Borgarstjóri leitar að viðburðafulltrúa

Skrif­stofa borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara leitar nú að við­burða­full­trúa. Skrif­stofa sam­skipta og við­burða var lögð niður af nýrri borg­ar­stjórn í hóp­upp­sögnum í júní.

Borgarstjóri leitar að viðburðafulltrúa
Breyt­ingar í borg­inni Borg­ar­stjóri leitar að við­burða­full­trúa. Mynd: Golli

Ný borg­ar­stjórn Hildar Björns­dóttur hefur gert stór­tækar breyt­ingar eftir að hún hóf störf í júní síð­ast­liðnum og hafa hóp­upp­sagnir orðið á ýmsum sviðum hjá Reykja­vík­ur­borg.

Und­an­farið hefur skrif­stofa borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara aug­lýst eftir við­burða­full­trúa en umsókn­ar­frestur rann út 20. ágúst. Staðan var aug­lýst inn á Alfreð. Um það segir: „Við­burða­full­trúi hefur umsjón með opin­berum mót­tökum í Ráðhúsi og Höfða fyrir skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara ásamt því að sjá um mót­tökur og aðra við­burði skrif­stof­unnar.

Skrif­stofan þjón­ustar emb­ætti borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, und­ir­býr sam­ræmda stefnu­mörkun Reykja­vík­ur­borgar og ber ábyrgð á sam­hæfðri stefnu­mörkun í sam­skipta- og upp­lýs­inga­málum.“

Skrifstofa samskipta og viðburða lögð niður

Undir lok júní­mán­aðar var skrif­stofa sam­skipta og við­burða lögð niður sem og mann­rétt­inda­skrif­stofa. Hafði hóp­upp­sögnin áhrif á 27 stöðu­gildi af 42 á skrif­stof­unum sem um ræddi en í heild­ina voru 18 störf lögð niður.

„Ég hét því að gera breyt­ingar og taka til hend­inni í rekstri borg­ar­innar,“ sagði …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár