Bakþankar Fréttablaðsins sagðir „móðgun við þolendur heimilisofbeldis“

„Af hverju fær áfengi mann til að ganga í skrokk á eig­in­konu sinni?“ spyr bak­þanka­höf­undur Frétta­blaðs­ins, Lára G. Sig­urð­ar­dóttir, í pistli um skað­leg áhrif áfengis. Pistill­inn hefur verið gagn­rýndur fyrir að aflétta ábyrgð­inni af ofbeld­is­mönnum. „Það eru ofbeld­is­menn beita ofbeldi og engu utan­að­kom­andi er nokk­urn­tím­ann þar um að kenna,“ segir María Lilja Þrast­ar­dóttir.

Bakþankar Fréttablaðsins sagðir „móðgun við þolendur heimilisofbeldis“
Gagn­rýnin á skrif Láru María Lilja Þrast­ar­dóttir gagn­rýnir pistil Láru harð­lega og segir hættu­legt að halda uppi slíkum hat­ursá­róðri. Mynd: Kristinn Magnússon

„Af hverju fær áfengi mann til að ganga í skrokk á eig­in­konu sinni?“ spyr bak­þanka­höf­undur Frétta­blaðs­ins í dag, Lára G. Sig­urð­ar­dóttir, læknir og doktor í lýð­heilsu­fræðum. „Söku­dólg­ur­inn er etanól, sem finnst í öllum áfengum drykkjum. Flestir sem neyta áfengis tengja áfengi við slökun því etanól hægir á boð­efna­skiptum í heil­anum. Á sama tíma minnkar etanól dóm­greind og athygl­is­gáfu, sem getur aukið árás­ar­hneigð við minnsta til­efni.“

Pistill Láru, sem ber heitið Skað­vald­ur­inn, fjallar um skað­leg áhrif áfengis og tengsl neyslu þess við ofbeldi. „Það að maður gangi í skrokk á konu sinni eftir áfeng­is­neyslu er ein­ungis brot af birt­ing­ar­mynd þessa mesta skað­valds sem sögur fara af,“ segir Lára, sem lýsir atviki þar sem hún stendur við færi­band á flug­velli í Evrópu og bíður eftir tösk­unni sinni þegar örvænt­intar­full óp skera, þegar íslenskur karl­maður var að ganga í skrokk á eig­in­konu sinni. „Ferða­fé­lagar snúa mann­inn niður þar til örygg­is­verðir flytja hann á brott. Í nokk­urra metra rad­íus við ofbeld­is­mann­inn liggja ótal litlar áfeng­is­flöskur á víð og dreif.“

Pistil Láru má lesa í heild sinni á Vísi.

Móðgun við þolendur ofbeldis  

Pistill­inn hefur vakið hörð við­brögð kvenna sem hafa staðið fram­ar­lega í bar­átt­unni gegn kyn­bundnu ofbeldi, og gagn­rýna þá nálgun að áfengi sé rót vand­ans. Sóley Tóm­as­dóttir segir: „Frétta­blaðið kaupir þennan pistil og birtir eins og ekk­ert sé sjálf­sagð­ara árið 2017. Um að áfengi sé rót kyn­bund­ins ofbeldis. Eins og ekk­ert sé athuga­vert við það. Drasl,“ segir Sóley.   

María Lilja Þrast­ar­dóttir bendir síðan á að þótt hún hafi oft orðið full hafi hún aldrei gengið í skrokk á maka sínum: „Það eru ofbeld­is­menn beita ofbeldi og engu utan­að­kom­andi er nokk­urn­tím­ann þar um að kenna. Þar fyrir utan er líka snarund­ar­legt að Frétta­blaðið hafi dælt út þessum skað­ræðis­pósti í hvert hús, athuga­semda­laust. Það er bein­línis hættu­legt að halda uppi slíkum hat­ursá­róðri. Þetta er victim-blaming af verstu sort. Við erum komin lengra en þetta,“ segir María Lilja á Facebook. 

„Það eru ofbeld­is­menn beita ofbeldi og engu utan­að­kom­andi er nokk­urn­tím­ann þar um að kenna.“ 

Á femínískri Facebooksíðu KÞBAVD, sem stendur fyrir Konur þurfa bara að vera dug­legri, var birt mynd af pistl­inum, þar sem búið er að strika út hluta af setn­ingu og skrifa yfir hana. Þar sem áður stóð „söku­dólg­ur­inn er etanól, sem finnst í öllum áfengum drykkjum,“ segir nú „söku­dólg­ur­inn er karl­inn sem lemur kon­una en ofbeldi karla gegn konum er heims­far­aldur sem yfir­völd hafa kerf­is­bundið horft fram­hjá alla tíð. Slíkt hefur þau áhrif að við höfum til­hneig­ingu til að horfa fram hjá honum raun­veru­lega söku­dólgi og reynum að afsaka hann og gjörðir hans með utan­að­kom­andi áhrifa­völdum, svo sem áfengi, í stað þess að setja sök­ina þangað sem hún raun­veru­lega á heima, hjá ger­and­anum og ger­and­anum einum.“ 

Með deil­ingu á mynd­inni segir að bak­þankar Frétta­blaðs­ins séu „móðgun við konur og móðgun við þolendur heim­il­is­of­beldis.“

Ný útgáfaBúið er að breyta text­anum á þá vegu að menn beri ábyrgð á ofbeldi sem þeir beita og ekk­ert afsaki það.

Um þriðjungur lýsti skaðlegum áhrifum áfengis 

Í rann­sókn Ingi­bjargar Þórð­ar­dóttur á ofbeldi karla gegn konum í nánum para­sam­böndum var sér­stak­lega skoðað hvort tengsl séu á milli áfeng­is­neyslu og ofbeldis. Rann­sóknin var meist­ara­verk­efni hennar í félags­ráð­gjöf og byggði á úttekt á ger­endum sem hafa leitað í úrræðið Karlar til ábyrgðar, með­ferð­ar­rúræði fyrir karla sem beita ofbeldi. Þar lagði Ingi­björg upp með sex rann­sókn­ar­spurn­ingar, meðal ann­ars þessa: Eru karlar sem beita ofbeldi í parsam­böndum lík­legir til þess að eiga við áfengis og/eða vímu­efna­vanda að stríða?

Út frá þeim upp­lýs­ingum sem lágu fyrir við fram­kvæmd rann­sókn­ar­innar var ekki unnt að draga álykt­anir af áfeng­is­vanda þátt­tak­enda, en hins vegar var það per­sónu­legt mat 28 pró­sent ger­enda að und­an­farið ár hefðu þeir hefðu notað áfengi eða aðra vímu­gjafa með skað­legum hætti fyrir heilsu­far þeirra eða sam­skipti. Þegar þeir lýstu ofbeld­inu sem þeir höfðu beitt sögð­ust aðeins um 18 pró­sent ger­enda hafa drukkið áfengi eða verið undir áhrifum vímu­efna þegar þol­andi varð hræddur við ofbeldið.

Reyndar töldu nokkrir ger­endur að lík­urnar á því að þeir beittu ofbeldi á ný myndu aukast ef þeir færu aftur að drekka áfengi og aðrir töldu áfeng­is­með­ferð lausn sinna mála.

Tengsl áfengis og ofbeldis  

Í rit­gerð Ingi­bjargar er vísað í fyrri rann­sóknir sem hafa gefið vís­bend­ingar um að neysla áfengis og ofbeldis í para­sam­böndum teng­ist, þótt erfitt sé að meta hvort áfeng­is­neysla auki líkur á ofbeldi eða öfugt.

Í úttekt frá árinu 2010 sem var gerð á útköllum lög­regl­unnar vegna heim­il­is­of­beldis kom fram að rúmur helm­ingur ger­enda var undir áhrifum vímu­efna.

Í rann­sókn sem var unnin fyrir Dóms- og kirkju­mála­ráðu­neytið árið 1997 kom fram að um 70 pró­sent kvenna töldu að áfeng­is­neysla væri orsök ofbeld­is­ins, en nán­ast jafn margar nefndu afbrýð­is­semi sem aðra ástæðu, auk þess sem beiðni um skilnað og ágrein­ingur um fjár­mál voru á meðal lík­legra orsaka­þátta.  

„Þeir sem beiti ofbeldi undir áhrifum áfengis telji sig frekar „kom­ast upp með“ að beita því drukknir en þegar þeir eru ódrukknir“

Aðrar rann­sóknir hafa ekki sýnt fram á þessi tengsl, og bent hefur verið á að stærstur hluti þeirra sem glíma við alvar­legan áfengs­is­vanda beita kon­urnar sínar ekki ofbeldi.  „Jafnvel þó rann­sóknir hafi sýnt að áfengi og ofbeldi teng­ist með ein­hverjum hætti, eru ekki allir á einu máli um hvernig þau tengsl séu. Bent hefur verið á að við­ur­kenn­ing á ofbeld­is­hegðun undir áhrifum áfengis sé lærð í sam­fé­lag­inu og að þegar fólk er undir slíkum áhrifum slævist dóm­greind manna til að meta aðstæður og hegðun, bæði sína og ann­arra.

Nið­ur­stöður sumra rann­sókna hafa gefið til kynna að þeir sem beiti ofbeldi undir áhrifum áfengis telji sig frekar „kom­ast upp með“ að beita því drukknir en þegar þeir eru ódrukknir,“ segir í rit­gerð­inni.

Líklegri til þess að hafa þunglyndiseinkenni

Þá hafa rann­sóknir ítrekað sýnt fram á að karlar sem beita ofbeldi í nánum sam­böndum séu lík­legri til að hafa þung­lynd­is­ein­kenni en karlar sem beita ekki slíku ofbeldi, óháð áfeng­is­neyslu. Þung­lyndi hefur mælst hærra hjá körlum sem beita kon­urnar sínar ofbeldi og eins körlum sem beita aðra ofbeldi en karla sem beita ekki ofbeldi.

Rann­sóknir hafa líka gefið til kynna að karlar sem beiti konur sínar ofbeldi hafi lægra sjálfs­mat en karlar sem gera það ekki. Aðrar rann­sóknir hafa gefið til kynna að þeir sýni merki um meiri reiði og fjand­skap heldur en karlar almennt, meiri árás­ar­girni og and­fé­lags­lega hegðun en almennt. Í lang­tíma­rann­sókn frá árinu 1994 kom fram að ósjálf­stæði og árás­ar­girni fyrir hjóna­band juku líkur á and­legu ofbeldi eftir eitt og hálft ár í hjóna­bandi, sem auk síðan líkur á lík­am­legu ofbeldi ári síðar.

Engin einföld leið til að útskýra ofbeldið

Nið­ur­staða Ingi­bjargar var sú að engin ein­föld leið væri til þess að útskýra af hverju menn beita kon­urnar sínar ofbeldi, heldur bendi nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar þvert á móti til þess að ofbeldi karla gegn konum í para­sam­böndum sé flókið ferli, sem í sumum til­fellum heldur áfram þótt ger­andi fari úr einu sam­bandi í annað.

Vís­bend­ingar séu um að ger­endur beiti ofbeldi á fleiri sviðum lífs­ins, séu lík­legir til að eiga við áfengis- og vímu­efna­vanda að stríða og séu lík­legir til þess að hafa upp­lifað ofbeldi í æsku, hvort sem þeir hafi verið beittir því sjálfir eða orðið vitni að ofbeldi innan fjöl­skyld­unnar.

Áhrif ofbeld­is­ins voru víð­tæk og höfðu nei­kvæð áhrif á líðan ger­enda og sam­skipti þeirra við annað fólk, að þeirra sögn. Þeir upp­lifðu van­líðan, skömm, sekt­ar­kennd og ótta, sem getur mögu­lega aukið lík­urnar á end­ur­teknu ofbeldi, þar sem lágt sjálfs­mat, stjórn­leysi og valda­leysi eru á meðal þeirra þátta sem eru taldir auka líkur á ofbeldi í para­sam­böndum. Ger­end­urnir sjálfir sögð­ust líta svo á að reiði þeirra, van­máttur og léleg stjórn á skap­inu væru ástæður þess að þeir beittu maka sinn ofbeldi.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár