Frakkar í vanda: Vextir hækka

Nið­ur­skurður í opin­berum útgjöldum er helsta kveikja mót­mæla Frakka, en ófriður eykur á vand­ann. Vaxta­á­lag á Frakk­land er í dag komið yfir 5 pró­sent í fyrsta sinn frá 2002.

Frakkar í vanda: Vextir hækka
Leitar að olíu Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti á fundi í Katar í dag. Fjár­festar krefj­ast nú hærri ávöxt­unar fyrir að eiga frönsk rík­is­skulda­bréf á meðan deilt er um fjár­lög lands­ins. For­set­inn semur um að kaupa dísílolíu frá Mið­aust­ur­löndum í til­raun til að lækka verð. Mynd: BENOIT TESSIER / AFP

Ávöxt­un­ar­krafa á tíu ára við­mið­un­ar­rík­is­skulda­bréf franska rík­is­ins fór yfir fimm pró­sent í dag þegar fjár­festar kröfð­ust hærri ávöxt­unar fyrir að eiga skulda­bréf lands­ins.

Ávöxt­un­ar­krafan hefur hækkað vikum saman á meðan þing­menn deila um fjár­lög árs­ins 2027. Þar er gert ráð fyrir nið­ur­skurði útgjalda um millj­arða evra til að draga úr skuldum sem nema nú um 120 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu Frakk­lands. Skulda­hlut­fallið er með því hæsta á evru­svæð­inu og langt yfir 60 pró­senta við­miði Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hækkandi ávöxt­un­ar­krafa gerir nýjar lán­tökur dýr­ari og eykur kostnað við end­ur­fjár­mögnun eldri skulda. Áhrifin á vaxta­greiðslur rík­is­ins koma því fram smám saman eftir því sem eldri lán falla á gjald­daga.

Frönsk rík­is­skulda­bréf, svo­nefnd OAT-bréf, eru einnig notuð sem við­mið við vaxta­á­kvarð­anir víða í hag­kerf­inu. Lán­töku­kostn­aður fyr­ir­tækja og heim­ila gæti því farið hækk­andi.

Síðast var ávöxt­un­ar­krafan gagn­vart Frakk­landi svo há árið 2002 í fjár­málakrepp­unni sem fylgdi hruni net­bólunnar.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ætti Frakkland kannski að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru til að lækka vexti?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár