Fjárlög: Boða aðhald í heilbrigðismálum, samdrátt í hjúkrunarþjónustu og aukið samstarf við einkafyrirtæki

Rík­is­stjórnin boðar aukið sam­starf við einka­fyr­ir­tæki í heil­brigð­is­málum. Útgjöld vegna hjúkr­unar- og end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu drag­ast saman um tæpan hálfan millj­arð og aðeins er gert ráð fyrir 597 millj­óna aukn­ingu til rekst­urs Land­spít­al­ans og 75 millj­óna aukn­ingu til Sjúkra­húss­ins á Akureyri.

Fjárlög: Boða aðhald í heilbrigðismálum, samdrátt í hjúkrunarþjónustu og aukið samstarf við einkafyrirtæki

Fjár­veit­ingar vegna þjón­ustu og rekst­urs Land­spít­al­ans aukast um 597 millj­ónir króna og um 75 millj­ónir hjá Sjúkra­húsi Akur­eyrar sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sem Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í morgun. Þetta er umtals­vert minni aukn­ing en stjórn­endur spít­al­anna hafa full­yrt að þurfi til að tryggja við­un­andi þjón­ustu við sjúk­linga. 

Skýr­ingin liggur aðal­lega í „stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um aðhald í útgjöldum rík­is­sjóðs“ eins og það er orðað í fjár­laga­frum­varp­inu. Aðhaldið gerir það að verkum að útgjöld til Sjúkra­húss­ins á Akureyri eru rúmum 40 millj­ónum lægri en þau ellegar væru og hjá Land­spít­al­anum 332 millj­ónum lægri.

Þá fellur tíma­bundið fram­lag vegna hjúkr­unar- og dval­ar­rýma, meðal ann­ars til að mæta útskrift­ar­vanda Land­spít­al­ans, niður á kom­andi fjár­laga­ári. Alls lækkar rekstr­ar­grunnur hjúkr­unar- og end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu um tæp­lega hálfan millj­arð á næsta fjár­laga­ári.

Framlög til bygg­ingar nýs Land­spít­ala verða 2,8 ma.kr. og hækka um 1,5 ma.kr. frá fjár­mála­á­ætlun. Áfram verður haldið með átak til að bæta núver­andi hús­næði Land­spít­ala. Þá er lagt til að veitt verði heim­ild til auk­ins sam­starfs sjúkra­húsa og Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins við einka­fyr­ir­tæki sem vinna að vís­inda­rann­sóknum og þróun nýj­unga á sviði heil­brigð­is­mála og lækn­is­fræði. 

Alls aukast útgjöld til sjúkra­húss­þjón­ustu úr 83 millj­örðum í 85,9 millj­arða. Álíka mikil aukn­ing er til heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa, úr 42 millj­örðum í 45 millj­arða. Megnið af aukn­ing­unni í heil­brigð­is­málum rennur hins vegar til upp­bygg­ingar nýs spít­ala eða stafar af áætl­uðum launa- og verð­lags­breyt­ingum. 

Gert er ráð fyrir um 247 m.kr. vegna rekst­urs sjúkra­hót­els á lóð Land­spít­ala við Hring­braut sem hefur verið í bygg­ingu síð­ast­liðin tvö ár. Það verður tekið í notkun í kringum næstu ára­mót. Til rekst­urs jáeindaskanna á Land­spít­ala er fyr­ir­hugað að veita 200 m.kr. en tækið verður tekið í notkun síðar á þessu ári. Tíma­bundið 500 millj­óna fram­lag til kaupa á línu­hraðli fellur hins vegar niður.

Fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps­ins að hjúkr­unar- og dagdval­ar­rýmum verði fjölgað, inn­viðir stofn­ana styrktir, teym­is­vinna efld og fjar­heil­brigð­is­þjón­usta styrkt. Skimun hefst fyrir krabba­meini í ristli, ráð­gjöf um heilsu­efl­ingu verður efld og heilsu­efl­andi sam­fé­lögum fjölgað. Þá verða inn­kaup lyfja styrkt í sam­starfi við önnur lönd. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár