Margvísleg brot á starfsleyfi í matreiðslu ISS fyrir skólabörn

Ræstinga- og veit­inga­fyr­ir­tækið ISS Ísland hefur und­an­farið tekið yfir mat­reiðslu mál­tíða fyrir leik­skóla- og grunn­skóla­börn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Marg­vís­legar athuga­semdir hafa verið gerðar af heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu vegna hrein­lætis, rekj­an­leika og innra eft­ir­lits í eld­húsi ISS, meðal ann­ars vegna myglu. Nýlegt útboð vegna matar fyrir grunn­skóla í Kópavogi, þar sem ISS átti næst­lægsta til­boðið, hefur verið kært.

Margvísleg brot á starfsleyfi í matreiðslu ISS fyrir skólabörn
Samið um mat fyrir grunn­skóla Haraldur Líndal Har­alds­son, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, og Guð­mundur Guð­munds­son, for­stjóri ISS, kynna samn­ing um mat­reiðslu ISS fyrir grunn­skóla og leik­skóla í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Mynd: ISS Ísland

Mat­væla­fram­leiðsla ISS, sem fram­leiðir mat fyrir leik­skóla, skóla­mötu­neyti og öldr­un­ar­heim­ili, auk fjölda fyr­ir­tækja, hefur ekki upp­fyllt „kröfur um góða starfs­hætti sem settar eru fram í reglu­gerð um holl­ustu­hætti sem varða mat­væli“. 

Bæjarráð Kópavogs ákvað 15. júní síð­ast­lið­inn að semja við ISS um matseld fyrir tvo grunn­skóla, Kópa­vogs­skóla og Smára­skóla, til næstu þriggja ára. Útboðið hefur nú verið kært, þar sem til­boð lægst­bjóð­anda, Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, var metið ógilt vegna skorts á gögnum. 

Tugir frá­vika greindust í eft­ir­liti heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur í jan­úar síð­ast­liðnum og höfðu mörg þeirra verið greind strax í apríl 2016. Daginn eftir ákvörðun bæj­ar­ráðs Kópavogs, 16. júní síð­ast­lið­inn, fór heil­brigð­is­eft­ir­lit aftur í vett­vangs­rann­sókn hjá ISS og komst að því að lítið hafði verið um úrbætur. Hálfu ári eftir marg­vís­legar athuga­semdir heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins hafði engin úrbóta­á­ætlun verið færð fram af fyr­ir­tæk­inu og auk þess greind­ist „alvar­legt frá­vik“ frá starfs­leyfi vegna slæms ástands, hita, raka­skemmda, „skor­dýra­á­lags“ og fleira í upp­þvotta­rými.

„Sem betur fer er ekki mikið um það.“

Þess ber að geta að algengt er að gerðar séu athuga­semdir eftir eft­ir­lits­ferðir hjá mat­væla­fyr­ir­tækjum. Ekkert mat­væla­fyr­ir­tæki kemst full­kom­lega athuga­semda­laust í gegnum skoðun eft­ir­lits­ins, en þar sem ISS eldar fyrir við­kvæma hópa og í miklu magni eru gerðar sér­stakar kröfur um verk­lag, sem ISS hefur ekki náð að upp­fylla þrátt fyrir áskor­anir heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins.

Jón Ragnar Gunn­ars­son, full­trúi heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins, segir að ekki sé algengt að alvar­leg frá­vik grein­ist, en býst við að úrbætur séu í far­vegi. „Það er ekki mjög algengt, nei. Það er eitt­hvað um það. Sem betur fer er ekki mikið um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár