Dómarar hétu því að vera stjórnvöldum trúir og hlýðnir

Um ára­tuga­skeið und­ir­rit­uðu nýskip­aðir dóm­arar dreng­skap­ar­heit þar sem þeir skuld­bundu sig skrif­lega til að hlýða stjórn­völdum, hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins. Um leið voru þeim tryggðar háar tekjur á þeim for­sendum að þeir yrðu að vera sjálf­stæðir og óháðir.

Óháðir valdhöfum
Óháðir vald­höfum „Almenn­ingur verður að geta treyst því að dóm­arar sjái sér engan hag í því að þurfa að þókn­ast vald­höfum í dóms­störfum sínum,“ segir í erindi sem Dóm­ara­fé­lag Íslands sendi Alþingi í fyrra vegna laga­breyt­inga um launa­á­kvarð­anir. Mynd: Davíð Þór

Hér­aðs­dóm­arar á Íslandi voru látnir und­ir­rita dreng­skap­ar­heit allt til árs­ins 2010 þar sem þeir hétu því að vera stjórn­völdum lands­ins trúir og hlýðnir. 17 dóm­arar sem nú starfa við hér­aðs­dóm­stól­ana hafa svarið slíkan eið og telur Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir dóms­mála­ráð­herra óþarft að leysa þá undan honum.

Þrí­grein­ing rík­is­valds, sjálf­stæði dóm­stóla og eft­ir­lits­hlut­verk þeirra gagn­vart öðrum vald­þáttum er á meðal grund­vall­ar­reglna íslenskrar stjórn­skip­unar. Dómarar skera úr um hvort athafnir stjórn­valda sam­rým­ist lögum og hvort lög sem Alþingi setur stand­ist stjórn­ar­skrá. Þá dæma þeir í refsi­málum sem fram­kvæmd­ar­valdið höfðar á hendur sak­born­ingum. Hin sér­staka staða dóm­ara innan stjórn­kerf­is­ins hefur verið talin kalla á að þeir njóti hárra tekna, eða eins og kjara­ráð orð­aði það í launa­á­kvörðun árið 2015, „að kjör dóm­ara verði ávallt meðal hinna bestu sem rík­is­valdið getur veitt“.  

Þrátt fyrir þetta liggur nú fyrir að allt til árs­ins 2010 voru nýskip­aðir hér­aðs­dóm­arar látnir und­ir­rita dreng­skap­ar­heit þar sem þeir skuld­bundu sig skrif­lega til að hlýða stjórn­völdum, hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins. Þetta kemur fram í svörum dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata. 

Hollustuskylda hæstaréttardómara afnumin fyrr

Orðrétt hljóð­aði dreng­skap­ar­heitið svo: „Ég und­ir­rituð/und­ir­rit­aður, sem skipuð/skip­aður hefur verið hér­aðs­dóm­ari, heiti því að vera stjórn­völdum lands­ins trú/r og hlýðin/n, halda stjórn­skip­un­ar­lög rík­is­ins og gegna af árvekni og sam­visku­semi skyldum þeim, er starf mitt og skip­un­ar­bréf leggja mér á herðar.“ 

Hæsta­rétt­ar­dóm­arar und­ir­rit­uðu sams konar eið til árs­ins 1994, en þá var holl­ustu­skyldan gagn­vart stjórn­völdum felld brott. Í dag eru dreng­skap­ar­heit hér­aðs­dóm­ara, hæsta­rétt­ar­dóm­ara og lands­rétt­ar­dóm­ara sam­hljóða og kveða ein­ungis á um að þeir fylgi stjórn­ar­skrá og gegni skyldum sínum af árvekni og sam­visku­semi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár