Vísar ábyrgðinni á embættismenn: „Ég var erlendis á þessum vikum“

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra seg­ist enga aðkomu hafa haft að ákvörðun um að veita ekki aðgang að gögnum um mál Roberts Downey.

Vísar ábyrgðinni á embættismenn: „Ég var erlendis á þessum vikum“

„Ég var erlendis á þessum vikum svo því sé haldið til haga,“ sagði Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra aðspurð um synjun ráðu­neyt­is­ins á upp­lýs­inga­beiðnum um mál Roberts Downey í sumar.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, spurði ráð­herra um aðkomu sína að þeirri ákvörðun á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sem nú stendur yfir.

Hún sagð­ist enga aðkomu hafa haft að ákvörð­unum um að birta ekki gögnin, heldur ein­ungis sér­fræð­ingar og emb­ætt­is­menn dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Sem kunn­ugt er komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál síðar að þeirri nið­ur­stöðu í úrskurði sínum að dóms­mála­ráðu­neytið hefði gengið lengra í upp­lýs­inga­leynd en eðli­legt væri sam­kvæmt ákvæðum upp­lýs­inga­laga. 

Robert Downey

Aðspurð hvers vegna ekki hefði verið haft sam­band við umsagn­ar­að­ila Roberts Downey áður en ráðu­neytið synj­aði brota­þolum og fjöl­miðlum um aðgang að gögn­unum beindi ráð­herra tal­inu að þeirri skoðun sinni að rétt væri að hafa sam­band við umsagn­ar­að­ila á þeim tíma sem umsögnum þeirra sem sækja um upp­reist æru er skilað inn í ráðu­neytið.

Sigríður gekkst ekki við því að hafa gefið ranga mynd af við­brögðum ráðu­neyt­is­ins við upp­lýs­inga­beiðnum með því að láta að því liggja að ráðu­neytið sjálft hefði vísað mál­inu til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. 

„Ég hef aldrei haldið því fram að ég eða ráðu­neytið hafi ákveðið að leita til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar,“ sagði hún og sak­aði Þórhildi Sunnu um útúr­snún­ing eftir að hún varp­aði fram spurn­ingu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár