„Það kemur ekki til greina að ráðherra ræði hér einstök mál“

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra neit­aði að svara því hvenær kyn­ferð­is­brota­mað­ur­inn Robert Downey sótti um upp­reist æru og vildi heldur ekki svara því hvort ráðu­neyti hennar hefði sett veit­ingu upp­reist æru „í frost“ vegna yfir­vof­andi laga­breyt­inga.

„Það kemur ekki til greina að ráðherra ræði hér einstök mál“

„Það kemur ekki til greina að ráð­herra ræði hér ein­stök mál,“ sagði Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, spurði hana hvenær kyn­ferð­is­brota­mað­ur­inn Robert Downey hefði sótt um upp­reist æru. 

Hún neit­aði einnig að svara spurn­ingu Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Vinstri grænna, um hvort ráðu­neytið hygð­ist setja veit­ingu upp­reist æru almennt „í frost“ meðan unnið er að breyt­ingum á þeim lögum sem gilda um mála­flokk­inn. 

Eftir að Sigríður hafði neitað að svara spurn­ingu Andrésar, sem hann tók fram að sneri með almennum hætti að verk­lagi í ráðu­neyt­inu, til­kynnti Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, að fund­ur­inn væri opinn og því yrði að gæta að með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga. 

Síðar á fund­inum spurði Þór­hildur Sunna aftur út í mál Roberts Downey og sagði Sigríður þing­menn þá verða að „bera þroska“ til þess að sætta sig við að ein­stök mál sem koma inn í ráðu­neytið verði ekki rædd á þessum vett­vangi. 

Eins og Stundin greindi frá í gær beindi Áslaug Arna því til þing­manna nefnd­ar­innar í síð­ustu viku að ekki mætti ræða efn­is­lega um upp­reist æru barn­a­níð­ings­ins Robert Downey á opnum fundi nefnd­ar­innar. Hún féll hins vegar frá þeirri kröfu eftir að nefnda­svið Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að nefnd­ar­menn hefðu rétt til þess að fara fram á og ræða upp­lýs­ingar um upp­reist æru ein­stakra aðila.

Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir stúlku sem Robert braut gegn þegar hún var á ung­lings­aldri, hefur haldið því fram að Downey hafi fengið sér­með­ferð þegar hann sótti um og fékk upp­reist æru.

Í hegn­ing­ar­lögum er kveðið á um að fimm ár séu liðin frá því að refs­ingu lauk áður en hægt sé að veita mönnum sem hafa framið alvar­leg brot upp­reist æru. Róbert sótti um upp­reist æru árið 2014 en seinni dóm­ur­inn yfir honum, þar sem hann var dæmdur fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni, féll árið 2010. Færsla Bergs á Facebook, þar sem hann gagn­rýndi máls­með­ferðin í máli Roberts Downey, vakti mikla athygli en þar skrif­aði hann:

 „Mál Roberts fær ekki neitun 2014 þótt ekki séu liðin fimm ár frá því að dómur er úttek­inn eins og lög kveða á um og virð­ist vera reglan um aðra umsækj­endur. Hann fær heldur ekki neitun árið 2015 þrátt fyrir að tím­inn sé ekki lið­inn en hann lauk fang­els­is­vist árið 2011 og fimm ár þurfa að líða frá því að dómur sé að fullu út tek­inn. Umsókn hans er látin liggja inni í ráðu­neyt­inu til árs­ins 2016 og for­seti skrifar undir upp­reist æru hans 16. sept­em­ber það ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár