Myrkur í ágúst 12 — Spáð fyrir sólmyrkva í fyrsta sinn

Spek­ing­ur­inn Þales frá Míletus var ekk­ert blá­vatn

Myrkur í ágúst 12 — Spáð fyrir sólmyrkva í fyrsta sinn
Þales frá Míletus. Telja má víst að hann hafi litið út nokkurn veg­inn svona.

Í grein­inni í gær sagði frá orr­ust­unni við Halys sem er mik­il­vægur atburður í sögu sól­myrkva­rann­sókna.

Hér er sú grein ef þið mis­stuð af henni.

En ekki er nóg með að bar­dag­inn við Halys sé fyrsti nákvæm­lega tíma­setti við­burður mann­kyns­sög­unnar vegna sól­myrk­vans.

Sagna­rit­ar­inn Heródótus lætur þess nefni­lega getið að gríski spek­ing­ur­inn Þales frá Míletus hafi spáð rétti­lega fyrir sól­myrk­vann við Halys fljót áður en hann átti sér stað.

Míletus var borg í Lydiu sem stóð við Eyja­hafið. Íbúar voru fyrst og fremst grískir en Grikkir voru þá orðnir víð­förul versl­un­ar­þjóð og mjög for­vitnir um lífið og til­ver­una. Næstu 200 árin tóku þeir vits­muna­lega for­ystu í listum, heim­speki og vís­indum og meðal þeirra fyrstu sem létu að sér kveða var einmitt Þales.

Afskiptasamir guðir

Því miður er ekki margt vitað um ævi hans en hann er þó tal­inn hafa ferð­ast bæði til Egifta­lands og jafn­vel Babýlon til að kynna sér stærð­fræði og heim­speki. Þegar hann sneri aftur heim til Míletus setti hann fram hug­myndir sem þóttu bylt­ing­ar­kenndar.

Stundum er svo að orði kom­ist að Þales hafi verið fyrsti mað­ur­inn sem reyndi að skilja nátt­úr­una í sjálfu sér – án þess að guð­irnir væru sífellt að flækj­ast fyrir og ráðskast með allt.

Leitað annars staðar en hjá guðunum

Þales setti fram ýmsar hug­myndir um nátt­úr­una, frum­efni hennar, hreyfi­afl og eðli og þó þær hug­myndir væru ekki réttar, þá var hann á réttri leið.

Ein­fald­lega með því að leita lög­mála og skiln­ings ann­ars staðar en hjá afskipta­sömum þver­móðsku­fullum guðum.

Þar með er ekki sagt að Þales hafi ekki trúað á neina guði. Þvert á móti er eftir honum: „Veröldin er full af guðum!“

Þekkti hann hugmyndir Babýlons-presta?

En hann reyndi að skýra gang­verk heims­ins án þess að guð­irnir væru í bíl­stjóra­sæt­inu. Náttúran og heim­ur­inn hefðu sín eigin lög­mál sem mað­ur­inn gæti reynt að skilja og skýra.

Og það á Þales að hafa gert þegar hann, að því er Heródótus segir, spáði rétti­lega fyrir um sól­myrk­vann við Halys.

Vera má að Þales hafi kynnst hug­myndum stjörnu­fræði-prest­anna í Babýlon um Saros-hringi tungl­myrk­vanna ef hann fór raun­veru­lega í heim­sókn til Mesópótamíu.

Fræðimenn efast, eins og þeirra er háttur

Og hann hafi með ein­hverjum ráðum áttað sig á hvernig var hægt að nota þennan hring til að spá líka fyrir um sól­myrkva.

Fræði­menn nútím­ans eru að vísu fullir efa­semda um að Þales hafi í raun getað spáð rétt fyrir um sól­myrkva. Sama hversu snjall hann kann að hafa verið, þeir telja að hann hafi ein­fald­lega ekki ráðið yfir tækjum og reikni­mód­elum til að geta það.

En ljóst er að bæði Heródótus og fleiri höf­undar forn­aldar trúðu því að Þales hafi vissu­lega spáð fyrir um sól­myrk­vann við Halys og það er í sjálfu sér merki­legt.

Sólmyrkvi færir frið

Spádómur Þalesar, hvort sem hann var raun­veru­legur eða ekki, varð tákn um þrennt:

Að heim­ur­inn væri skilj­an­legur og lyti eigin lög­málum.

Og að mað­ur­inn gæti með nægri yfir­legu öðl­ast nægan skiln­ing til að geta jafn­vel spáð fyrir það þegar „dagur breytt­ist í nótt“.

Og loks í þriðja lagi að vís­indin gæti stöðvað stríð. Menn fóru nefni­lega að trúa því að Þales hefði sagt Alyattes Lydiu­kóngi fyr­ir­fram frá því að von væri á sól­myrkva. Þess vegna hefði Alyattes lagt til orr­ustu síð­degis þann 28. maí árið 585.

Af því að hann grun­aði að svo mik­ill ótti mundi grípa um sig við sól­myrk­vann að hann gæti samið um frið við Meda og lokið hinu blóð­uga stríði.

Og svo mikið er víst að sól­myrk­vinn hafði frið í för með sér.

Veröldin er full af guðum!
Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Folkieralvegfrjálstaðhafasinarskoðanirámalunum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár