Að horfast í augu við forréttindi sín

Iris Edda Nowenstein er þakk­lát fyrir að hafa fengið að alast upp á Íslandi.

Að horfast í augu við forréttindi sín

Ég hugsa oft um það hvað ég er þakk­lát fyrir að hafa alist upp á Íslandi, og sér­stak­lega fengið að læra íslensku. Ég er tal­meina­fræð­ingur og dokt­or­snemi í íslenskri mál­fræði, og ég geri í raun­inni ekk­ert annað en að pæla í íslensku og fólk­inu sem talar hana. En samt á ég franska mömmu og argentískan pabba, þannig að það er kannski und­ar­legt að ég endi á þessum stað í líf­inu, en það er handa­hófs­kennd röð atvika og margar til­vilj­anir sem leiddu að því að við fluttum saman til Íslands 1997 þegar ég var sex ára.

Það er óþægi­leg til­finn­ing að hugsa til þess hvað þetta var lítið mál fyrir okkur, miðað við hvað þetta er erfitt fyrir aðra. Að það sé svona mik­ill munur á rétt­indum manns eftir því hvar maður fædd­ist og hvaða vega­bréf maður kemur með til Íslands; að það ráði því hvort fólk fái tæki­færi til að búa hér og skila sínu til sam­fé­lags­ins. Það virkar eins og svo mik­ill geð­þótti í því að við höfum fengið að koma til Íslands, á meðan aðrar fjöl­skyldur sem fædd­ust bara nokkrum hund­ruð kíló­metrum frá okkur fá ekki sömu tæki­færi.

Þetta snýst ekk­ert um hverju maður getur skilað af sér, eða hvað við höfum gert í raun­inni til að auðga Ísland – þetta snýst bara um rétt­indi manns sem mann­eskju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár