Stóð á gægjum Myndir náð­ust af Jóni Hirti á tíma­bili þegar hann vafraði reglu­lega um fyrir utan heim­ili barns­móður sinnar og var úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gagn­vart henni.

Fer í meiðyrðamál við konu sem sagði hann eltihrelli: „Málið mun flóknara“

Jón Hjörtur Sig­urð­ar­son ónáð­aði fyrrum sam­býl­is­konu sína um ára­bil og stóð á gægjum við heim­ili hennar. Lögregla hafði marg­sinnis afskipti af honum og loks var hann úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann. „Við áttum storma­samt sam­band,“ segir Jón.

Jón Hjörtur Sig­urð­ar­son hefur höfðað meið­yrða­mál gegn barns­móður sinni eftir að hún sagði hann ofbeld­is­mann og elti­hrelli. Krefst hann miska­bóta upp á 800 þús­und krónur. „Ég skal alveg stað­festa að ég er í meið­yrða­máli en ég ætla ekki að draga atriðin fram í fjöl­miðlum,“ segir Jón í sam­tali við Stundina. „Um er að ræða per­sónu­leg mál­efni okkar á milli sem koma fjöl­miðlum ekk­ert við.“

Jón hefur skrifað fjölda greina um for­sjár­deilur og umgengn­is­mál í fjöl­miðla og vikið þar laus­lega að eigin umgengn­is­deilu. Þá hefur móðir Jóns, Helga Dögg Sverr­is­dóttir grunn­skóla­kenn­ari, fjallað með opin­skáum hætti um mál sonar síns og barna hans víða á vefnum og farið hörðum orðum um barns­móður hans.

Jón Hjörtur telur meið­yrða­málið sem hann hefur höfðað gegn henni ekki eiga erindi við almenn­ing og seg­ist ekki vilja að per­sónu­leg mál­efni barns­móður hans séu dregin í fjöl­miðla. „Málið er mun flókn­ara, en það er erfitt að ræða það án þess.“

Var handjárnaður og settur í nálgunarbann

Jón Hjörtur var úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann gagn­vart kon­unni þann 15. júní 2012 eftir að hafa ítrekað verið stað­inn að því að ónáða hana fyrir utan heim­ili hennar á þriggja ára tíma­bili. Fram kemur í úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að lög­reglu­menn hafi eitt sinn hand­járnað Jón Hjört eftir að hann hafði farið inn til kon­unnar í óleyfi. Stundin hefur undir höndum myndir sem náð­ust af mann­inum við húsið á þessu tíma­bili. 

Meðan Jón Hjörtur og konan bjuggu saman bár­ust til­kynn­ingar um meint ofbeldi, meðal ann­ars frá heilsu­gæslu­stöð og félags­þjón­ust­unni. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar hafði lög­regla afskipti af Jóni í nóv­em­ber 2009 eftir að hann hafði klifrað upp á svalir hjá kon­unni og sagð­ist vilja ræða við hana um sam­bands­slit þeirra. Í des­em­ber­byrjun sama ár var Jón svo hand­tek­inn eftir að lög­reglu bár­ust upp­lýs­ingar um meintar bar­smíðar. Konan – sem á þeim tíma var ólétt – vildi ekki kæra og lög­regla hætti rann­sókn máls­ins sam­dæg­urs. 

Við heim­ili barns­móður sinnarJón Hjörtur hefur meðal ann­ars stefnt barns­móður sinni fyrir að gefa í skyn að hann væri elti­hrellir.

„Ég skal alveg stað­festa við þig að við áttum storma­samt sam­band. En það er alveg sama hvernig á það er horft, við gætum bæði lagt fram gögn sem sýna slíkt,“ segir Jón Hjörtur. „Ég get alveg eins sýnt þér gögn á móti um hana en það er ekki leik­ur­inn sem ég ætla að fara í.“

„Ég skal alveg stað­festa við þig að við áttum storma­samt sam­band“

Aftur var kallað eftir aðstoð lög­reglu vegna manns­ins í febr­úar og júní 2010. Í októ­ber­byrjun 2010 barst svo lög­reglu til­kynn­ing um meint heim­il­is­of­beldi og var Jóni gert að yfir­gefa heim­ili kon­unnar. Sama kvöld þurfti lög­regla aftur að mæta þangað eftir að Jón Hjörtur var sagður hafa í hót­unum við íbúa.

Vísað brott og skammaður af lögreglu

Jón Hjörtur hélt upp­teknum hætti árið 2011. Aðfara­nótt 10. sept­em­ber var til­kynnt um að hann stæði fyrir utan heim­ili barns­móður sinnar og væri með ónæði, en hann var horf­inn þegar lög­regla kom á vett­vang. Morg­un­inn eftir var hins vegar til­kynnt um inn­brot. Þegar lög­reglan mætti hafði konan forðað sér en Jón Hjörtur var á staðnum og við­ur­kenndi að hafa farið inn í óleyfi til að sýna henni bréf sem hann hefði skrifað henni. Lögregla vís­aði honum burt. 

Í apríl 2012 hafði lög­regla enn og aftur afskipti af Jóni heima hjá kon­unni. Hann var færður í járn, yfir­heyrður og meint lík­ams­árás til­kynnt til barna­vernd­ar­nefndar. Síðar í sama mán­uði var til­kynnt um að hann hefði enn einu sinni reynt að kom­ast inn í íbúð­ina, nú með því að eiga við glugga, en hann var far­inn þegar lög­regla mætti á svæðið. Í maí kom svo lög­regla að Jóni fyrir utan húsið og fékk hann skömm í hatt­inn.

Barnsmóðirin dæmd fyrir árás

Þann 12. júní 2012 var Jóni Hirti gert að sæta nálg­un­ar­banni í 6 mán­uði. Áður hafði konan farið fram á nálg­un­ar­bann en dregið beiðn­ina til baka. Nú var Jóni Hirti bannað að koma á eða í námunda við heim­ili barns­móður sinnar eða veita henni eft­ir­för. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur stað­festi ákvörð­un­ina þann 15. júní, en í úrskurð­inum er greint frá fjölda atvika þar sem lög­regla hafði afskipti af mann­inum. „Þetta er tíma­bil þar sem hvor­ugt okkar getur sagt að þær ákvarð­anir sem við tókum hafi verið skyn­sam­legar,“ segir Jón.

Nokkrum mán­uðum eftir að nálg­un­ar­bannið féll úr gildi, þann 1. októ­ber 2013, kom til átaka milli Jóns Hjartar og barns­móður hans eftir að hann hafði tekið barn þeirra með sér heim af leik­skóla í óþökk móð­ur­innar, for­sjár­for­eldris, og hún kallað eftir aðstoð lög­reglu. Á þessum tíma hafði meint harð­ræði hans gagn­vart barni verið til skoð­unar hjá barna­vernd­ar­nefnd en málið var fellt niður. Barns­móðir Jóns var dæmd fyrir að ráð­ast bæði á hann og systur hans en sam­kvæmt lækn­is­vott­orðum voru þau með áverka eftir að hafa verið slegin og klóruð.

Í mars 2018 var Jón Hjörtur svo ákærður fyrir að hafa veist að kon­unni með ofbeldi árið 2016. Samkvæmt áverka­vott­orði læknis hafði konan tognað á hálsi og fengið mar og bólgu við vinstra auga. Ekki þótti sannað að Jón Hjörtur hefði veitt henni áverk­ana og var hann sýkn­aður. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár