Stundarskráin 8.–21. desember

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu tvær vik­urnar.

Stundarskráin 8.–21. desember

Jólatónleikar Eivarar

Hvar? Harpa
Hvenær? 8. des­em­ber kl. 20.30
9. des­em­ber kl. 17.00 og 20.30
10. des­em­ber kl. 18.00 og 20.30
Aðgangs­eyrir: 8.990 kr.

Hin mik­il­feng­lega fær­eyska ný-folk tón­list­ar­stjarna, Eivør, heldur sína fyrstu jólatón­leika á Íslandi þar sem hún flytur upp­á­hald­s­jóla­lögin sín og fleiri lög. Ísland hefur verið hennar annað heim­ili og hún hefur eign­ast marga aðdá­endur hér með tign­ar­legu rödd sinni og sviðs­fram­komu. Hún kemur fram með hljóm­sveit, strengja­kvar­tett og vel völdum gestum.

Jólamarkaður PopUp verzlunar

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 9. des­em­ber kl. 11.00–17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Port Hafn­ar­húss­ins verður enn annað árið yfir­tekið af PopUp verzluninni, en í ár taka 43 hönn­uðir og mynd­list­ar­menn þátt og bjóða valdar vörur og lista­verk til sölu sem henta ein­stak­lega vel í jóla­pakk­ann fyrir list­unn­endur lands­ins. 

Jólin tala tungum

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 9. des­em­ber kl. 14.00–16.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr. á barn

Í þess­ari jóla­smiðju fyrir fjöl­skyldur er fil­ip­p­eyskt jóla­föndur og jóla­hefðir tekin fyrir, en smiðjan fer bæði fram á íslensku og fil­ip­p­eysku. Þetta er þriðja og síð­asta fjöl­skyldu­smiðjan fyrir jól þar sem lögð er áhersla á að kynn­ast jóla­siðum og föndri frá mis­mun­andi löndum og menn­ing­ar­heimum.

Jólagestir Björgvins 2017

Hvar? Harpa
Hvenær? 10. des­em­ber kl. 17.00 og 21.00
11. des­em­ber kl. 21.00
12. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frá 5.990 kr.

Jólatón­leikar Björg­vins hafa verið árlegur við­burður síð­ustu 10 ár, og eru núna haldnir í fyrsta skiptið í Hörpu. Í ár eru gestir Björg­vins þau Jóhanna Guðrún, Júníus Meyvant, Páll Óskar, Ragga Gísla, Svala, Stefán Karl, Sturla Atlas og fleiri.

Markús & The Diversion Sessions

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 14. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sultu­slöku rokk­ar­arnir í Markús & The Diversion Sessions sem hóp­fjár­mögn­uðu plöt­una sína „The Truth the Love the Life“ fyrir tveimur árum hafa hóað í vini sína í Argument og Suð til að taka þátt í tón­leikum sem bera tit­il­inn „Leppalúð­arokk“. Ekki hika við að vera smá leti­blóð yfir hátíð­irnar og slapp­aðu af á þessum ókeypis tón­leikum.

Jói Pé og Króli

Hvar? Húrra
Hvenær? 15. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Ef þig þyrstir ekki í afslöppun, heldur ærsla­fulla tón­leika, þá er erfitt að toppa Jóa Pé og Króla sem föng­uðu athygli þjóð­ar­innar í sumar með ferskum lögum á borð við „B.O.B.A“. Á nýaf­stað­inni Airwaves tón­list­ar­há­tíð­inni mynd­að­ist svo mikil röð fyrir utan tón­leika þeirra að mun færri komust að en vildu.

SYKUR og GDRN 

Hvar? Húrra
Hvenær? 16. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Hin kyngi­magn­aða hljóm­sveit Sykur vakn­aði úr dvala í vetur og er búin að vera að á fullu síðan þá. Ný plata frá þess­ari raf­mögn­uðu popp­hljóm­sveit er í vinnslu og lofar hljóm­sveitin að spila nokkur ný lög á þessum tón­leikum. Unga tón­list­ar­konan GDRN hitar upp, en hún hefur vakið athygli með ljúfsára lag­inu „Það sem var“ sem hefur verið í spilun upp á síðkastið.

Briana Marela, Pascal Pinon, dj. flugvél og geimskip

Hvar? Húrra
Hvenær? 19. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Þetta kvöld er til­einkað mínímal­ískri raf­tón­list og er hin banda­ríska Briana Marela þar fremst í fylk­ing­unni. Hún tók upp fyrstu plötu sína „All Around Us“ á Íslandi 2015 og fékk íslensku sveit­ina Amiina til að spila strengi á henni og snýr aftur á Frónið til að halda þessa tón­leika. Með henni spila syst­urnar i Pascal Pinon og dj. flug­vél og geim­skip.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár