Ahmadi fjölskyldan fær alþjóðlega vernd á Íslandi

Átta manna fjöl­skylda frá Afganistan hefur fengið alþjóð­lega vernd hér á landi, en vísa átti þeim úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Fjöl­skyldan flúði heima­land sitt eftir að hafa orðið fyrir skelfi­legri árás tali­bana.

Ahmadi fjölskyldan fær alþjóðlega vernd á Íslandi

Ahmadi fjöl­skyldan, átta manna fjöl­skylda frá Afganistan, hefur fengið alþjóð­lega vernd hér á landi og dval­ar­leyfi til fjög­urra ára. Fjöl­skyld­unni var til­kynnt ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar í hádeg­inu í dag, en hún hefur verið hér á landi frá því í des­em­ber 2015. „Þetta eru frá­bærar fréttir og stór sigur fyrir þau,“ segir Eva Dóra Kol­brún­ar­dóttir, lög­maður fjöl­skyld­unnar, í sam­tali við Stundina. „Þau eru öll mjög þakk­lát og glöð í dag. Þeim líður mjög vel á Íslandi og segja að allir hér á landi hafi reynst þeim vel. Þau geta sofið rólega í nótt en þau hafa búið við mikið óör­yggi og óvissu und­an­farin ár.“ Eva Dóra seg­ist virki­lega ánægð með nið­ur­stöð­una og segir bæði Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála hafa unnið málið af mik­illi fag­mennsku. 

Ahmadi fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir tali­bana, en á meðal þeirra er stúlka sem var barin til óbóta af tali­bönum aðeins þriggja ára gömul með þeim afleið­ingum að hún lam­að­ist öðrum megin í and­lit­inu. Fjöl­skyldan telur ung hjón, fjögur ung börn þeirra og aldr­aða for­eldra fjöl­skyldu­föð­urs­ins, Mir Ahmad Ahmadi. Útlend­inga­stofnun, sem og kæru­nefnd Útlend­inga­mála, hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að vísa fjöl­skyld­unni úr landi til Þýska­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, en fjöl­skyldan átti við­komu í Þýska­landi á leið sinni til Íslands. 

Flúðu eftir skelfilega árás

Stundin sagði sögu Ahmadi fjöl­skyld­unnar í des­em­ber síð­ast­liðnum. Fjöl­skyldan kemur frá litlu hér­aði skammt frá Jalala­bad og er af litlu þjóð­ar­broti Shía-múslima, en níu­tíu pró­sent Afgana eru hins vegar Súnní-múslimar. Þau störf­uðu sem bændur í Afganistan og segja lífið hafa verið gott þar til tali­banar herj­uðu á hér­aðið og reyndu að fá unga menn, Mir þar með tal­inn, til að ganga til liðs við sig. Mir seg­ist hins vegar alltaf hafa neitað. „Ég vissi að það myndi aðeins þýða dauði. Ef ég myndi ganga til liðs við tali­bana yrði ég drep­inn af ann­að­hvort afgönskum stjórn­völdum eða banda­rískum, og ef ég myndi ganga til liðs við Banda­ríkja­menn yrði ég drep­inn af tali­bönum. Ég vildi bara fá að lifa í friði. Ég vil ekki stríð,“ sagði Mir í við­tali við Stundina. 

Einn dag­inn réð­ust tali­banar hins vegar til atlögu og beittu fjöl­skyld­una hrylli­legu ofbeldi, árás sem átti eftir að hafa gríð­ar­legar afleið­ingar í för með sér. Menn­irnir brut­ust inn á heim­ili fjöl­skyld­unnar og byrj­uðu á því að berja Mir í and­litið með þeim afleið­ingum að hann missti tvær tennur. Við það hljóp elsti sonur þeirra hjóna, Mostaf, sem þá var fimm ára, til föður síns og tók utan um hann. Menn­irnir köst­uðu drengnum þá ofan í tóma kart­öflu­geymslu, nokk­urs konar op í gólf­inu, sem hand­leggs­brotn­aði illa við fallið. Því næst réð­ust menn­irnir á dóttur þeirra, Rokshar, sem þá var tæp­lega þriggja ára gömul, og börðu hana aftan í hnakk­ann með riff­il­skafti. Rokshar féll í gólfið við árás­ina og lýsir Mir því hvernig það hafi strax byrjað að blæða úr nef­inu á henni og eyrum. Eftir það flúðu árás­ar­menn­irnir af vett­vangi.

Yngsta barnið, Saheh, var aðeins tæp­lega tveggja ára þegar árásin átti sér stað. Hann var talandi áður en atburð­irnir gerð­ust, en hætti að tjá sig eftir að hafa orðið vitni að öllu því sem fram fór. Fjórða barnið kom síðan í heim­inn á Íslandi á síð­asta ári. 

Rokshar missti með­vit­und við árás­ina og fékk ekki með­vit­und aftur fyrr en um viku síðar. Læknar á spít­al­anum bjuggu fjöl­skyld­una undir það versta og sögðu ólík­legt að hún myndi lifa þetta af. Höggið hefði verið of fast fyrir lítið, óþroskað höfuð telpunnar og það hefði blætt inn á heila hennar. Það kom því bæði fjöl­skyld­unni og læknum á óvart þegar sú litla vakn­aði úr dáinu viku eftir árás­ina. Hún hlaut hins vegar var­an­lega lömun í hægri hluta and­lits.

Erfiður flótti

Eftir árás­ina tók fjöl­skyldan ákvörðun um að flýja heima­landið. Fyrst fóru þau til höf­uð­borg­ar­innar, Kabúl, þar sem þau dvöldu í nokkra mán­uði á meðan þau skipu­lögðu flótt­ann. Þar hafi þau hins vegar fundið fyrir miklu óör­yggi, enda árásir á Shía-múslima dag­legt brauð í borg­inni. Eitt af því sem þau þurftu meðal ann­ars að ákveða var hvar þau gátu séð fyrir sér að setj­ast að með börnin. Eftir að hafa kynnt sér málin ræki­lega var aðeins eitt land sem kom til greina – Ísland. „Við veltum fyrir okkur hvar væri gott fólk, hvar við myndum ekki upp­lifa kyn­þátta­hatur og hvar væri gott að búa. Við komumst að því að á Íslandi væri eng­inn her og ef það er eng­inn her er landið örugg­lega öruggt. Þið þurfið ekki að berj­ast, þurfið ekki að fara í stríð. Þess vegna ákváðum við að koma til Íslands,“ útskýrir Mir. 

Fjöl­skyldan not­aði aleigu sína til þess að borga smygl­ara alls um tutt­ugu þús­und doll­ara til þess að kom­ast til Evrópu. Í upp­hafi ferðar voru þau um sjö­tíu í hóp sem ýmist gekk eða fór með bílum í gegnum Íran og gisti ýmist í gripa­húsum eða undir berum himni. Þau fóru til að mynda fót­gang­andi yfir landa­mæri Tyrk­lands og Íran. Frá Tyrk­landi fór fjöl­skyldan með gömlum bát að næt­ur­lagi yfir til Grikk­lands, en þau telja að um fimm­tíu manns hafi verið um borð í bátnum – þar af fjöldi barna. Frá Grikk­landi lá leiðin til Þýska­lands í gegnum Makedóníu, Serbíu, Ung­verja­land og Aust­ur­ríki. Þau komu til Þýska­lands í rútu ásamt öðrum flótta­mönnum og tók her­inn á móti þeim, að sögn Mirs. Hann seg­ist strax hafa gert mönn­unum ljóst að fjöl­skyldan hygð­ist ekki sækja um hæli í Þýska­landi, heldur væru þau á leið­inni til Íslands. Þeim hafi hins vegar verið sagt að þau yrðu að gefa fingraförin sín í Þýska­landi, en það væri ein­göngu til þess að halda utan um hversu margir flótta­menn færu í gegnum landið. Þegar þau hefðu gefið fingraförin sín væri þeim frjálst að halda ferð sinni til Íslands áfram. Eins og átti eftir að koma í ljós gerði fjöl­skyldan sér ekki grein fyrir afleið­ingum fingrafara­tök­unnar, en það er á grund­velli hennar sem Útlend­inga­stofnun vildi senda þau aftur til Þýska­lands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár