Trump þekur Ísland með bandaríska fánanum

Banda­ríkja­for­seti hefur áður merkt Venes­ú­ela, Grænland og Kanada með fán­anum, til að und­ir­strika að löndin heyri undir banda­rískt svæði.

Trump þekur Ísland með bandaríska fánanum
Merking Trumps Mynd: truthsocial / Donald J. Trump

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur þakið Ísland með banda­ríska fán­anum í nýrri færslu á sam­fé­lags­miðli sínum, Truth Social. Trump hefur áður gert það sama með Venes­ú­ela og Grænland.

Í færsl­unni sést Grænland, Kanada, Mexíkó og Kúba, meðal ann­arra ríkja, þakið fán­anum. 

Eftir að Trump merki Venes­ú­ela fán­anum réðst hann inn í landið og lét handa­taka for­seta þess, Niculas Maduro, í byrjun jan­úar. 

Skömmu síðar birti eig­in­kona Stephens Miller, hægri handar Trumps,mynd af Græn­landi undir banda­ríska fán­anum. Eftir það tví­efldist Trump í til­raunum til að kom­ast yfir Grænland og inn­lima það í Banda­ríkin.

Trump hefur lagt fram svo­kall­aða „Donroe-kenn­ingu“, sem byggir á Monroe-kenn­ing­unni frá 19. öld, um að nágranna­ríki heyri undir áhrifa­svið Banda­ríkj­anna en ekki Evrópu. Nú virð­ist hann hafa skil­greint Ísland meðal þeirra.

Íslend­ingar höfn­uðu því í lok síð­asta mán­aðar að hefja aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, en Trump hefur ekki tjáð sig um nið­ur­stöð­una.

Trump stefnir opin­ber­lega að stjórn­ar­skiptum á Kúbu og hefur ekki úti­lokað inn­rás í eyj­una.

Ísland er með tví­hliða varn­ar­samn­ing við Banda­ríkin sem veitir þeim rétt­indi til við­bún­aðar hér á landi.

Samn­ing­ur­inn var upp­færður í tíð Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, án opin­berrar umræðu.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Stærsti veikleiki þeirra (Trump og félaga) er að þeir eru hliðstæður fíkniefnaneytenda sem eru alltaf að leita að betri vímu. Bætið þessari ögrun á Íslandi við sívaxandi listann (hér í Bandaríkjunum er „Nýja Mexíkó“ að fá nafnið „Nýja Ameríka“). Rétt eins og með fíkniefnafíkn er þetta ekki spurning um hvort þetta muni allt hrynja, heldur hvenær – og hvaða afleiðingar slíkra mistaka verða um allan heim.
    0
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Við þurfum að hafa það í huga að þar sem við höfum afsalað hluta fullveldisins til USA með því að fela þeim algerlega varnir landsins þá er ekki óeðlilegt að margir þar líta á Ísland sem verndarsvæði Bandaríkjanna (protectorate) og því ætti þetta ekki að vera svo mikið undrunarefni.
    0
    • MS
      Michael Schulz skrifaði
      You are absolutely right. It's a document worth reading:
      "Agreement Between the
      UNITED STATES OF AMERICA
      and ICELAND
      Effected by Exchange of Notes at
      Reykjavik October 13 and 17, 2017"
      0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Trump er ekki að grínast, hann hefur enga kímnigáfu svo vitað sé.
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þau virðast bæði þurfa að læra að lesa (rétt) landakort. Þ.e.a.s. Donald og Ursula.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár