Trump lætur 9/11 snúast um sig

Í Hvíta hús­inu var við­bragðs­að­ila sem lét­ust í hryðju­verka­árás­um á Banda­rík­in ár­ið 2001 minnst. Don­ald Trump lét við­burð­inn og sög­una snú­ast um sjálf­an sig. „Aft­ur,“ seg­ir AFP og bend­ir á að frá­sögn for­set­ans hafi tek­ið breyt­ing­um í gegn­um ár­in og ver­ið dreg­in í efa af björg­un­ar­að­il­um á vett­vangi.

Trump lætur 9/11 snúast um sig

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir tvo slökkviliðsmenn hafa gripið sig og komið sér í öruggt skjól nærri byggingu sem óttast var að myndi hrynja eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001.

Trump greindi frá þessu á viðburði við Hvíta húsið í gær, þar sem minnst var viðbragðsaðila sem létust í árásunum.

„Ég mun aldrei gleyma þessu,“ sagði Trump. „Við héldum að byggingin væri að fara að hrynja yfir okkur. Þá komu tveir slökkviliðsmenn, stórir og sterkir menn – og ég er nú ekki minnsti maður í heimi – gripu undir handleggina á mér og sögðu: ‚Við verðum að koma okkur héðan!‘“

Frásögnin er nýjasta útgáfan af sögu sem Trump hefur ítrekað sagt um aðkomu sína að björgunar- og hreinsunarstarfi í New York eftir árásirnar. Frásögn hans hefur tekið breytingum í gegnum tíðina og bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að björgunarmenn og aðrir sem voru á vettvangi hafi dregið hluta hennar í efa. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hversu sjúkt er samfélag sem velur sér persónu til forustu sem leyfir sér að mikla sjálfa sig á kostnað þeirra 2.977 sem fórust við þetta hrillilega verk sem kom ekki til að ástæðulausu. 25 árum síðar er viðkomandi og þjóðin enn að stiðja þjóðarmorð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
6
ViðtalÁrásir á Gaza

Sam­úð dug­ar ekki til and­spæn­is grimmd­inni

Dr. Youn­is Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palestínu. Hann lýs­ir að­stæð­um á vett­vangi um leið og hann kall­ar eft­ir því að al­þjóða­sam­fé­lag­ið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og sam­úð dugi skammt þeg­ar fólk þjá­ist. „Al­þjóða­sam­fé­lag­ið þarf að skilja að nú er mæl­ir­inn full­ur; það verð­ur að finna lausn og hún get­ur að­eins ver­ið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
3
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár