„Bjarni ben segir að fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna“

Gögn úr Glitni banka benda til þess að Bjarni Bene­dikts­son hafi, þann 6. októ­ber 2008, miðlað upp­lýs­ingum um störf Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni.

„Bjarni ben segir að fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna“
Talaði við Einar Örn Bjarni Bene­dikts­son tal­aði við EInar Örn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóra fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs hjá Glitni, þann 6. októ­ber 2008 og var efni sam­tals­ins að FME væri að vinna að ein­hverju á fullu.

„Bjarni ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna … ein­hver að tala við Jónas?“ Þannig komst Einar Örn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Glitnis og vinur Bjarna Bene­dikts­sonar, að orði í tölvu­pósti til Atla Rafns Björns­sonar, aðstoð­ar­manns Lárusar Weldings banka­stjóra Glitnis, þann 6. októ­ber 2008 klukkan 14:15. Í tölvu­póst­inum er lík­lega vísað til Jónasar Fr. Jóns­sonar sem var for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á þessum tíma.

Í nýju tölu­blaði Stund­ar­innar er fjallað með ítar­legum hætti um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, föður hans og föð­ur­bróður, dag­ana fyrir hrun banka­kerf­is­ins. Fram kemur að Bjarni seldi fyrir rúm­lega 50 millj­ónir króna í Sjóði 9 hjá Glitni banka á tíma­bil­inu 2. til 6. októ­ber árið 2008 og bjarg­aði þannig sjálfum sér frá því að tapa pen­ingum í banka­hrun­inu dag­ana á eftir. 

Bjarni hafði á þessum tíma, vegna stöðu sinnar sem þing­maður, aðgang að upp­lýs­ingum um raun­veru­lega stöðu Glitnis eftir að hafa setið fundi um ógöngur bank­ans og fjár­mála­kerf­is­ins í heild. Tölvu­póst­ur­inn frá 6. októ­ber bendir til þess að Bjarni hafi miðlað upp­lýs­ingum um störf FME til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni þegar mikil óvissa ríkti um fram­tíð banka­kerf­is­ins á Íslandi.

Upp­lýs­ing­arnar koma fram í gögnum innan úr Glitni banka sem Stundin hefur undir höndum og vinnur úr í sam­starfi við Reykja­vík Media og breska dag­blaðið The Guardian. Gögnin varpa nýju ljósi á ýmis­legt er varðar við­skipt Bjarna, föður hans og föð­ur­bróður í aðdrag­anda hruns­ins, meðal ann­ars Vafn­ings­málið, sem og við­skiptin sem fóru fram í gegnum aflands­fé­lagið Falson á Seychelles-eyjum. Umfjöll­un­ina í heild má nálg­ast í blað­inu sem kom út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár