Katrín: Engin sátt um sveltistefnu í heilbrigðis- og menntamálum

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar ganga í ber­högg við ákall kjós­enda um upp­bygg­ingu inn­viða og aukna vel­ferð.

Katrín: Engin sátt um sveltistefnu í heilbrigðis- og menntamálum

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar ein­kenn­ast af svelti­stefnu og ganga í ber­högg við ákall kjós­enda í síð­ustu kosn­ingum um að blásið yrði til sóknar í heil­brigðis- og mennta­málum og upp­bygg­ingu inn­viða. 

„Þarna er lagt til að svelti­stefnan sem boðuð var í fjár­mála­á­ætlun verði lög­fest. Stóra myndin er sú að sam­neyslan dregst saman sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu. Hún hefur dreg­ist saman frá árinu 2013 um tæp 4 pró­sentu­stig. Þótt þetta skýrist auð­vitað að hluta til af þáttum á borð við minnk­andi atvinnu­leysi, þá er það svo að ákall kjós­enda fyrir um ári var að blásið yrði til sóknar í heil­brigð­is­málum, skóla­málum og kjörum aldr­aðra og öryrkja,“ segir Katrín í sam­tali við Stundina.

„Vaxta- og barna­bætur eru á nið­ur­leið og þetta bitnar á ungu barna­fólki. Svo er ekki komið til móts við það sem háskól­arnir og fram­halds­skól­arnir hafa kallað eftir og sagt þurfa til að geta staðið undir nafni.“

Ekki komið til móts við vilja fjárlaganefndar

Katrín bendir á að í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í vor hafi verið kallað eftir því að aðhalds­krafan á fram­halds­skóla yrði end­ur­skoðuð og að við­bót­ar­féð sem háskóla­stig­inu var úthlutað á fjár­laga­ár­inu 2017 héld­ist áfram í fjár­lögum fyrir árið 2018.

„Mér sýn­ist ekki vera komið til móts við þessar ábend­ingar,“ segir Katrín. Að því er fram kemur í grein­ar­gerð fjár­laga­frum­varps­ins mun aðeins helm­ingur af hinu 1,078 millj­arða fram­lagi á yfir­stand­andi fjár­laga­ári hald­ast í fjár­lögum næsta árs.

Tveggja pró­senta aðhalds­kröfu rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart fram­halds­skóla­stig­inu verður fylgt eftir og felur í sér að fram­lögin eru 576,8 millj­ónum lægri en þau væru ella. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir nið­ur­fell­ingum á tíma­bundnum fram­lögum til mála­flokks­ins. 

Hefur áhyggjur af vaxandi þunga
einkareksturs í heilbrigðisþjónustu

Katrín seg­ist fagna því að umhverf­is­skattar hækki og að auð­vitað sé ánægju­legt að staðið sé við áform um bygg­ingu nýs spít­ala. Hins vegar sé óásætt­an­legt að rekstri sjúkra­hús­anna sé snið­inn jafn þröngur stakkur og raun ber vitni.

Eins og Stundin greindi frá í dag er aðeins gert ráð fyrir 597 millj­óna aukn­ingu til rekst­urs og þjón­ustu Land­spít­al­ans og 75 millj­óna aukn­ingu til Sjúkra­húss­ins á Akureyri. „Ég trúi ekki að það sé sátt um þetta. Þetta er ekki það sem kallað var eftir í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga,“ segir Katrín.

Í fjár­laga­frum­varp­inu er lagt til að veitt verði heim­ild til auk­ins sam­starfs sjúkra­húsa og Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins við einka­fyr­ir­tæki í heil­brigð­is­geir­anum. „Við höfum auð­vitað lýst áhyggjum af vax­andi þunga einka­rekst­urs í heil­brigð­is­málum og viljum auð­vitað vita hvað nákvæm­lega á að fel­ast í þess­ari heim­ild,“ segir Katrín. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár