Hátekjulisti Heimildarinnar er birtur í dag. Er hann meðal annars unninn upp úr álagningarskrá einstaklinga, sem ríkisskattstjóri veitir aðgang að einu sinni á ári. Þeim sem hreppir 1. sætið líður þó ekki alltaf eins og sigurvegara.
Í ár er þess minnst (þótt margir vilji eflaust gleyma því) að tíu ár eru liðin frá því að skattafælni stöndugra Íslendinga birtist í hinum svokölluðu Panamaskjölum, þegar upplýsingum um aflandsfélög var lekið frá lögfræðistofunni Mossack Fonseca. Í skjölunum voru nefnd 800 félög sem tengdust 600 Íslendingum – heimsmet miðað við höfðatölu. Á topp 10 lista yfir banka heimsins með flesta viðskiptavini í Panamaskjölunum var Landsbankinn í níunda sæti.
Til að fagna vafasömum tímamótunum er eftirfarandi listi yfir fimm hugkvæmar aðferðir til að forðast verðlaunasæti.
1) Myndin sem við máttum ekki sjá
Í dag er frumsýnd í Bretlandi kvikmynd sem heimsbyggðin átti aldrei að fá að sjá.
Margir muna eflaust eftir „Looney Tunes“-teiknimyndunum úr æsku um persónur á borð við Kalla kanínu og Odd önd. Árið 2023 lauk kvikmyndaverið Warner Bros við gerð bíómyndar um tvær persónur seríunnar, seinheppna sléttuúlfinn Wile E. Coyote og sprettharða fuglinn Road Runner. En í stað þess að sýna myndina í kvikmyndahúsum ákvað framkvæmdastjóri Warner, David Zaslav, að henda henni á haugana. Ástæðan var ekki gæði myndarinnar – myndin hafði mælst vel fyrir hjá áhorfendum á prufusýningum – heldur hugðist Zaslav skrá hana sem rekstrartap og nota til skattfrádráttar.
Zaslav hafði sett fjölda kvikmynda ofan í skúffu og fært þær til bókar sem tap. En kvikmyndaunnendur höfðu fengið sig fullsadda og mótmæltu framferðinu. Eftir þriggja ára baráttu kemur myndin „Coyote vs. Acme“ nú loks fyrir sjónir almennings.
2) Æran til frádráttar
Listamenn eru þó ekki aðeins fórnarlömb bókhaldsbrellna.
Árið 1969 voru höfundarlaun listamanna gerð skattfrjáls á Írlandi til að styðja við menningu og listir. Írska hljómsveitin U2 naut góðs af framtakinu.
Árið 2006 setti ríkisstjórn Írlands 250.000 evra þak á afsláttinn. U2 og söngvarinn Bono fluttu samstundis höfundarlaunagreiðslur sínar í skjól til Hollands til að koma sér undan skatti á Írlandi.
En þótt hljómsveitin hefði sparað sér stórfé í skatta greiddi hún fyrir með orðstírnum. Í dag er hljómsveitin nánast jafnþekkt fyrir skattafælni og tónlist.
3) Þjóðrækinn milljónamæringur í orði
Aðdáendum enska boltans er Gary Lineker, fyrrum fótbolta- og sjónvarpsstjarna, að góðu kunnur. Í síðasta mánuði gekk Lineker til liðs við hópinn „Þjóðræknu milljónamæringarnir“, samtök auðmanna sem kalla eftir því að stjórnvöld leggi á þá hærri skatta. Mörgum þótti þátttaka hans þó skjóta skökku við. Lineker hafði áður keypt sumarhús á Barbados í gegnum félag á Bresku Jómfrúareyjum, fjárfest í kvikmyndasjóði sem hafði það helst að markmiði að hagnast á taprekstri sem nýta mátti til skattfrádráttar og háð langa og að endingu farsæla deilu við bresk skattyfirvöld um að tekjur hans hjá BBC væru verktakagreiðslur fremur en laun.
4) Brjóstahaldarastærð 56FF
En það er ekki aðeins ríka og fræga fólkið sem kann bókfærslu. Árið 1988 færði bandaríska nektardansmærin Cynthia Hess brjóstastækkun til skattfrádráttar í skattframtali. Skattayfirvöld höfnuðu hins vegar frádrættinum. Hess, eða „Chesty Love“ eins og hún kallaði sig, dó þó ekki ráðalaus og fór með málið fyrir dómstól. Árið 1994 féllst skattadómstóll á að ígræðslurnar væru svo stórar og óhentugar að þær hlytu að teljast vinnutæki en ekki munaður til einkanota, en brjóstahaldarastærð Hess var 56FF.
5) „Snyrtileg“ sparnaðarleið
Auðlindir koma í ýmsum stærðum og gerðum. Í síðustu viku vakti athygli á Facebook færsla Óskars Steins Ómarssonar, varafulltrúa Samfylkingarinnar í fræðsluráði Hafnarfjarðar, sem velti fyrir sér ástæðu andstöðu íslenskra útgerða við ESB-aðild. Taldi hann andstöðuna ekki snúast um „yfirráð Íslendinga yfir sjávarauðlindinni“ heldur „þá gríðarlegu fjárhagslegu hagsmuni sem felast í getu íslensku útgerðanna til að svína á bæði sjómönnum og íslensku þjóðinni með því sem kallast milliverðlagning sjávarafurða“.
Vísaði hann til tölvupósts úr Samherjaskjölunum sem Baldvin Þorsteinsson, núverandi forstjóri Samherja, sendi samstarfsfólki árið 2009. Þar fullyrti Baldvin að „með því að búa til hagnað innan sölufyrirtækisins Kötlu Seafood getum við lækkað skiptahlut sjómanna og stjórnað betur á hvaða verðum við myndum gera upp. […] Með því að draga úr hagnaði þar og láta hagnaðinn myndast hjá sölufyrirtækinu þá tækist okkur að auka hagnað heildarinnar. Þetta teljum við nokkuð snyrtilega leið til að draga úr skattgreiðslum.“
Stór brjóst eða stórútgerðin; öll erum við eins inn við beinið og í augum skattstjóra.


















































Athugasemdir