Vildi ekki að fjallað yrði um mál Roberts Downey

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, lagð­ist gegn því að fjallað yrði um upp­reist æru Roberts Downey á opnum fundi nefnd­ar­innar, en dró í land eftir að nefnda­svið Alþingis skil­aði áliti um málið.

Vildi ekki að fjallað yrði um mál Roberts Downey

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, beindi því til þing­manna nefnd­ar­innar í síð­ustu viku að ekki mætti ræða efn­is­lega um upp­reist æru barn­a­níð­ings­ins Robert Downey á opnum fundi nefnd­ar­innar sem fram fer á morgun. 

Eftir að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, óskaði eftir rök­stuðn­ingi Áslaugar fyrir ákvörð­un­inni og nefnda­sviði Alþingis var falið að vinna minn­is­blað um málið féll nefnd­ar­for­mað­ur­inn frá þess­ari kröfu. Taldi nefnda­sviðið að nefnd­ar­menn hefðu rétt til þess að fara fram á og ræða upp­lýs­ingar um upp­reist æru ein­stakra aðila. Þá væri umfjöllun stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um upp­reist æru ekki til þess fallin að binda hendur alls­herjar- og mennta­mála­nefndar að því er varðar umræðu um málið. 

Stundin hafði sam­band við Áslaugu og spurði hvers vegna ekki mætti ræða „efn­is­lega um máls­með­ferð­ina þegar Robert Downey var veitt upp­reist æru“, sbr. frétt Vísis um málið, og hvort hún teldi að þing­mönnum nefnd­ar­innar og ráð­herra væri ekki treystandi til að ræða málin innan marka þess sem er lög­legt og við­eig­andi. 

Í svari Áslaugar sem barst í morgun vís­aði hún til 5. mgr. 19. gr. þing­skap­ar­laga, en þar segir að óheim­ilt sé „að miðla upp­lýs­ingum á opnum fundi, eða vísa til þeirra, sem eiga að fara leynt sam­kvæmt reglum um þagn­ar­skyldu eða upp­lýs­inga­lögum“. Þá benti hún á að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd væri nú þegar með mál Roberts Downey til umfjöll­unar. 

Skömmu síðar kom hún fram í við­tali við RÚV og sagði að nefnd­ar­mönnum væri „að sjálf­sögðu heim­ilt að spyrja að hverju sem er“, en þar sem fund­ur­inn væri opinn gæti dóms­mála­ráð­herra þurft að vísa til trún­að­ar­skyldu í því máli í ein­hverjum til­vikum. Þá kom fram að Áslaug hefði orðið við beiðni Þór­hildar Sunnu um að Bergi Þór Ing­ólfs­syni, föður eins af brota­þolum Roberts Downey, yrði boðið á fund­inn. 

Þegar Stundin hafði sam­band við Þórhildi Sunnu fagn­aði hún þessu og sagði þetta bera merki um að þing­menn meiri­hlut­ans virt­ust loks til­búnir að leggja við hlustir og taka á þessu máli á sann­gjarnan og gagn­sæjan hátt.

Andrés Ingi Jónsson, full­trúi Vinstri grænna í nefnd­inni, segir í sam­tali við Stundina að þótt fundur alls­herjar- og mennta­mála­nefndar muni eflaust að mestu snú­ast um hvernig breyta megi reglum um upp­reist æru til fram­tíðar, þá eigi sú umræða sér ekki stað í tóma­rúmi. Mál Roberts Downey og umræðan sem skap­að­ist í kringum það sé í raun ástæða þess að boðað var til fund­ar­ins og ekki sé hægt að horfa fram­hjá því.

Veiting upp­reistar æru hefur verið tals­vert til umræðu und­an­farnar vikur eftir að greint var frá því að Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreið­ars­son, hefði verið veitt „óflekkað mann­orð“ með stað­fest­ingu for­seta Íslands og dóms­mála­ráð­herra. Robert var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni sem var fjórtán ára þegar brotin voru framin og þremur sem voru fimmtán ára. Árið 2010 var hann dæmdur á ný fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni án þess að honum væri gerð refs­ing í því máli. 

Stundin greindi svo frá því í síð­ustu viku að maður að nafni Hjalti Sigurjón Hauksson hefði fengið upp­reist æru sama dag og Downey. Hjalti var dæmdur árið 2004 fyrir að nauðga stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í 12 ár frá því hún var um fimm ára gömul.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár