Villandi málflutningur dómsmálaráðherra

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þrætir fyrir að ráðu­neytið hafi farið á svig við upp­lýs­inga­lög með því að neita fjöl­miðlum og brota­þolum um upp­lýs­ingar sem upp­lýs­inga­réttur almenn­ings nær til.

Villandi málflutningur dómsmálaráðherra
Sigríður Andersen Dóms­mála­ráð­herra ákvað að ekki yrðu veittar upp­lýs­ingar um veit­ingu upp­reistar æru, en úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál var ósam­mála því að gögnin ættu að fara leynt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur látið að því liggja í við­tölum að dóms­mála­ráðu­neytið hafi falið úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál að skera úr um hvort eðli­legt væri að birta upp­lýs­ingar um mál manna sem fengið hafa upp­reist æru.

Hið rétta er að ráðu­neytið synj­aði fjöl­miðlum og brota­þolum Roberts Downey um gögn sem nú liggur fyrir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál telur almenn­ing eiga rétt á sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum. 

Það var Alma Ómars­dóttir, frétta­kona á RÚV, sem kærði ákvörðun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um synjun upp­lýs­inga­beiðn­innar til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Dóms­mála­ráðu­neytið var ekki hlut­laus áhorf­andi að mál­inu heldur útskýrði og varði þá ákvörðun sína fyrir úrskurð­ar­nefnd­inni að hafa synjað beiðni RÚV um gögnin.

Í umsögn ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins er því haldið fram að „öll gögnin [hafi] að geyma við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar“ sem und­an­þegnar séu upp­lýs­inga­rétti almenn­ings. Þannig taldi ráðu­neytið að það væri brot gegn 8. tl. 2. gr. laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga og 9. gr. upp­lýs­inga­laga að afhenda umræddar upp­lýs­ingar.

Upplýsti Bjarna þrátt fyrir afstöðu ráðuneytisins

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem sjálfur er reyndur lög­maður og sér­fræð­ingur á sviði refsiréttar, hefur gefið þær skýr­ingar á leynd stjórn­valda að það geti varðað refsi­á­byrgð að afhenda per­sónu­upp­lýs­ingar sem leynt eiga að fara sam­kvæmt lögum.

Þrátt fyrir skýra afstöðu ráðu­neyt­is­ins ákvað Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra að upp­lýsa for­sæt­is­ráð­herra um nafn eins af með­mæl­endum Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar í lok júlí.

Sjálfur var Bjarni ekki aðili að mál­inu og átti ekki rétt á að fá slíkar upp­lýs­ingar sam­kvæmt þeirri laga­túlkun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem kemur fyrir í úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. 

Hafnar því ranglega að hafa farið á svig við upplýsingalög

„Við töldum okkur ekki heim­ilt að afhenda öll þau gögn og fórum þá leið, sem er lögum sam­kvæmt, og RÚV, að fá úrskurð frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál sem féllst á sjón­ar­mið ráðu­neyt­is­ins að því leyti að ekki væri hægt að birta gögnin eins og þau koma fyrir,“ sagði Sigríður Andersen í við­tali í kvöld­fréttum RÚV í gær. Sem fyrr segir er rangt að ráðu­neytið hafi sjálft farið þá leið að fá úrskurð frá úrskurð­ar­nefnd.

Blaða­manna­fundurBjarni tal­aði við fjöl­miðla í Valhöll í dag, að við­stöddum nokkrum ráð­herrum og þing­mönnum.

Sigríður hafn­aði því í við­tali við Stöð 2 að hafa farið á svig við upp­lýs­inga­lög með því að synja upp­lýs­inga­beiðnum um mál Roberts Downey og með­mæl­endur hans.

„Ég hjó eftir því í frétt­unum að talað er um leynd­ar­hyggju og að dóms­mála­ráðu­neytið hafi farið á svig við upp­lýs­inga­lög. Það er auð­vitað ekki rétt,“ sagði Sigríður.

„Í júní fengum við ósk um gögn í máli Roberts Downey og tókum ákvörðun um það, ráðu­neytið, lögum sam­kvæmt að neita því, vegna þess að í þeim kynnu að vera ákveðnar per­sónu­legar upp­lýs­ingar sem lögum sam­kvæmt þurfa að fara leynt.“ 

Hið rétta er að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu í úrskurði sínum að dóms­mála­ráðu­neytið hefði gengið lengra í upp­lýs­inga­leynd en eðli­legt væri sam­kvæmt ákvæðum upp­lýs­inga­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár