Myrkur í ágúst 13 — Upplifði Jónas í hvalnum sólmyrkva?

Fóru hinir jafn­vel hinir grimmu Assyr­íu­menn á taugum vegna sól­myrkva?

Myrkur í ágúst 13 — Upplifði Jónas í hvalnum sólmyrkva?
Sól­myrkvi í Níníve? Eða hvað? Vituð þér enn, eða hvað?

Enn nálg­ast sól­myrk­vinn; hérna er greinin frá í gær.

En um það tveimur öldum áður en orr­ustan við Halys var háð, eða þann 15. júní 763, þá varð sól­myrkri í Mesópótamíu.

Sólin myrkvað­ist til dæmis í borg­inni Níníve í hér­að­inu ofan­verðu en borgin var þá mið­punktur í ríki hinna svo­nefndu Assýriu­manna.

Þeir kepptu öldum saman um völd í Mesópótamíu við Babýlon­íu­menn og þóttu mjög harðir í horn að taka. Í Gamla testa­menti Bibl­í­unnar segir til dæmis frá grimmd­ar­legum árásum Assyr­íu­manna á Ísrael og Júdeu, ríki Gyðinga í Palest­ínu.

„Níníve verður kollvarpað“

Spá­prestar Assýr­íu­manna þekktu sól­myrka ekki síður en babýlonskir stall­bræður þeirra. Raunar urðu þeir afar hræddir þegar sólin hvarf í skugga tungls­ins og voru vissir um að það þýddi að eitt­hvað voða­legt væri í vændum. Á einni leir­töflu frá Níníve stendur að sól­myrkvi þýði að kon­ungi landsns verði steypt af stóli en aum­ingi setj­ist í hásætið.

Og enn­fremur:

„Steypiregn mun gleypa borg­ina. Borg­ar­múr­arnir hrynja.“

Og svo segir á máli Assýr­íu­manna:

„Adi arbat ūmē āln­inu­aki inn­a­bak“

Það getur þýtt ýmist: „Níníve verður koll­varpað“ eða „Níníve mun iðr­ast!“

Allir klæddust hærusekkjum

Í assýrískum annál er sagt frá því að upp­reisn hafi orðið í nágranna­borg Níníve, ef til vegna óeirða sem brut­ust út meðal ótta­sleg­inna borg­ar­búa, og þeir Biblical scholars eru til sem telja að í Gamla testa­ment­inu leyn­ist lýs­ing á því sem gerð­ist í Níníve sjálfri við sól­myrk­vann.

Í svo­nefndri Jónasar­bók segir frá spá­mann­inum Jónasi sem reyndi að hvetja fólk, bæði Ísra­els­menn og aðra, til að iðr­ast ill­verka sinna og játa trú á guð. Jónas er þekkt­astur fyrir að hvalur gleypti hann en síðar segir frá því að guð hafi sent Jónas í sjálft gin ljóns­ins, til Níníve, höf­uð­borgar hinna ill­ræmdu Assyr­íu­manna.

Þá segir: „En Níníve var svo firna­stór borg að þrjár dag­leiðir voru um hana þvera. Jónas hóf nú göngu sína inn í borg­ina og er hann var kom­inn eina dag­leið pré­dik­aði hann: „Eftir fjöru­tíu daga verður Níníve lögð í rúst!“

Settu þá Níní­ve­búar strax traust sitt á Guð, boð­uðu föstu og klædd­ust hæru­sekkjum, jafnt háir sem lágir.

Fór Assýríukóngur að trúa á guð?

Þegar fregnin barst kon­ung­inum í Níníve stóð hann upp úr hásæti sínu, svipti af sér tign­ar­skrúð­anum, huldi sig hæru­sekk og sett­ist í ösku [sem iðr­andi synd­ari].“

Gerðist Assýr­íu­kóngur svo trú­aður á hinn eina rétta guð Gyðinga.

Þessi frá­sögn hefur löngum þótt næsta ótrú­leg. Assýr­íu­menn voru harðir í horn að taka og ýmsu vanir. Er ekki með ólík­indum að þeir hefðu snúið ger­sam­lega við blað­inu í trú­málum bara af því að heyra ókunn­ugan mann góla nokkrum sinnum að eftir 40 daga yrði Níníve lögð í eyði?

Jú, það er ótrú­legt, segir fræði­mað­ur­inn Donald Wiseman. En hann setti svo fram skýr­ingu á því hve snöggt og ofsa­lega Assýr­íu­menn brugð­ust við.

Sólmyrkvi í Biblíunni?

Það vill nefni­lega svo til að ef spá­mað­ur­inn Jónas var til á annað borð (sem er auð­vitað í meira lagi óvíst en látum svo vera), þá var hann uppi um það bil á árunum 790-740 BC.

Hann var því á besta aldri árið 763 þegar sól­myrk­vinn varð í Níníve.

Getur þá ekki átt sér stað að lýs­ingin á hinum snöggu sinna­skiptum Assýr­íu­manna lýsi í raun skelf­ingu þeirra þegar sól­myrk­vinn brast á 15. júní?

Og að ótti þeirra við „myrkur um miðjan dag“ hafi verið svo megn að höf­undur Jónasar­bókar sé að lýsa þeim ótta, en ekki fyrst og fremst eld­móði spá­manns­ins.

Níníve mun iðr­ast!
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Mjög fróðlegt, en fróðleikur er ekki alltaf sannur.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALLT. ER. LESIÐ. SEM HÆGT ER AÐ. NÁ. ÍER FRJALSYND. HÆGRIMANNESKJA I STJÓRN MÁLA. SKOÐUN OGÞARHAFIÐÞIÐÞAÐ
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár