Vill að ráðherra hætti að veita uppreist æru meðan lögin eru endurskoðuð

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, vonar að Alþingi sam­ein­ist um að veita ráð­herra umboð til að hætta afgreiðslu umsókna um upp­reist æru meðan lagaum­hverf­inu er breytt.

Vill að ráðherra hætti að veita uppreist æru meðan lögin eru endurskoðuð

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna og full­trúi flokks­ins í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis, ætlar að leggja til að Alþingi veiti dóms­mála­ráð­herra skýra laga­heim­ild til að hætta að veita mönnum upp­reist æru meðan unnið er að breyt­ingum á lagaum­hverf­inu um slíkar stjórn­sýslu­at­hafnir.

„Það virð­ast allir sam­mála um að kerfið í kringum upp­reist æru sé ónýtt og kalli á umfangs­miklar laga­breyt­ingar. Við þær aðstæður er eðli­legt að ráðu­neytið afgreiði héðan í frá ekki umsóknir um upp­reist æru, en ráð­herr­ann virt­ist á fund­inum ekki telja sig hafa heim­ild til þess,“ segir Andrés Ingi í sam­tali við Stundina.

Á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar í gær neit­aði ráð­herra að svara spurn­ingu Andrésar um hvort ráðu­neytið hygð­ist setja ferli við veit­ingu upp­reist æru „í frost“ meðan vinna við end­ur­skoðun laga­á­kvæða stæði yfir. 

Andrés segir mik­il­vægt að ráð­herra fái skýra laga­heim­ild til þess. „Ég hef sett af stað vinnu við að semja frum­varp sem frysti kerfið á meðan unnið er að lag­fær­ingum. Þegar málið er til­búið mun ég bjóða öllum þing­mönnum sem áhuga hafa að flytja það með mér og vona að við getum klárað það hratt og örugg­lega,“ segir hann.

Fyrir rúmum tveimur vikum birti dóms­mála­ráð­neytið yfir­lit um beiðnir um upp­reist æru. Þar kemur fram að umsókn barn­a­níð­ings, sem hlaut 18 mán­aða dóm, liggur fyrir í ráðu­neyt­inu en ákvörðun hefur ekki verið tekin í mál­inu.

Mikil reiði bloss­aði upp í vor eftir að greint var frá því að kyn­ferð­is­brota­mað­ur­inn Robert Downey hefði fengið upp­reist æru og öðl­ast lög­manns­rétt­indi á ný. Robert var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni sem var fjórtán ára þegar brotin voru framin og þremur sem voru fimmtán ára. Hann komst í sam­band við stúlk­urnar með blekk­ingum og tældi þær til kyn­maka með pen­inga­gjöfum. Árið 2010 var hann dæmdur á ný fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni án þess að honum væri gerð refs­ing í því máli.

Ólöf Nordal, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, lagði til við for­seta Íslands þann 14. sept­em­ber 2016 að Robert fengi upp­reist æru og óflekkað mann­orð en bréfið var und­ir­ritað af for­seta tveimur dögum síðar og öðl­að­ist þá form­legt gildi. Stundin greindi svo frá því í síð­ustu viku að sama dag hefði maður, sem dæmdur var árið 2004 fyrir að nauðga stjúp­dóttur sinni nær dag­lega frá því hún var um 5 ára gömul þar til hún var tæp­lega 18 ára, fengið upp­reist æru.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár