Ráðuneytið hefur enn ekki afhent Alþingi umbeðin gögn um uppreist æru kynferðisbrotamanna

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur enn ekki orðið við beiðni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis um að afhenda nefnd­inni öll gögn í málum Róberts Downey og Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, kyn­ferð­is­brota­manna sem fengu upp­reist æru í fyrra.

Ráðuneytið hefur enn ekki afhent Alþingi umbeðin gögn um uppreist æru kynferðisbrotamanna

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur enn ekki orðið við beiðni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis um að afhenda nefnd­inni öll gögn í málum Róberts Downey og Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, kyn­ferð­is­brota­manna sem fengu upp­reist æru í fyrra. 

Upp­lýs­inga­beiðnin var send þann 20. októ­ber síð­ast­lið­inn á grund­velli 51. gr. þing­skap­ar­laga. Samkvæmt ákvæð­inu ber stjórn­valdi að verða við beiðni fasta­nefndar á Alþingi „eins skjótt og unnt er og eigi síðar en sjö dögum frá mót­töku beiðn­innar“. Enn hefur ekk­ert svar borist þótt liðnir séu 16 virkir dagar síðan beiðnin var send.

Farið var fram á öll gögn, minn­is­blöð og önnur skjöl sem til­greind eru á lista yfir máls­gögn í málum Róberts Downey, Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar og manns­ins sem dró umsókn sína um upp­reist æru til baka eftir að dóms­mála­ráð­herra hafði látið málið liggja óaf­greitt um nokk­urra vikna skeið.

Jafn­framt var farið fram á öll til­tök gögn er varða ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að veita ekki fleiri ein­stak­lingum upp­reist æru og öll gögn um ákvörðun dóms­mála­ráð­herra um að hefja end­ur­skoðun á lögum um upp­reist æru.

Loks var óskað eftir rök­stuðn­ingi fyrir þeirri ákvörðun ráð­herra að fylgja ekki reglum um skrán­ingu sam­skipta í Stjórn­ar­ráði Íslands nr. 320/2016 þegar hún upp­lýsti Bjarna Bene­dikts­son sím­leiðis um með­mæli föður hans fyrir kyn­ferð­is­brota­mann­inn Hjalta Sigurjón Hauksson. 

„Ég er gáttuð á því að ráðu­neytið skuli ekki afhenda þing­nefnd­inni umbeðin gögn. Þetta er til marks um að leynd­ar­hyggja sé enn við lýði í dóms­mála­ráðu­neyt­inu þrátt fyrir að frá­far­andi rík­is­stjórn hafi verið felld í kosn­ingum og nýtt Alþingi sé að taka við,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, í sam­tali við Stundina.

Beiðnin var send að frum­kvæði hennar með stuðn­ingi Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­konu Vinstri grænna, og Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata. „Auðvitað er það áhyggju­efni ef dóms­mála­ráðu­neytið telur sér ekki skylt að fylgja lögum og fer í kringum þau í aðdrag­anda kosn­inga og meðan stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður standa yfir,“ segir Þór­hildur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár