„Þing­menn eru svo langt frá því að geta haft áhrif“

Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, segir að þing­menn hafi engin áhrif og Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar full­yrðir að þing­menn komi „hvergi að neinni stefnu­mót­un eða ákv­arð­ana­töku um strauma og stefn­ur“.

„Þing­menn eru svo langt frá því að geta haft áhrif“

Nichole Leigh Mosty, þing­kona Bjartrar fram­tíðar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, telur að þing­menn hafi engin áhrif í íslensku sam­fé­lagi. 

Þetta kemur fram í við­tali við hana á Mbl.is. Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, til­kynnti í við­tali við Kópa­vogs­blaðið í dag að hún ætl­aði að hætta þing­mennsku um ára­mótin. Haft er eftir Theodóru að þing­menn komi „hvergi að neinni stefnu­mót­un eða ákv­arð­ana­töku um strauma og stefn­ur“ og seg­ist Nichole sam­mála henni.

Alþingi er valda­mesta stofnun í íslenskri stjórn­skipan. Þingið fer með lög­gjafar- og fjár­stjórn­ar­vald, sinnir eft­ir­liti með fram­kvæmda­vald­inu og ræður því hvernig rík­is­stjórn er skipuð á hverjum tíma. Þiggja þing­menn há laun, meira en 1,1 milljón króna á mán­uði, vegna ábyrgð­ar­innar og valds­ins sem störfum þeirra fylgir. 

Theodóra og Nichole til­heyra báðar Bjartri fram­tíð, en flokk­ur­inn á aðild að rík­is­stjórn sem reiðir sig á eins manns stjórn­ar­meiri­hluta. Því má leiða líkum að því að ein­stakir stjórn­ar­þing­menn hafi einmitt nú óvenju mikil völd og áhrif.

Svo virð­ist þó ekki vera ef marka má orð Nichole og Theodóru.

„Það vant­ar eft­ir­fylgni eft­ir mál­um og þing­menn eru svo langt frá því að geta haft áhrif þó svo að þing­mennska eigi að telj­ast áhrif­astaða,“ er haft eftir Nichole á Mbl.is. 

Theodóra telur að þing­störf snú­ist ekki um stefnu­mótun og fram­kvæmd verk­efna. „Þau eru meira eins og mál­stofa. Flest mál sem sam­þykkt eru koma úr ráðu­neyt­um í gegn­um rík­is­stjórn. Við þing­menn höf­um svo það hlut­verk að fjalla um þau en kom­um hvergi að neinni stefnu­mót­un eða ákv­arð­ana­töku um strauma og stefn­ur,“ segir hún. „Reynd­ar geta þing­menn óskað umræðu um allt á milli him­ins og jarðar. Oft er sú umræða á flokk­spóli­tísk­um nót­um, sett upp til að berja sér á brjóst eða berja á póli­tísk­um and­stæð­ing­um. Það hent­ar mér ekki enda leiða þær sjaldn­ast til nokk­urr­ar niður­stöðu.“

Theodóra hefur sjálf aldrei lagt fram þing­mál, hvorki laga­frum­varp né þings­á­lykt­un­ar­til­lögu, en var með­flutn­ings­maður að frum­varpi atvinnu­vega­nefndar til laga um breyt­ingu á lögum um stjórn fisk­veiða (brott­fall og fram­leng­ing bráða­birgða­á­kvæða) sem fékkst sam­þykkt þann 1. júní síð­ast­lið­inn.

Nichole Leigh Mosty, sem segir þing­menn áhrifa­lausa, hefur verið með­flutn­ings­maður að fimm þings­á­lykt­un­ar­til­lögum og lagt fram tvö frum­vörp sem for­maður vel­ferð­ar­nefndar en bæði voru sam­þykkt. Annað frum­varpið fól í sér aft­ur­virka skerð­ingu á fimm millj­arða rétt­indum sem elli­líf­eyr­is­þegar höfðu öðl­ast fyrir mis­tök.

Nichole hefur 394 sinnum greitt atkvæði með laga­breyt­ingum á Alþingi og 37 sinnum á móti. Theodóra hefur 382 sinnum greitt atkvæði með málum og 38 sinnum á móti. Ýmis mál­anna hafa, með beinum hætti, falið í sér „ákv­arð­ana­töku um strauma og stefn­ur“ og sumar atkvæða­greiðsl­urnar hafa verið hnífjafnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár