Bræðurnir á toppnum eftir IKEA-viðskiptin

Bræð­urnir Sigurður Gísli og Jón Pálma­synir eru báðir meðal tíu tekju­hæstu skatt­greið­enda á Íslandi. Önnur systir þeirra, Lilja, er einnig í tekju­hæsta pró­sent­inu en hin, Ingi­björg, greiðir sína skatta á Bret­landi. Þau eru börn Pálma Jóns­sonar, stofn­anda Hagkaups, en bræð­urnir áttu við­skipti sín á milli með IKEA.

Bræðurnir á toppnum eftir IKEA-viðskiptin
Pálma­börn Systk­inin Sigurður Gísli, Jón og Lilja eru öll á Hátekju­list­anum í ár en Ingi­björg er skráð á Bret­landi. Mynd: RÚV

Sigurður Gísli Pálmason fjár­festir var næst­tekju­hæsti ein­stak­lingur á Íslandi í fyrra. Árs­tekjur hans námu tæpum 3,2 millj­örðum króna en hann greiddi um 696 millj­ónir króna í fjár­magnstekju­skatt.

Sigurður Gísli seldi IKEA á Íslandi til bróður síns, Jóns Pálma­sonar, í fyrra. Sá er númer 8 á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar með um 1,3 millj­arða króna í árs­tekjur.

Félag Jóns, Fari ehf., keypti í fyrra allt hlutafé í Mikla­torgi, rekstr­ar­fé­lagi IKEA á Íslandi, af Eign­ar­halds­fé­lag­inu Hof, sem er í eigu bræðr­anna. Við það varð Jón eini eig­andi IKEA en Hof seldi sömu­leiðis Urriða­kot ehf. sem heldur utan um fast­eign IKEA í Garðabæ.

Bræð­urnir höfðu árið áður selt rekstur IKEA í Eystra­salts­ríkj­unum til Inter IKEA Group og má að lík­indum rekja háar fjár­magnstekjur þeirra í fyrra til þeirra við­skipta, enda lauk sölu­ferl­inu í des­em­ber 2024. Rekst­ur­inn var í eigu Fara og Dexter Fjár­fest­inga ehf., sem er í eigu Sigurðar Gísla. Það félag skil­aði 27 millj­arða …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár