Mynd: Heiða Helgadóttir

Flúðu grimmilegar árásir talibana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af tali­bönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir tali­bana á síð­asta ári, en þeir réð­ust á fjöl­skyld­una þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Mir Ahmad Ahmadi, neit­aði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans hand­leggs­brotn­aði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í and­lit­inu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrú­legum fram­förum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyld­unni hefur verið gert að yfir­gefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.

„Það reyndu allir að telja okkur ofan af því að flýja til Evrópu. Við værum með ríg­full­orðið fólk með­ferðis og þrjú ung börn, þetta væri stór­hættu­legt ferða­lag og að það væru engar líkur á að við myndum lifa flótt­ann af. En við vildum frekar deyja á ferða­lagi í ókunn­ugu landi en fyrir hendi tali­bana, því þeir drepa með hrotta­fengnum hætti,“ segir Mir Ahmad Ahmadi, 29 ára Afgani, sem flúði heima­land sitt á síð­asta ári í þeirri von að veita for­eldrum sínum, eig­in­konu og þremur ungum börnum öruggt líf á Íslandi.  

Mir situr með hendur í skauti sér, í íþrótta­buxum, skyrtu og á tánum í svörtum leð­ur­sófa í íbúð sinni í Breið­holt­inu og segir sögu sína. Við hlið hans situr móðir hans, Zahra Ahmadi, sem situr hokin og horfir ang­istar­fullum augum niður fyrir sig á meðan sonur hennar rekur síð­ustu tvö ár fjöl­skyld­unnar fyrir blaða­manni, en þau hafa ein­kennst af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Börn í leit að alþjóðlegri vernd

Staðið á öndinni
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
PistillBörn í leit að alþjóðlegri vernd

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Staðið á önd­inni

Sjón­varps­maður fylgir önd með ung­ana sína yfir götu. Allir fjöl­miðlar fjalla um málið og þús­undir láta í ljós ánægju sína á Facebook. For­sæt­is­ráð­herra ávarpar mann­réttinda­ráð SÞ. Lítill drengur frá Afganistan fær tauga­á­fall vegna hörku íslenskra yfir­valda sem nauð­beygð fresta því um ein­hverja daga að flytja dreng­inn, föður hans og bróður á göt­una í Grikk­landi. Það er sumar á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár