Einkarekið hjúkrunarheimili fjármagnað af ríkinu lánar hálfan milljarð í fasteignaviðskipti

Lán upp á ríf­lega hálfan millj­arð króna hafa verið veitt út úr rekstr­ar­fé­lagi Sóltúns á liðnum árum. Pen­ing­arnir not­aðir til að reisa íbúðir fyrir 60 ára og eldri sem seldar eru á mark­aði. Fram­kvæmda­stjóri Sóltúns telur lán­veit­ing­arnar ekki vera á gráu svæði. Stærsti eig­andi Sóltúns hagn­að­ist um rúm­lega 700 millj­ónir króna í fyrra og greiddi út 230 millj­óna króna arð.

Einkarekið hjúkrunarheimili fjármagnað af ríkinu lánar hálfan milljarð í fasteignaviðskipti
Skyldur rekstur meinar fram­kvæmda­stjór­inn Fram­kvæmda­stjóri Sóltúns, Anna Birna Jens­dóttir, telur að rekstur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns og bygg­ing þjón­ustu- og örygg­is­búða fyrir 60 ára og eldri sé skyldur rekstur. Rúmlega hálfur millj­arður hefur verið lán­aður frá hjúkr­un­ar­heim­il­inu í fast­eigna­verk­efnið.

Rekstr­ar­fé­lag hjúkr­unar- og öldr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns í Reykja­vík, Öldungur hf., lán­aði rúm­lega 295 millj­ónir króna til syst­ur­fé­lags síns, Sóltúns 1 ehf., í fyrra. Öldungur hf. er fjár­magn­aður af íslenska rík­inu að mestu í gegnum sam­starfs­samn­ing við Tryggg­inga­stofnun og námu tekj­urnar tæp­lega 1.470 millj­ónum króna í fyrra og hagn­að­ur­inn tæpum 140 millj­ónum króna. Umrætt lán bæt­ist við tæp­lega 239 millj­óna króna lán frá Öldungi til ann­ars dótt­ur­fé­lags síns en sam­tals er því um að ræða lán­veit­ingar upp á tæp­lega 534 millj­ónir króna. Um er að ræða víkj­andi lán sem ekki er að finna á veð­banda­yf­ir­litum eigna dótt­ur­fé­laga Öldungs ehf.

Selja 44 íbúðir á markaði

Í báðum til­fellum er um að ræða lán sem notuð eru í fast­eigna­upp­bygg­ingu dótt­ur­fé­laga Öldungs í Sóltúni en þessi félög eru ekki með beinum hætti fjár­mögnuð af íslenska rík­inu. Um er að ræða 44 þjón­ustu- og örygg­is­í­búðir sem dótt­ur­fé­lög Öldungs selja svo til fólks sem komið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár