Stundarskráin 8. - 21. september 2017

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu tvær vik­urnar.

Stundarskráin 8. - 21. september 2017

Milkywhale útgáfuhóf & Hildur

Hvenær: 8. sept­em­ber kl. 21.00
Hvar: KEX Hostel
Aðgangs­eyrir: Ókeypis inn.

Fáar hljóm­sveitir eru jafn upp­á­tækja­samar og dansvænar og Milkywhale, en þessi gleði­bomba býður fólki að fagna með þeim sam­nefndri plötu sinni sem kom út í sumar. Þeim til liðs­auka er popp­gyðjan Hildur sem hefur hitað upp radd­böndin á ýmsum hátíðum um landið í sumar og gaf út haustsmell­inn „Næsta sumar“ fyrir skömmu.

The Sixth Sense

Hvenær: 8. sept­em­ber kl. 20.00
Hvar: Bíó Paradís
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Ógleym­an­lega hroll­vekjan frá M. Night Shyamalan ratar aftur á stóra tjaldið í sér­stakri föstu­dagspar­tí­sýn­ingu í Bíó Paradís. Haley Joel Osment og Bruce Willis fara með aðal­hlut­verk í mynd­inni um ungan pilt sem getur séð drauga og barna­sál­fræð­ing­inn sem reynir að hjálpa honum.

Icelandic Country Music Festival

Hvenær: 9. sept­em­ber
Hvar: Hvíta Húsinu, Selfossi
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Þessi tón­list­ar­há­tíð, sem er haldin í fyrsta sinn, er til­einkuð kán­trí-tón­list­inni. Fram koma meðal ann­ars Arnar Ingi Ólafsson, sem hefur verið kall­aður Johnny Cash Íslands, hinn fær­eyski Hallur Joensen og hljóm­sveitin Axel O & Co.

Taktu mig hérna við uppþvottavélina

Hvenær: 9.–24. sept­em­ber
Hvar: Lista­safn Reykja­víkur – Hafn­ar­hús.
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Þetta er síð­asti af þremur gjörn­ingum tengdum sýn­ingu hans Ragnars Kjart­ans­sonar, Guð, hvað mér líður illa. Á honum spila tíu tón­list­ar­menn á gítar víðs vegar um sýn­ing­ar­sal­ina yfir tveggja vikna tíma­bil. Samhliða tón­list­inni verður spilað þriggja mín­útna mynd­band af karli og konu í ást­ar­leik í eld­húsi úr mynd­inni Morðsaga frá 1977; geta má að leik­ar­arnir eru for­eldrar Ragnars, og gengur sú saga að lista­mað­ur­inn hafi verið get­inn um það leyti sem myndin var tekin upp.

Rússneskir kvikmyndadagar

Hvenær: 14.–17. sept­em­ber
Hvar: Bíó Paradís
Aðgangs­eyri: Ókeypis inn. 

Þessi hátíð er haldin í fimmta skiptið, en á henni eru sýndar margar af bestu kvik­myndum Rúss­lands sem margar hverjar hafa unnið til verð­launa. Mynd­irnar eru sýndar á rúss­nesku með enskum texta.

Myrkfælni x KFJC 89.7

Hvenær: 15. & 16. sept­em­ber
Hvar: Húrra
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Íslenska jað­ar­tón­list­ar­tíma­ritið Myrk­fælni heldur fjár­öfl­un­ar­tón­leika fyrir öðru blaði sínu, en tíu hljóm­sveitir leggja þeim lið, meðal ann­ars dauðasörf rokk­ar­arnir í Báru­járni, leðjupönk­ar­arnir í Döpur, synt­hpönk­ar­inn Rex Pistols og tóm­hyggjupönk­ar­arnir í Skröttum. Við­burð­inum verður útvarpað beint af KFJC 89.7 FM frá Kali­forníu.

Hefnendabíó: Battle Royale

Hvenær: 19. sept­em­ber kl. 20.00
Hvar: Húrra
Aðgangs­eyrir: Ókeypis aðgangur.

Hefn­end­urnir er hlað­varps­þáttur í umsjón lista­manns­ins Hugleiks Dags­sonar og hand­rits­höf­unds­ins Jóhanns Ævars Gríms­sonar, en þeir bjóða reglu­lega hlust­endum sínum að sjá menn­ing­ar­lega mik­il­vægar myndir. Hin jap­anska Battle Royale er tekin fyrir í þetta skiptið, en hún var sterkur áhrifa­valdur á Hunger Games-bæk­urnar.

Frönsk veisla - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hvenær: 21. sept­em­ber kl. 19.30.
Hvar: Harpa, Eldborg
Aðgangs­eyrir: frá 2.500 kr.

Aðal­stjórn­andi Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, Yan Pascal Tor­telier, stýrir tón­leikum þar sem flutt verða létt og aðgengi­leg tón­verk frá heima­landi hans, meðal ann­ars vin­sælir þættir úr verkum Offenbachs, tvö ólík verk eftir Maurice Ravel, Konsert Poulencs og fleiri. Með Sin­fón­íu­hljóm­sveit­inni koma fram koma hol­lensku píanó-ungst­irnin Lucas og Arthur Jussen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár