Neitaði að undirrita tillögu um uppreist æru í vor

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, full­yrðir að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi neitað að und­ir­rita til­lögu um upp­reist æru brota­manns í vor. Hún hefur sagt fyrri ráð­herra hafa „viljað halda sig við jafn­ræðið og stjórn­sýslu­reglur“ og því sam­þykkt beiðnir um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna.

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, full­yrðir að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi neitað að und­ir­rita til­lögu um upp­reist æru brota­manns í vor. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Jón birti á Facebook í kvöld.

Sigríður Andersen hefur ítrekað vísað til þess í umræðum um veit­ingu upp­reistar æru og mál Roberts Downey að ráðu­neytið hafi talið ráð­herrum bera skylda til að und­ir­rita til­lögur um upp­reist æru dæmdra manna sam­kvæmt lögum, stjórn­sýslu­hefðum og jafn­ræð­is­sjón­ar­miðum.

Þann 22. júní birti ráðu­neytið frétta­til­kynn­ingu þar sem fram kom að ef ráð­herra eða for­seti hygð­ist synja umsókn um upp­reist æru, þrátt fyrir að umsækj­andi upp­fyllti öll laga­leg skil­yrði, yrðu að vera fyrir því mál­efna­legar ástæður.

„Menn hafa líka viljað halda sig við
jafn­ræðið og stjórn­sýslu­reglur“

Á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar þann 30. ágúst, sagði svo Sigríður að fyrri ráð­herrum hefði verið mjög  „þung­bært“ að veita ákveðnum brota­mönnum upp­reist æru. „Á end­anum hefur í öllum til­vikum verið tekin sú ákvörðun að bregða ekki út af þeirri stjórn­sýslu­hefð sem hefur mynd­ast,“ sagði hún. „Menn hafa líka viljað halda sig við jafn­ræðið og stjórn­sýslu­reglur“.

Á fund­inum neit­aði hún að svara spurn­ingu Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Vinstri grænna, um hvort ráðu­neytið hygð­ist setja ferlið við veit­ingu upp­reistar æru „í frost“ meðan vinna við end­ur­skoðun laga­á­kvæða stæði yfir.

Vék frá venjunni 

Jón Gunn­ars­son, sam­ráð­herra og flokks­bróðir Sigríðar, segir í Facebook-færslu sinni að dóms­mála­ráð­herra hafi síðan í vor haft beiðni á borði sínu um upp­reist æru dæmds saka­manns og ákveðið að afgreiða hana ekki með sama hætti og hefð er fyrir.

„Hún kynnti sér þá strax þær reglur sem um þetta gilda og í fram­haldi neit­aði að skrifa undir. Þá setti hún vinnu af stað til að und­ir­búa breyt­ingu á þessum reglum. Þetta er nokkrum vikum áður en þessi mál koma í almenna umræðu,“ skrifar hann.

„Henni var greint frá því að hún gæti tæp­lega vik­ist undan því að sam­þykkja erindið“

„Eins og fram mun koma á næstu dögum hafa allir dóms­mála­ráð­herrar í ára­tugi unnið eftir þessum reglum og henni var greint frá því að hún gæti tæp­lega vik­ist undan því að sam­þykkja erindið. Það er því dóms­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fyrstur ráð­herra ákveður að spyrna við fótum og hefja vinnu við breyt­ingar á því reglu­verki sem um þessi mál gildir. Þetta stað­festir enn og aftur það ábyrgð­ar­leysi sem Alþing­is­menn sýna þegar þeir ákveða að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi vegna þess­ara mála.“ Á meðal þeirra sem læka stöðu­upp­færslu Jóns er Glúmur Björns­son, eig­in­maður Sigríðar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár