Segir vinnudaga þingmanna of langa: „Er ekki hægt að klára aðeins fyrr?“

Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir, verð­andi þing­kona Bjartrar fram­tíðar, gagn­rýnir vinnu­um­hverfið.

Segir vinnudaga þingmanna of langa: „Er ekki hægt að klára aðeins fyrr?“

Vara­þing­konan Karólína Helga Sím­on­ar­dóttir, sem tekur við þing­sæti Theodóru S. Þor­steins­dóttur eftir ára­mót, gagn­rýnir karllægt vinnu­um­hverfi á Alþingi í við­tali í Morg­un­blað­inu í dag og nefnir sér­stak­lega að vinnu­dagar séu langir.

„Það er bara spurn­ing hvort þetta þurfi að vera svona, þarf alltaf að geyma allt til þess síð­asta, er ekki hægt að klára aðeins fyrr og vera aðeins skipu­lagð­ari?“ er haft eftir Karólínu.

Sem kunn­ugt er þiggja þing­menn meira en 1,1 milljón í laun á mán­uði og fá fleiri frí­daga en flestar aðrar starfs­stéttir. Þá eru engin við­ur­lög við því að þing­menn mæti ekki til vinnu mán­uðum saman, snið­gangi atkvæða­greiðslur og nefnd­ar­fundi. 

Theodóra, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, til­kynnti í við­tali við Kópa­vogs­blaðið um helg­ina að hún ætl­aði að hætta þing­mennsku. Fullyrti hún að þing­menn kæmu „hvergi að neinni stefnu­mót­un eða ákv­arð­ana­töku um strauma og stefn­ur“ og gagn­rýndi að flest mál sem væru sam­þykkt kæmu úr ráðu­neyt­um í gegn­um rík­is­stjórn. Sjálf hefur Theodóra aldrei lagt fram þing­mál, hvorki laga­frum­varp né þings­á­lykt­un­ar­til­lögu.

Karólína Helga hefur und­an­farin ár starfað sem verk­efna­stjóri hjá fyr­ir­tæk­inu Seeds, en hún er mann­fræð­ingur að mennt. Á vef Bjartrar fram­tíðar líkir hún sjálfri sér við vasa­hníf. „Hnífinn er hægt að nýta á marga vegu, hann er harð­gerður, vinnu­samur, þú veist alltaf að hverju þú gengur, hann er öllu við­búin og alltaf til staðar. Þar er mér ágæt­lega lýst, ég er ekki mikið fyrir að berja mér á brjóst en ég hef ástríðu fyrir þeim verk­efnum sem ég tek mér fyrir hendi og klára þau af fag­mennsku,“ skrifar hún.

Fram kemur að ástæða þess að Karólína valdi Bjarta fram­tíð sé fyrst og fremst sú að hún „trúi á þær hug­sjónir sem Björt fram­tíð hefur fram að færa, meiri vinnu og minna tuð. Flokkur með fram­tíð­ar­sýn í öllum málum, ekki skamm­tíma­lausnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár