„Hefurðu glatað glórunni?“

Þátt­ar­stjórn­and­inn Piers Morgan kom Íslend­ingnum Samúel Guð­munds­syni til varnar í rök­ræðum við rabbínan Shmuley Boteach.

„Hefurðu glatað glórunni?“
Fjöl­margar ásak­anir Piers Morgan tók harða afstöðu með Samúel Guð­munds­syni, þrátt fyrir að gagn­rýna hann fyrir dóna­skap. Mynd: Skjáskot

Íslend­ing­ur­inn Samúel Guð­munds­son, sem vakti heims­at­hygli þegar hann blót­aði Ísrael á mynd­bandi með banda­ríska rabbín­anum og fjöl­miðla­mann­inum Shmuley Boteach á Akureyri í síð­ustu viku, kom fram í spjall­þætti Piers Morgan í dag, sem sjá má hér fyrir neðan.

Í þætt­inum mætt­ust þeir tveir í fyrsta skipti eftir að Samúel þótt­ist vera aðdá­andi rabbín­ans, tók upp stutt mynd­band með honum og mót­mælti þjóð­ar­morði Ísraels á Gaza, sem alþjóða­stofn­anir hafa sömu­leiðis gert, en var í kjöl­farið eltur af rabbín­anum sem deildi lengra mynd­bandi af því fylg­is­mönnum sínum.

Morgan benti á að Shmuley rabbíni hefði fengið „við­stöðu­laust nei­kvæð við­brögð“ undir mynd­bandi sem hann birti þar sem hann elti Samúel og kær­ustu hans eftir að Samúel blót­aði Ísrael.

Piers Morgan tók í þætt­inum harða afstöðu gagn­vart Shmuley rabbína en spurði einnig Samúel gagn­rýn­inna spurn­inga.

„Þú segir að hann vilji að Gyðingar deyi. Hefurðu glatað glór­unni?“ spurði Piers Morgan Shmuley.

„Hættu að ljúga. Hættu að ljúga,“ segir Piers Morgan á tíma­bili í þætt­inum við rabbínan. Þá gagn­rýndi hann rabbínan harð­lega fyrir að elta kær­ustu Samúels á mynd­bandi, þegar hún reyndi aug­ljós­lega að bægja sér undan.

Shmuley rabbíni hélt því fram í þætt­inum að 200 Palest­ínu­menn hefðu fengið hæli á Íslandi. Samkvæmt tölum Þjóð­skrár var 961 palest­ínskur borg­ari á Íslandi þann 1. ágúst síð­ast­lið­inn, en ekki hafa allir þeirra fengið hæli. Alls hafa 995 Palest­ínu­menn sótt um hæli á Íslandi frá árinu 2019. Um helm­ingur þeirra hafa fengið hæli eða dval­ar­leyfi.

Þá hélt rabbín­inn því fram að þeldökkum væri ekki hleypt til lands­ins og sak­aði Íslend­inga um hræsni fyrir að gagn­rýna þjóð­ar­morð Ísraels, sem hann afneitar, en úti­lok­aði annað fólk.

Morgan tók hljóðið af Shmuley rabbína á tíma­bili þar sem hann virti ekki stjórn hans á þætt­inum.

Þá sýndi Morgan brot úr mynd­böndum þar sem hann deilir við fólk víða um heim og kallar það Gyð­inga­hat­ara.

Fyrst var greint frá atvik­inu á Akureyri á vef Mannlífs í síð­ustu viku.

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár