Fréttamál

Hjúkrunarheimilið Sóltún

Greinar

Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Lóð keypt af hjúkrunarheimilinu fyrir fimmtung af því sem hún seldist á
Viðskipti

Lóð keypt af hjúkr­un­ar­heim­il­inu fyrir fimmt­ung af því sem hún seld­ist á

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún var notað til að veita dótt­ur­fé­lagi þess selj­enda­lán árið 2014 til að kaupa lóð af því. Verðið sem hjúkr­un­ar­heim­ilið seldi lóð­ina á nam ein­ungis tæp­lega 1/5 hluta af því sem lóðin var á end­anum seld á árið 2022. Með þessu móti mynd­að­ist hagn­að­ur­inn af sölu lóð­ar­innar í öðru félagi en hjúkr­un­ar­heim­il­inu.
Eigendur Sóltúns seldu lóð við hlið þess fyrir 1.300 milljónir
Fréttir

Eigendur Sóltúns seldu lóð við hlið þess fyrir 1.300 millj­ónir

Eigendur Sóltúns greiddu sér út 280 millj­ónir króna í fyrra með því að lækka hlutafé hjá félagi sem seldi lóð við hlið hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins. Allur rekstur eig­end­anna í Sóltúni byggir á samn­ingi sem gerður var við íslenska ríkið um bygg­ingu og rekstur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins árið 2000. Eig­end­urnir hafa á síð­ustu árum greitt 2.280 millj­ónir út úr rekstri félaga sem tengj­ast rekstri hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins í Sóltúni.
Aðstandendur íbúa á Sóltúni beðnir um að þrífa: „Þarna blöskraði mér gjörsamlega“
Fréttir

Aðstand­endur íbúa á Sóltúni beðnir um að þrífa: „Þarna blöskr­aði mér gjör­sam­lega“

Stjórn­endur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns báðu aðstand­endur íbúa að hjálpa til við þrif með eigin tuskum og hreinsi­efnum árið 2022. Það var eftir að eig­end­urnir seldu fast­eign hjúkr­un­ar­fé­lags­ins fyrir 3,8 millj­arða, leigðu hús­næðið af kaup­and­anum, greiddu sér 2 millj­arða út úr félag­inu og fóru svo í nið­ur­skurð á þjón­ust­unni. Aðstand­endur og starfs­fólk lýsa reynslu sinni af starf­sem­inni og þjón­ustu við gamla fólkið.
Uppsagnir á Sóltúni eftir tveggja milljarða útgreiðslu: „Það er gríðarlega þungbær ákvörðun“
Fréttir

Upp­sagnir á Sóltúni eftir tveggja millj­arða útgreiðslu: „Það er gríð­ar­lega þung­bær ákvörðun“

Einka­rekna hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún hefur staðið fyrir upp­sögnum síð­ustu vik­urnar til að laga rekst­ur­inn sem sagður er ganga illa. Samhliða hafa eig­endur Sóltún staðið í fast­eigna­við­skiptum í gegnum rekstr­ar­fé­lagið og tekið háar fjár­hæðir út úr því. Fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn gagn­rýna stjórn­endur Sóltúns fyrir upp­sagn­irnar.
Einkavæðing elliheimilanna: 3,8 milljarðar fóru út úr Sóltúni
Skýring

Einka­væð­ing elli­heim­il­anna: 3,8 millj­arðar fóru út úr Sóltúni

Árs­reikn­ingar einka­rek­inna hjúkr­un­ar­heim­ila sem eru starf­andi á Íslandi sýna hversu arð­bær slíkur rekstur, sem byggður er á samn­ingum við íslenska ríkið, getur verið. Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra vill auka aðkomu einka­að­ila að hjúkr­un­ar­heim­ilum en Alþýðu­sam­band Íslands segir sporin hræða og að einka­væð­ing komi niður á þjón­ust­unni við fólk.
Einkarekið hjúkrunarheimili fjármagnað af ríkinu lánar hálfan milljarð í fasteignaviðskipti
Fréttir

Einka­rekið hjúkr­un­ar­heim­ili fjár­magnað af rík­inu lánar hálfan millj­arð í fast­eigna­við­skipti

Lán upp á ríf­lega hálfan millj­arð króna hafa verið veitt út úr rekstr­ar­fé­lagi Sóltúns á liðnum árum. Pen­ing­arnir not­aðir til að reisa íbúðir fyrir 60 ára og eldri sem seldar eru á mark­aði. Fram­kvæmda­stjóri Sóltúns telur lán­veit­ing­arnar ekki vera á gráu svæði. Stærsti eig­andi Sóltúns hagn­að­ist um rúm­lega 700 millj­ónir króna í fyrra og greiddi út 230 millj­óna króna arð.

Mest lesið undanfarið ár