Formaður Dómarafélagsins segir dómskerfið verða fyrir „þaulskipulögðum“ og „samstilltum“ árásum

Skúli Magn­ús­son, hér­aðs­dóm­ari og for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, telur að 365 miðlum hafi verið beitt mark­visst til að grafa undan trú­verð­ug­leika íslenskra dóm­stóla og furðar sig á að hvorki Alþingi né ráð­herra hafi „skorist í leik­inn“.

Formaður Dómarafélagsins segir dómskerfið verða fyrir „þaulskipulögðum“ og „samstilltum“ árásum

Skúli Magn­ús­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands og dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, full­yrðir að Frétta­blað­inu og 365 miðlum hafi verið beitt með mark­vissum hætti til að grafa undan trú­verð­ug­leika íslenskra dóm­stóla og setja þrýst­ing á dóms­kerfið. Umfjöllun Frétta­blaðs­ins og Kast­ljóss um fjár­mál Hæsta­rétt­ar­dóm­ara í fyrra hafi verið þaul­skipu­lögð aðför að rétt­ar­kerf­inu.

Þetta kom fram í ávarpi Skúla á aðal­fundi Dóm­ara­fé­lags Íslands í síð­ustu viku. Hann fór hörðum orðum um efn­is­tök og frétta­mat Frétta­blaðs­ins og ýjaði jafn­framt að því að Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, hefði átt beina aðkomu að því sem Skúli lítur á sem ófræg­ing­ar­her­ferð gegn æðsta dóm­stóli lands­ins. „Hvort Jón Steinar tók þátt í því að skipu­leggja þessar aðgerðir frá grunni eða hann hvort sam­sam­aði sig þeim, þegar og hann varð þeirra áskynja, verður hann svara sjálfur fyrir,“ sagði hann.

Skúli vék fyrst að umfjöllun um ofur­launa­hækk­anir dóm­ara, sem hann sagði einkum hafa verið rekna áfram af Frétta­blað­inu en einnig teygja anga sína til ann­arra fjöl­miðla sem til­heyra 365-sam­steyp­unni. „Ítrekað voru fluttar fréttir af margra tuga pró­senta launa­hækkun dóm­ara þegar allir þeir sem vildu kynna sér málið gátu séð að raun­veru­leg hækkun á launum dóm­ara sam­kvæmt úrskurði Kjara­ráðs í árs­lok 2014 hafði numið 6-7%. Umfjöll­unin þjón­aði þeim aug­ljósa til­gangi að skapa þá mynd af dóm­urum hjá almenn­ingi að þeir væru ein­hvers konar for­rétt­inda­hópur. Engu máli skipti þótt umfjöll­unin væri leið­rétt, blaðið hélt við sinn keip,“ sagði Skúli og bætti við: „Það var ekki fyrr en ítrekuð skrif blaðs­ins voru kærð til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands sem þessu linnti.“

Þann 19. apríl 2016 komst siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að 365 miðlar hefðu ekki brotið siða­reglur í mál­inu, enda hefði fyr­ir­sögn Frétta­blaðs­ins um 38 pró­senta launa­hækkun dóm­ara ekki verið röng en þó „mátt vera nákvæm­ari“. 

Sagði frá símtali við blaðamann

Skúli sagði að eftir þetta hefði nýr þráður verið fund­inn hjá Frétta­blað­inu til þess að fjalla um dóm­ara með nei­kvæðum hætti og sjónum verið beint að auka­störfum dóm­ara og fjár­málum þeirra.

„Tekið var til að fjalla um reglur um hags­muna­skrán­ingu dóm­ara. Og það er auð­velt að selja almenn­ingi þá hug­mynd að dóm­arar eigi að vera alger­lega upp­hafnir, lausir við öll hags­muna­tengsl og án hvers kyns fyr­ir­fram­gef­inna skoð­ana. Og það er einnig auð­velt að selja þá hug­mynd að allt eigi að vera uppi á borðum: að líf dóm­ara eigi að vera eins og opin bók, hverjum sem vill aðgengi­leg,“ sagði hann. 

„Ég minn­ist þess að hafa átt sam­tal við blaða­mann Frétta­blaðs­ins sem spurði mig hvers vegna í ósköp­unum dóm­arar þyrftu að eiga hluta­bréf eða hluti í hluta­bréfa­sjóðum. Hvers vegna þeir gætu ekki haft sinn sparnað inn á spari­sjóðs­bók? Þegar leið á sam­talið varð mér ljóst að blaða­mað­ur­inn hafði hringt í mig til tjá sínar skoð­anir á mál­inu en ekki til þess að taka eig­in­legt við­tal. Það þurfti svo sem ekki að kom á óvart. Frétta­blaðið flutti reyndar frétt um auka­störf þess sem hér talar. Sú frétt er vænt­an­lega fæstum í minni enda var þar afskap­lega lítið kjöt á bein­unum.“

Misbrestur á skráningu upplýsinga hjá nefnd um dómarastörf

Þá vék Skúli að umfjöll­un­inni sem birt­ist fyrir um ári, þegar Frétta­blaðið birti mynd af öku­skír­teini Markúsar Sig­ur­björns­sonar, þáver­andi Hæsta­réttar, á for­síðu og sló því upp að fjórir dóm­arar hefðu tapað á falli Glitnis árið 2008. Kvöldið áður hafði Kastljós fjallað um fjár­mál dóm­ara. Skúli sagði aug­ljóst að frétt­irnar hefðu byggt á sömu gögnum sem væru illa fengin.

„Upp­haf­lega var fréttin sú að til­teknir dóm­arar, þ.á m. for­seti Hæsta­réttar, hefðu ekki til­kynnt um hluta­bréfa­eign sína sam­kvæmt gild­andi lögum og reglum. Sá frétta­flutn­ingur reynd­ist þó fljótt hald­laus, a.m.k. að öllu veru­legu leyti. Þeir dóm­arar sem um var að ræða, a.m.k. þeir sem fjöl­mið­ill­inn hafði mestan áhuga á, höfðu til­kynnt um hluta­bréfa­eign sína sam­kvæmt reglum þótt nefnd um störf dóm­ara hefði illa haldið á skrán­ingu upp­lýs­inga hjá sér,“ sagði Skúli.

„Þetta skipti þó litlu máli því nú var kvæð­inu ein­fald­lega vent í kross og hafin umfjöllun um að hlut­að­eig­andi dóm­arar hefðu verið van­hæfir í málum þess banka sem þeir höfðu átt hluta­bréf í en samt sem áður tekið þátt í afgreiðslu þeirra. Og enn og aftur var bolt­inn gef­inn upp með það að reglur á Íslandi um auka­störf dóm­ara og skrán­ingu þess­ara starfa væru með ein­hverjum hætti stór­gall­aðar og frá­brugðnar því sem almennt tíðkast. Almenn­ingur í land­inu átti að fá það á til­finn­ing­una að eitt­hvað meiri­háttar væri að í dóms­kerf­inu.“

Telur að ráðherra eða Alþingi hefði átt að „skerast í leikinn“

Skúli sagði ekki hafa farið á milli mála hvaða til­gangi afhend­ing hinna illa fengnu gagna til blaða­manna átti að þjóna. Um hafi verið að ræða „þaul­skipu­lagða aðgerð til að koma höggi á trú­verð­ug­leika íslenskra dóm­stóla, hugs­an­lega að reyna knýja til­tekna dóm­ara til að segja af sér emb­ætti“. Þarna hafi dóm­arar og íslenska dóms­kerfið verið beitt þrýst­ingi með sam­stilltum aðgerðum. 

„Það hlýtur að vekja athygli að þegar þessar aðstæður voru komnar upp sá dóms­mála­ráð­herra eða annar full­trúi rík­is­stjórnar enga ástæðu til þess að sker­ast í leik­inn með ein­hverjum hætti, t.d. með því að lýsa því yfir að íslensk dóms­kerfi væri í það heila tekið traust. Ekki verður heldur séð að Alþingi eða alþing­is­menn hafi brugð­ist við mál­inu með nokkrum hætti. Hugs­an­lega fannst stjórn­mála­mönnum þessa lands sú staða sem upp var komin bara allt í góðu lagi eða hvað?“

Landsréttur ljósið í myrkrinu

Skúli benti á að í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar hefði traust á íslenskum dóm­stólum mælst í sögu­legu lág­marki eða um 32 pró­sent í Þjóð­ar­púlsi Gallup. 

Í ávarpi sínu vék hann einnig að stofnun nýs dóms­stigs, Lands­réttar. „Því er ekki að leyna að ég hefði viljað sjá Lands­rétt hefja störf við annan og jákvæð­ari aðdrag­anda,“ sagði hann, og vís­aði þá lík­lega til þess að miklar deilur urðu á Alþingi þegar Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að víkja frá til­lögum hæfn­is­nefndar við skipun dóm­ara, en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að þar hefði ráð­herra ekki farið að lögum. „Engu að síður er stofnun nýs Lands­réttar enn sem fyrr ljósið í myrkr­inu þessa stund­ina. Í þess­ari kerf­is­breyt­ingu felst hið stóra sókn­ar­færi okkar í dag, ekki síst vegna þess að sam­hliða Lands­rétti mun sam­eig­in­leg stjórn­sýsla dóm­stól­anna einnig verða efld,“ sagði Skúli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár