Sakaði Brynjar um „viðstöðulaust áreiti“ gagnvart brotaþolum Róberts Downey

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, gagn­rýndi Sjálf­stæð­is­flokk­inn harð­lega: „Vinnur mark­visst að því að bæta hag hinna efna­meiri á kostnað hinna efna­minni“

Sakaði Brynjar um „viðstöðulaust áreiti“ gagnvart brotaþolum Róberts Downey

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, segir stór­merki­legt að for­sæt­is­ráð­herra hafi stað­fest í stefnu­ræðu sinni að skatt­byrði tekju­lægstu fjöl­skyldna hafi þyngst frá árinu 1998.

„Hann stað­festir hér í heyranda hljóði að helsta áherslu­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ára­tugi, lægri skattar, er ekki ætlað þeim sem verst hafa það, heldur ein­ungis hinum betur settu. Það er svosem gott að fá það stað­fest, sem margir hafa löngum vitað, sem er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vinnur mark­visst að því að bæta hag hinna efna­meiri á kostnað hinna efna­minni,“ sagði Þór­hildur í eld­hús­dags­um­ræð­unum í kvöld.

„Verra er að fylgj­ast með for­sæt­is­ráð­herra og flokki hans halda áfram sínum blekk­ing­ar­leik gagn­vart þjóð­inni og saka þá um geð­veiki, sem ekki trúa mön­tru þeirra um að allir lands­menn sitji við sama gnægta­borðið í hag­vaxt­ar­veisl­unni þeirra. Þessi gam­al­gróna taktík Sjálf­stæð­is­flokks­ins er vel þekkt og þaul­reynd aðferð yfir­gangs­seggja í valda­stöðu, í raun and­legt ofbeldi  sem felst í því að gefa þol­and­anum við­stöðu­laust rangar upp­lýs­ingar með það að mark­miði að fá hann til þess að efast um eigið minni, skynjun og skyn­semi – efast um eigin geð­heilsu.“ 

Þá sagði hún aðferða­fræði Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa smit­ast yfir á sam­starfs­flokk­ana í rík­is­stjórn. Þeir sjái það sem eitt af sínum mik­il­væg­ustu verkum að sann­færa þjóð­ina um að hún skilji ekki neitt og sé ósann­gjörn. „Það er sko ekk­ert verið að einka­væða heil­brigð­is­kerfið, segir hæst­virtur heil­brigð­is­ráð­herra á meðan hann klippir á borða í Klíník­inni og mokar fé í einka­geir­ann í fjár­lögum þessa árs. Erfiðara finnst mér að segja til um við­horf stjórn­ar­liða í heild til þess­arar aðferða­fræði kúg­ar­ans, hvort þeir láti blekkj­ast af síend­ur­teknum og vís­vit­andi rang­færsl­unum eða taki virkan þátt í að halda þeim á lofti. Þó má segja að við­stöðu­laust áreiti hæst­virts þing­manns Brynjars Níels­sonar gagn­vart brota­þolum Róberts Árna Hreið­ars­sonar um að það hafi nú ekk­ert verið brotið svo illa á þeim sé ágætt dæmi um þessa ógeð­felldu taktík.“ 

Þór­hildur segir stjórn­ar­liða hafa þagað í kjöl­far þess að í ljós kom að ráð­herra hafði rang­lega haldið því fram að fjöl­miðlar og brota­þolar ættu ekki eiga rétt á upp­lýs­ingum um máls­með­ferð við veit­ingu upp­reist æru. „Stjórn­ar­liðum finnst líka allt í lagi að dóms­mála­ráð­herra hreyti því í almenn­ing að ákall hans um mann­úð­lega með­ferð tveggja ungra stúlkna á flótta sé bara eitt­hvað mál sem dúkki upp í umræð­unni fyrir til­viljun  og henni detti ekki í hug að gera neitt í,“ sagði hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár