar nátt­úru og vegna upp­lif­unar ferða­manna. 

Áform um hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu verða lögð til hliðar en aðrar leiðir til gjald­töku kann­aðar í sam­ráði við grein­ina, m.a. mögu­leikar á álagn­ingu komu eða brott­far­ar­gjalds. Mótuð verður eig­enda­stefna fyrir ISAVIA. 

Fjármálakerfið

Fjár­mála­kerfið á að vera traust og þjóna sam­fé­lag­inu á hag­kvæman og sann­gjarnan hátt. Eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum er það umfangs­mesta í Evrópu og vill rík­is­stjórnin leita leiða til að draga úr því. Ljóst er þó að rík­is­sjóður verður leið­andi fjár­festir í að minnsta kosti einni kerf­is­lega mik­il­vægri fjár­mála­stofnun.

Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi verður lögð fyrir Alþingi til umfjöll­unar áður en stefnu­mark­andi ákvarð­anir verða teknar um fjár­mála­kerfið.

Leið­ar­ljósin í vinnu við hvít­bók­ina verða aukið traust á íslenskum fjár­mála­mark­aði, aukið gagn­sæi og fjár­mála­stöð­ug­leiki.

Þótt mik­il­vægar umbætur hafi verið gerðar á lagaum­hverfi fjár­mála­fyr­ir­tækja er brýnt að gera betur. 

Eign­ar­hald á kerf­is­lega mik­il­vægum fjár­mála­stofn­unum verður að vera gagn­sætt. Rík­is­stjórnin vill að unnið verði að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu með það að leið­ar­ljósi að lækka kostnað neyt­enda. Mik­il­vægt er að dregið sé úr áhættu vegna óskyldra þátta í starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Í mótun að fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lagi skal sér­stak­lega litið til ann­arra lít­illa opinna hag­kerfa og reynslu ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. 

UMHVERFI OG LOFTSLAG

Loftslagsmál

Leið­ar­ljós lofts­lags­stefnu Íslands er stefnumið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins frá 2015 um að tak­marka hækkun með­al­hita­stigs and­rúms­lofts jarðar við 1,5°C.

Meg­in­for­senda lofts­lags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar er að koma í veg fyrir nei­kvæð áhrif lofts­lags­breyt­inga á líf­ríki hafs­ins. Hvergi í heim­inum hefur hita­stigs­hækkun orðið jafn­mikil og á norð­ur­slóðum. Þannig á Ísland að efla rann­sóknir á súrnun sjávar í sam­ráði við vís­inda­sam­fé­lagið og sjáv­ar­út­veg­inn. Ísland á enn fremur að ná 40% sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda miðað við árið 1990 fyrir árið 2030. 

Rík­is­stjórnin vill gera betur en Par­ís­ar­sam­komu­lagið gerir ráð fyrir og stefna að kolefn­is­hlut­lausu Íslandi í síð­asta lagi árið 2040. Kolefn­is­hlut­leysi verði náð með var­an­legum sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en einnig með breyttri land­notkun í sam­ræmi við alþjóð­lega við­ur­kennda staðla og með hlið­sjón af vist­kerf­isnálgun og skipu­lags­sjón­ar­miðum.

Stutt verður við atvinnu­greinar, fyr­ir­tæki, stofn­anir og sveit­ar­fé­lög í þeirri við­leitni að setja sér lofts­lags­mark­mið.

Rík­is­stjórnin stefnir að því að allar stærri áætl­anir rík­is­ins verði metnar út frá lofts­lags­mark­miðum. Íviln­anir til nýfjár­fest­inga bygg­ist á því að verk­efnin hafi verið metin út frá lofts­lags­á­hrifum og alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands um sam­drátt í gróð­ur­húsa­loft­teg­undum.

Lögð verður áhersla á þátt­töku allra geira sam­fé­lags­ins og almenn­ings í að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stutt við nýsköpun á þessu sviði. 

Lofts­lags­ráð verður sett á lagg­irnar og aðgerða­á­ætlun um sam­drátt í losun verður tíma­sett og fjár­mögnuð. Í aðgerða­á­ætlun verða meðal ann­ars sett mark­mið um sam­göngur og hlut­fall öku­tækja sem ganga fyrir vist­vænni orku í bíla­flota lands­manna, orku­nýtni í atvinnu­líf­inu, inn­leið­ingu alþjóð­legra samn­inga um vernd hafs­ins, græn skref í rík­is­rekstri og lofts­lags­sjóð og stefnt að banni við notkun svartolíu í efna­hags­lög­sögu Íslands. 

Gengið verður til sam­starfs við sauð­fjár­bændur um kolefn­is­jöfnun grein­ar­innar í sam­ræmi við aðgerða­á­ætlun þar um. Einnig verður unnið með öðrum atvinnu­greinum að sam­bæri­legum verk­efnum. 

Umhverfis- og auðlindamál

Stofn­aður verður þjóð­garður á mið­há­lend­inu í sam­ráði þverpóli­tískrar þing­manna­nefndar, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins, sveit­ar­fé­laga, nátt­úru­verndar- og úti­vist­ar­sam­taka og ann­arra hags­muna­að­ila. Skoðaðir verða mögu­leikar á þjóð­görðum á öðrum svæðum.

For­gangs­verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar verður að nýta með sem hag­kvæmustum hætti þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim til­gangi þarf að treysta betur flutn­ings- og dreifi­kerfi raf­orku í land­inu, tengja betur lyk­il­svæði og tryggja afhend­ingar­ör­yggi raf­orku um land allt.

Skoðað verði að hve miklu leyti má nýta jarð­strengi í þessar teng­ingar með hag­kvæmum hætti. Ekki verður ráð­ist í línu­lagnir yfir hálendið.

Ljóst er að stjórn­sýslu­með­ferð ákvarð­ana sem tengj­ast línu­lögnum hefur tekið veru­legan tíma vegna ýmissa þátta. Mik­il­vægt er að hraða máls­með­ferð þar sem það er hægt sam­kvæmt gild­andi lögum, t.d. með því að styrkja úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála. Þá eru rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sam­mála um að end­ur­skoða á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins ákvæði um aðgang sam­taka almenn­ings að ákvörð­unum á sviði umhverf­is­mála með það að mark­miði að sá réttur sé tryggður á fyrri stigum leyf­is­veit­ing­ar­ferlis og máls­með­ferð geti þannig orðið skil­virk­ari án þess að gengið sé á þennan rétt. Þá verði þjóð­rétt­ar­skuld­bind­ingum Íslands sam­kvæmt Árósa­samn­ingnum komið til fram­kvæmda. 

Setja þarf lög um vind­orku­ver ásamt því að vinna með sveit­ar­fé­lögum leið­bein­ingar um skipu­lags­á­kvarð­anir og leyf­is­veit­ingar.

Lang­tíma­orku­stefna verður sett á kjör­tíma­bil­inu í sam­ráði við alla þing­flokka.

Í orku­stefnu verði byggt á áætl­aðri orku­þörf til langs tíma miðað við stefnu stjórn­valda, til að mynda um orku­skipti, og hvernig megi tryggja raf­orku­fram­boð fyrir almenn­ing og atvinnu­líf. Eig­enda­stefna Lands­virkj­unar mun taka mið af orku­stefn­unni.

Sérstök áhersla verður lögð á frið­lýs­ingar kosta í vernd­ar­flokki ramma­á­ætl­unar auk vernd­ar­svæða í sam­ræmi við nátt­úru­vernd­ar­á­ætlun með hlið­sjón af áformum um stofnun þjóð­garðs á mið­há­lend­inu.

Með bók­haldi nátt­úru­auð­linda er hægt að auka yfir­sýn yfir auð­lindir lands­ins og skil­greina nýt­ingu þeirra með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi.

Ráðist verður í lang­tíma­á­tak gegn einnota plasti með sér­stakri áherslu á fyr­ir­byggj­andi aðgerðir og hreinsun plasts úr umhverfi lands og stranda.

Gera þarf átak í frá­veitu­málum í sam­starfi ríkis og sveit­ar­fé­laga en veru­leg þörf er á upp­bygg­ingu í þessum mála­flokki.

Dýralíf á Íslandi er hluti af íslenskri nátt­úru sem ber að vernda. Náttúran er auk þess stærsta aðdrátt­ar­afl Íslands fyrir ferða­menn. End­ur­skoða þarf lög­gjöf um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spen­dýrum. 

Nýsköpun og rannsóknir

Nýsköpun og hvers konar hag­nýt­ing hug­vits er mik­il­væg for­senda fjöl­breytts atvinnu­lífs, sterkrar sam­keppn­is­stöðu, hag­vaxtar og vel­ferðar þjóða, ekki síst í ljósi þeirra þjóð­fé­lags­breyt­inga sem vænta má í atvinnu- og mennta­málum vegna örra tækni­breyt­inga. Hluti fyr­ir­hug­aðs Þjóð­ar­sjóðs mun renna til verk­efna á þessu sviði.

Mótuð verður heild­stæð nýsköp­un­ar­stefna fyrir Ísland í sam­starfi við full­trúa stjórn­mála­flokka og í nánu sam­ráði við atvinnu­lífið og vís­inda­sam­fé­lagið.

Þá stefnu þarf einnig að vinna í sam­ráði við skóla­sam­fé­lagið þar sem nýsköp­un­ar­stefnan verður sam­þætt við fram­tíð­ar­sýn í mennta­málum, frá leik­skóla til háskóla. Rík­is­stjórnin mun fylgja eftir aðgerðum í nýlegri aðgerða­á­ætlun Vísinda- og tækni­ráðs og meðal ann­ars láta vinna veg­vísi um rann­sókn­ar­inn­viði. Rík­is­stjórnin mun vinna að því að skil­yrði hér á landi fyrir frum­kvöðla og sprota­fyr­ir­tæki verði fram­úr­skar­andi. Ljóst er að ein­falda þarf starfs­um­hverfi þeirra, efla stoð­kerfið, auka aðgengi að fjár­magni og erlendum sér­fræð­ingum og styðja við sókn á alþjóða­vett­vangi.

Til að bæta alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni Íslands mun rík­is­stjórnin end­ur­meta fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­ur­greiðslum. Áfram verður stutt mynd­ar­lega við sam­keppn­is­sjóði í sam­ræmi við stefnu Vísinda- og tækni­ráðs. 

Lögð verður áhersla á að hvetja til nýsköp­unar á sviði opin­berrar þjón­ustu og stjórn­sýslu, vel­ferð­ar­þjón­ustu og verk­efna í þágu lofts­lags­mark­miða. Umgjörð og tæki­færi hóp­fjár­mögn­unar verða skoðuð og starf­semi Nýsköp­un­ar­sjóðs atvinnu­lífs­ins end­ur­skoðuð á grunni vænt­an­legrar nið­ur­stöðu starfs­hóps um hana.  

Kannaðir verða mögu­leikar Íslands­stofu til að kynna Ísland betur sem heima­höfn rann­sókna- og þró­un­ar­verk­efna. Sett verður af stað vinna við að und­ir­búa klasa­stefnu fyrir Ísland þar sem unnið er með styrk­leika ólíkra atvinnu­greina í sam­vinnu mennta­kerfis, rann­sókna­stofn­ana, atvinnu­lífs, sveit­ar­fé­laga og ann­arra hags­muna­að­ila. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár