„Sárið er enn opið“ 36 árum eftir að hún fæddi andvana barn

Dag­björt Skafta­dótt­ir var tví­tug þeg­ar hún fæddi and­vana stúlku eft­ir sjö mán­aða með­göngu, eft­ir að hafa feng­ið með­göngu­eitrun. Viku fyrr hafði hún lát­ið vita að hreyf­ing­arn­ar væru minni en það var ekki at­hug­að.

„Sárið er enn opið“ 36 árum eftir að hún fæddi andvana barn

„Þetta er reynsla sem lifir alltaf með mér. Nú eru 36 ár liðin og sárið er enn jafnopið, þótt það sé filma yfir því. 

Hjálpin sem við foreldrarnir fengum var 15 mínútna samtal við prest. Svo sagði fólk setningar á borð við: „Þið eruð nú ung og getið reynt aftur“ og „líkurnar á að þetta komi fyrir aftur eru litlar sem engar“. Það gerir mig enn reiða. Ég get ekki eignast þetta barn aftur, barnið sem ég var að syrgja. 

Tvisvar sinnum gekk ég aftur í gegnum meðgöngueitrun, en vissi hvað var að gerast svo hægt var að grípa inn. Börnin fæddust fyrir tímann. Sonur minn var sjö merkur og dóttir mín þrjár merkur. 

„Hvernig á lífið að verða ánægjulegt ef það er aldrei erfitt?“

Þessi reynsla gerir það að verkum að ég á enn eftir að óska verðandi móður til hamingju. Mín hugsun er alltaf: Þetta er ekki alveg komið, þótt barn sé komið undir. 

Enn reyni ég að taka tíma á fæðingardegi hennar þar sem ég sit og hugsa um hana. Við pabbi hennar erum skilin en þessa sorg finnst mér ég eiga með honum og á erfitt með að hleypa fleirum inn í þessar tilfinningar. 

Ríkidæmi mitt er mikið en barnabörnin eru fjögur. Sonur minn heiðraði minningu systur sinnar með því að skíra frumburðinn í höfuðið á henni. Ég varð innilega glöð. Nýlega hlustaði ég á lag með textanum: Hvernig á lífið að verða ánægjulegt ef það er aldrei erfitt? Það er lærdómur sem ég hef dregið af mínum brekkum, að horfa frekar á það jákvæða sem ég er svo heppin að hafa í lífinu.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Segir „falsfrétt“ og „óhróður“ að hún vilji bera ESB-aðild undir Bandaríkin
5
StjórnmálEvrópumál

Seg­ir „fals­frétt“ og „óhróð­ur“ að hún vilji bera ESB-að­ild und­ir Banda­rík­in

Ingi­björg Dav­íðs­dótt­ir, þing­kona Mið­flokks­ins, sagði„mjög mið­ur“ að ekki hafi ver­ið fund­að með Banda­ríkj­un­um um „ hvað ger­ist með varn­ar­samn­ing Ís­lands ef Ís­land ákveð­ur að ganga í Evr­ópu­sam­band­ið“, en seg­ir það jafn­gilda „fals­frétt­um“ að hún vilji bera að­ild und­ir Banda­rík­in.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
4
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
6
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár