Ráðherrum „þungbært“ að veita kynferðisbrotamönnum uppreist æru

„Þetta hefur legið þungt á mörgum ráð­herrum, en á end­anum hefur í öllum til­vikum verið tekin sú ákvörðun að bregða ekki út af þeirri stjórn­sýslu­hefð sem hefur mynd­ast,“ sagði Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar.

Ráðherrum „þungbært“ að veita kynferðisbrotamönnum uppreist æru

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra segir að ráð­herrum hafi þótt óþægi­legt að veita mönnum sem framið hafa gróf brot upp­reist æru og þess vegna hafi málin verið lengi til afgreiðslu í ráðu­neyti dóms­mála. Þetta kom fram í fram­sögu ráð­herra á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar sem stendur nú yfir.  „Þetta hefur legið þungt á mörgum ráð­herrum, en á end­anum hefur í öllum til­vikum verið tekin sú ákvörðun að bregða ekki út af þeirri stjórn­sýslu­hefð sem hefur mynd­ast,“ sagði Sigríður. Um leið tók hún skýrt fram að ábyrgðin á veit­ingu upp­reist æru væri ekki emb­ætt­is­manna heldur ráð­herra. „Ég veit að ráð­herrum hefur fund­ist þung­bært að afgreiða til­teknar umsóknir um að veita upp­reist æru,“ sagði ráð­herra. „En menn hafa líka viljað halda sig við jafn­ræðið og stjórn­sýslu­reglur. 

Mikil reiði bloss­aði upp í vor eftir að greint var frá því að kyn­ferð­is­brota­mað­ur­inn Robert Downey hefði fengið upp­reist æru og öðl­ast lög­manns­rétt­indi á ný. Robert var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni sem var fjórtán ára þegar brotin voru framin og þremur sem voru fimmtán ára. Ólöf Nordal, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, lagði til við for­seta Íslands þann 14. sept­em­ber 2016 að Robert fengi upp­reist æru og óflekkað mann­orð en bréfið var und­ir­ritað af Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta tveimur dögum síðar og öðl­að­ist þá form­legt gildi. Eins og Stundin greindi frá á dög­unum fékk annar kyn­ferð­is­brota­maður, Hjalti Sigurjón Hauksson, upp­reist æru sama dag en hann­var dæmdur árið 2004 fyrir að hafa nauðgað stjúp­dóttur sinni nær dag­lega frá því hún var um 5 ára gömul þar til hún var tæp­lega 18 ára. 

Fram kom í máli Sigríðar fyrir alls­herjar- og mennta­mála­nefnd að ráð­herrar á und­an­förnum árum hefðu verið með­vit­aðir um alvar­leika brota þeirra sem sóttu um upp­reist æru. Þess vegna hefðu mál verið lengi til afgreiðslu. Nið­ur­staða lög­fræð­inga ráðu­neyt­is­ins hefði hins vegar verið sú að ráð­herrum bæri laga­leg skylda til að sæma menn­ina óflekk­uðu mann­orði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár