„Ég kom á engan hátt að ákvörðuninni“

Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir var stað­geng­ill dóms­mála­ráð­herra þegar ákveðið var að synja fjöl­miðlum og brota­þolum alfarið um gögn í máli Roberts Downey. Þá starf­aði hún sem aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra þegar Robert og Hjalti Sigurjón Hauksson fengu upp­reist æru í fyrra.

„Ég kom á engan hátt að ákvörðuninni“

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, var stað­geng­ill Sigríðar Andersen í dóms­mála­ráðu­neyt­inu þegar ráðu­neytið ákvað að synja alfarið upp­lýs­inga­beiðnum um mál­efni Roberts Downey og ann­arra sem fengið hafa upp­reist æru og veita fjöl­miðlum og brota­þolum manns­ins engin af þeim gögnum sem óskað var eftir, ekki einu sinni með per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum afmáðum.

„Ég var stað­geng­ill dóms­mála­ráð­herra þá daga sem spurt er um. Ég kom á engan hátt að ákvörð­un­inni,“ segir Þórdís Kolbrún í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Hún starf­aði sem aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, þegar Robert Downey og annar kyn­ferð­is­brota­maður, Hjalti Sigurjón Hauksson, fengu upp­reist æru í sept­em­ber 2016. Eins og síðar kom í ljós var faðir for­sæt­is­ráð­herra á meðal þeirra sem veittu Hjalta með­mæli vegna umsókn­ar­innar.

„Ég var erlendis“

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra sagði á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis þann 19. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að hún hefði enga aðkomu haft að umræddri ákvörðun ráðu­neyt­is­ins. 

„Ég var erlendis á þessum vikum svo því sé haldið til haga,“ sagði Sigríður og vís­aði til þess að ákvörð­unin hefði verið tekin af sér­fræð­ingum og emb­ætt­is­mönnum. Tekið skal þó fram að ráð­herrar bera ábyrgð á stjórn­ar­fram­kvæmdum öllum sam­kvæmt stjórn­ar­skrá.

Stundin sendi upp­lýs­inga­full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins fyr­ir­spurn fyrir rúmri viku og spurði hver hefði verið starf­andi dóms­mála­ráð­herra dag­ana 16. til 22. júní, eftir að umræða vakn­aði um mál Roberts Downey og ráðu­neytið til­kynnti að engin gögn yrðu afhent.

Blaðinu barst svar nú á mánu­dag. Þar segir: „For­sæt­is­ráðu­neytið sér um hvernig háttað er gegn­ingum fyrir ráð­herra þegar þeir eru fjar­ver­andi en sam­kvæmt upp­lýs­ingum dóms­mála­ráðu­neytis var dóms­mála­ráð­herra fjar­ver­andi á þeim tíma sem spurt er um og gegndi Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir fyrir ráð­herra á meðan.“

Þórdís stað­festir að hafa verið stað­geng­ill dóms­mála­ráð­herra á þessum tíma en seg­ist þó ekki hafa átt neina aðkomu að ákvörð­un­inni. 

Lengra gengið í upplýsingaleynd en lög heimila

Allir lög­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við um synjun ráðu­neyt­is­ins á upp­lýs­ing­unum telja ákvörð­un­ina hafa verið óeðli­lega og benda á að ráðu­neyt­inu hefði verið í lófa lagið að afhenda gögnin með við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum afmáðum. „Strax þegar ég heyrði þetta og las umfjöllun frá föður einnar stúlkunnar fannst mér þetta mjög órök­rétt afstaða. Ég átti bágt með að sjá í fljótu bragði hvaða lög­mætu sjón­ar­mið gætu mögu­lega rétt­lætt þessa synjun,“ sagði hæsta­rétt­ar­lög­maður sem Stundin ræddi við á dög­unum. 

Leyndin yfir gögnum ráðu­neyt­is­ins um mál Roberts Downey olli brota­þolum óþæg­indum. „Eigum við engan rétt á svörum? Hvers vegna er verið að refsa okkur eftir allt sem við höfum þurft að þola?“ spurði Nína Rún Bergs­dóttir, ein þeirra kvenna sem Robert Downey braut gegn, á Facebook. 

Þann 11. sept­em­ber komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráðu­neytið hefði brotið gegn upp­lýs­inga­lögum og gengið lengra í upp­lýs­inga­leynd en lög heim­ila þegar upp­lýs­inga­beiðnum í máli Roberts Downey var synjað.

Skömmu síðar var greint frá því að Benedikt Sveins­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra og flokks­for­manns Sigríðar Andersen og Þórdísar Kol­brúnar, hefði und­ir­ritað með­mæli fyrir Hjalta Sigurjón, mann sem var dæmdur árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í 12 ár. Þetta voru sams konar upp­lýs­ingar og ráðu­neytið hafði synjað fjöl­miðlum og brota­þolum um í máli Roberts Downey.

Í úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál kemur fram að dóms­mála­ráðu­neytið hafi sér­stak­lega vísað til þess, í rök­stuðn­ingi sínum fyrir því að halda gögnum um mál Roberts Downey leyndum, að sam­þykki Roberts lægi ekki fyrir. Hins vegar hefði ráðu­neytið aldrei óskað eftir afstöðu Roberts í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár