Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ

Kostn­aður vegna við­gerða og við­halds á tveimur grunn­skólum í Reykja­nesbæ er kom­inn í tíu millj­arða. Fyrrum meiri­hluti gagn­rýnir nýja bæj­ar­stjórn fyrir að fara 300 millj­ónir yfir áætlun á einum mán­uði.

Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Harðar deilur Nýr meiri­hluti og sá gamli takast harka­lega á fram­úr­keyrslu vegna dýrra við­halds­fram­kvæmda. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Oddvitar Sam­fylk­ing­ar­innar og Fram­sókn­ar­flokks­ins gagn­rýna nýjan meiri­hluta í Reykja­nesbæ harð­lega fyrir að hafa farið tæp­lega 300 millj­ónum yfir áætlun á einum mán­uði í tengslum við við­gerðir á tveimur grunn­skólum og leik­skólum. Þá var eng­inn við­auki við kostn­að­inn sam­þykktur á vett­vangi sveit­ar­stjórn­ar­innar. 

Bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, Vil­hjálmur Árnason, svarar gagn­rýn­inni og má segja að þar mæt­ist stálin stinn. „Þetta eru stærstu grjót úr gler­húsi sem hefur verið kastað,“ segir hann og bendir á að fram­kvæmd­irnar séu þegar orðnar mjög dýrar og mun dýr­ari en þær þurftu að verða, sem hann rekur til skipu­lags­leysis hjá fyrri meiri­hluta.

Tíu milljarðar

Ráðist var í við­gerðir og við­hald á Myllu­bakka­skóla og Holta­skóla fyrir um fjórum árum. Sam­fylk­ingin mynd­aði þá meiri­hluta með Fram­sókn­ar­flokki en kostn­aður við fram­kvæmd­ina er nú kom­inn upp í tíu millj­arða króna. Guðný Birna, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að ákveðið hafi verið að for­gangs­raða fjár­magni eftir fremsta megni til fram­kvæmd­anna á síð­asta kjör­tíma­bili og end­ur­spegl­ast það …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár