Tillögur Úkraínu og Evrópuríkja um hvernig binda megi enda á stríðið í Úkraínu voru ekki sérlega efnisríkar, að sögn rússneskra stjórvalda í Kreml. Steve Witkoff, erindreki Bandaríkjanna, kynnti Vladimír Pútín forseta þær í dag.
Stjórn Vladimírs Pútín bætti þó við að Rússland væri reiðubúið að hefja þríhliða viðræður við Úkraínu og Bandaríkin á ný í nóvember.
Witkoff ræddi við Pútín í meira en þrjár klukkustundir í Sankti Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn leitast við að blása nýju lífi í viðleitni til að binda enda á stríðið í Úkraínu, sem hefur lengi verið í sjálfheldu.
Átökin, sem nú standa á fimmta ári, eru þau mannskæðustu í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld.
„Steve Witkoff gerði Vladimír Pútín grein fyrir því sem rætt var í Ósló,“ sagði Júrí Úsjakov, aðstoðarmaður í Kreml, við fréttamenn. Hann vísaði til viðræðna sem Witkoff átti við úkraínska og evrópska embættismenn í Noregi í …























































Athugasemdir (1)